Ferill 440. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 440 . mál.
Sþ.
765. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um húsnæðismál lögreglunnar í Stykkishólmi.
Frá Inga Birni Albertssyni.
1. Hefur fengist niðurstaða í húsnæðismál lögreglunnar í Stykkishólmi?
2. Hvaða afgreiðslu hefur tilboð einingahúsaverksmiðju á Selfossi um bráðabirgðahúsnæði handa lögreglunni hlotið, sbr. svar ráðherra við fsp. á þskj. 595, 22. febr. sl.?
3. Hefur verið leitað tilboða frá öðrum húsaverksmiðjum í „færanlegt einingahús“, t.d. frá heimamönnum? Ef svo er ekki, hvers vegna?