Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 222 . mál.


Nd.

767. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 39/1988, um bifreiðagjald.

Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Hér er á ferðinni ein af skattahækkunartillögum ríkisstjórnarinnar. Afgreiðslu frumvarpsins varð ekki lokið fyrir áramót. Í tengslum við kjarasamninga 1. febrúar sl. lofaði ríkisstjórnin að falla frá hluta af fyrirhugaðri hækkun. Þess vegna hækkar bifreiðagjaldið, verði frumvarpið samþykkt, ekki um 100% heldur 50%.
    Þegar áform um nýjar álögur á bifreiðaeigendur voru kynntar sl. haust var látið í veðri vaka að ætlunin væri að leggja á sérstakan mengunarskatt. Frá því var horfið. Í staðinn er bifreiðagjaldið hækkað.
    Sé þessi hækkun skoðuð í tengslum við bensíngjaldið sem renna á til vegagerðar blasir sú staðreynd við að tilgangur ríkisstjórnarinnar er að ná nýjum tekjum í ríkissjóð en svíkjast um að fjármagna framkvæmdir í vegamálum.
    Samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytisins verða tekjur ríkissjóðs af bifreiðagjöldum á árinu 1990 þessar (í m.kr.):

Bifreiðagjald
1.000
Þungaskattur
1.205
Bensíngjald
3.190
———
Samtals
5.395
    Í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur skattheimta hækkað til muna án þess að endar hafi náð saman í ríkisfjármálum enda hafa útgjöld aukist jafnt og þétt. Vandinn, sem við er að etja í ríkisfjármálunum, er útgjaldaþensla. Ríkisstjórnin hefur gefist upp við að hemja útgjöldin en gerir í staðinn atlögu að bifreiðaeigendum. Fyrsti minni hl. leggur til að frumvarpið verði fellt.
    Í meðfylgjandi fylgiskjölum birtast upplýsingar fjármálaráðuneytisins um bensíngjald og bifreiðagjald, skipting álagðs bifreiðagjalds milli kjördæma og
sjónarmið FÍB, Trausta, félags sendibílstjóra, og Landssambands vörubifreiðastjóra.

Alþingi, 19. mars 1990.



Friðrik Sophusson, frsm.


Matthías Bjarnason.





Fylgiskjal I.


Bréf Landssambands vörubifreiðastjóra


til fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis.


(16. mars 1990.)



    Í framhaldi af komu undirritaðs á fund nefndarinnar 14. mars sl. vill undirritaður fyrir hönd Landssambands vörubifreiðastjóra koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri við yður vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald.
    Landssambandið vill eindregið mótmæla álagningu bifreiðagjalds á atvinnutæki vörubifreiðastjóra á eftirfarandi forsendum:
    Í fyrsta lagi ber vörubifreiðastjórum innan LV að skila 30–35% af veltu til ríkissjóðs í formi þungaskatts og virðisaukaskatts nú þegar og finnst mönnum það nóg.
    Í öðru lagi er bifreiðagjaldið óháð veltu og af því leiðir að gjaldið kemur verst niður á rekstri bifreiðar sem aflar lítilla tekna og verður því mjög óréttlátur skattur á atvinnubílstjórum.
    Í þriðja lagi er vinna vörubifreiðastjóra mjög árstíða- og svæðisbundin en menn fá þó engar ívilnanir til lækkunar á gjaldinu ef númer eru tekin af bílunum tímabundið.



Landssamband vörubifreiðastjóra.


Rekstrarþættir vörubíla.


(Mars 1990.)



(Skífurit ekki til tölvutæk.)


10–13 tonna vörubílar. Vörubíll með malarvagn.




    Í skífuritunum hér að ofan er gengið út frá forsendum í taxtaútreikningum Landssambands vörubifreiðastjóra.
    Hlutfall VSK og þungaskatts er um 30% í þessu dæmi en þá er eftir að taka tillit til beinna skatta sem bílstjórinn þarf að skila af sínum tekjum. Einnig á fjármálaráðherra a.m.k. 15% heimild inni samkvæmt lögum til að hækka þungaskatt sem hann á efalaust eftir að nýta sér þótt síðar verði.



Fylgiskjal II.


Bréf Félags íslenskra bifreiðaeigenda


til formanna allra þingflokka.


(22. febrúar 1990.)



    Vegna umræðu um skerðingu vegafjár 1990 vill Félag íslenskra bifreiðaeigenda ítreka fyrri mótmæli sín sökum þeirrar áráttu stjórnvalda að ganga í fé Vegasjóðs til annarra útgjalda ríkisins. Fjárþörf ríkissjóðs aðra en til Vegasjóðs og markaðra málaflokka ber að leggja á almenna skattborgara, en ekki að taka féð af einstökum hópum sem eru skattlagðir vegna sérstakra mála.
    Á sama tíma og ráðherra samgöngumála bendir réttilega á gildi varanlegra vega fyrir atvinnu- og félagsmál einstakra byggða og leitar jafnvel eftir því að heimamenn taki á sig kostnað umfram aðra vegna staðbundinnar vegagerðar sækjast aðrir ráðherrar eftir hlutdeild í sérsköttun á bifreiðaeigendur vegna Vegasjóðs og þau vinnubrögð eru ekki traustvekjandi.
    Einnig vill Félag íslenskra bifreiðaeigenda ítreka mótmæli við álagningu bifreiðagjalds sem er miðuð við þunga bifreiða í kílógrömmum, en ekki verðmæti. Eigendur stærri og eldri bifreiða þurfa að greiða sama gjald og þeir sem geta leyft sér að aka nýjum og margfalt verðmætari bifreiðum í sama stærðarflokki. Við mat á bifreiðahlunnindum til skatts er miðað við verðmæti sem er nær lagi, en eignarskattur eins og bifreiðagjaldið, sem innheimt hefur verið fram til þessa, fer því ekki eftir efnum eigenda.
    Bifreiðagjaldið, sem er áætlað að nemi 940 millj. kr. á þessu ári, er óréttmætur skattur þar sem hann rennur ekki til vegamála. Bifreiðaeign landsmanna er auk þess skattlögð með almennum eignarskatti og þar eru gjöld lögð á með tilliti til efnahags.
    Við væntum vinsamlegrar afstöðu yðar, svo og samflokksmanna til þessara mála.



Fylgiskjal III.


Fjármálaráðuneytið:

Minnisblað um aðgerðir


til að lækka framfærsluvísitölu.


(15. mars 1990.)



    Í tengslum við nýgerða kjarasamninga lýsti ríkisstjórnin yfir því að hún mundi beita sér fyrir þeim breytingum á sköttum, gjöldum eða gjaldskrám opinberra fyrirtækja sem svöruðu til 0,3% lækkunar á mælikvarða framfærsluvísitölu. Í vinnuskjölum frá fjármálaráðuneytinu, sem aðilar vinnumarkaðarins fengu afhent, voru birt yfirlit yfir fyrirhugaðar breytingar á sköttum og gjaldskrám samkvæmt forsendum fjárlaga. Þar var m.a. gert ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
1. Bensíngjald hækki um 5% 1. apríl.
     Bensíngjald hækki um 6% 1. ágúst.
2.     Bifreiðagjald hækki um 83% 1. mars.
     Bifreiðagjald hækki um 8% 1. júlí.
    Samkvæmt áætlun fjárlaga áttu þessar hækkanir að skila 840 m.kr. tekjuauka í ríkissjóð á árinu 1990, þ.e. bifreiðagjaldið 650 m.kr. og bensíngjaldið 190 m.kr. Að undanförnu hefur verið til skoðunar í fjármálaráðuneytinu hvernig unnt væri að ná fram þessari 0,3% lækkun á framfærsluvísitölunni. Niðurstaðan af þeirri skoðun er eftirfarandi:
1.     Bensíngjald:
    a.    Horfið verði frá fyrirhugaðri 5% hækkun 1. apríl.
    b.    Bensíngjald hækki um 6% 1. júlí, í stað 1. ágúst.
    Þessar breytingar frá forsendum fjárlaga gera það að verkum að bensíngjald hækkar um 6% á árinu í stað 11,3%. Þetta svarar til 0,1% lækkunar á framfærsluvísitölu. Jafnframt minnka tekjur ríkissjóðs af bensíngjaldi um rúmlega 100 m.kr.
2.     Bifreiðagjald:
    a.    Horfið verði frá 83% hækkun 1. mars.
    b.    Álagningu gjaldsins verði breytt þannig að það verði áfram föst krónutala upp að 1.000 kg, en fyrir hvert umframkg komi 50% álag. Áfram verði hámarksgjald fyrir þyngstu bílana.
    c.    Grunngjaldið, þ.e. upp í 1.000 kg, hækki um 20% 1. apríl, eða úr 2,83 kr. í 3,40 kr. á kg fyrir hálft ár.
    d.    Gjaldið hækki um 15% 1. október, eða úr 3,40 kr. í 3,91 kr. á kg.
    Að teknu tilliti til 50% álagsins svara þessar breytingar á bifreiðagjaldinu til um 30% hækkunar á meðalgjaldinu fyrir alla bíla, þ.e. bæði fyrir einkabíla og atvinnubíla, fyrri hluta ársins. Hækkunin er minnst á bílum undir 1.000 kg, en þar hækkar gjaldið einungis sem nemur hækkun á grunngjaldinu, þ.e. um 20%. Þetta er svipað og hækkun byggingarvísitölu frá því gjaldinu var síðast breytt í júlí 1989.
    Hækkunin verður síðan smám saman meiri eftir því sem bílarnir eru þyngri vegna 50% álagsins fyrir hvert kg umfram 1.000. Gjaldið getur þó aldrei orðið hærra en 10.000 kr. fyrri hluta ársins sem er liðlega 40% hækkun frá gildandi gjaldi og 11.500 kr. síðari hlutann.
    Þessar breytingar þýða í reynd að bifreiðagjaldið hækkar um tæplega 50% á árinu, en í forsendum fjárlaga var reiknað með 98% hækkun. Minni og léttari bílar hækka nokkru minna, eða nálægt 40% að meðaltali. Í töflunni hér að neðan eru sýnd nokkur dæmi um áhrif þessara breytinga á ársgreiðslu bifreiðagjalds miðað við nokkrar tegundir bíla. Þessar breytingar svara til 0,2% lækkunar á framfærsluvísitölu. Jafnframt minnka tekjur ríkissjóðs af bifreiðagjaldi um 250–300 m.kr. frá því sem reiknað var með í fjárlögum og verða um 1.000 m.kr. í stað 1.290 m.kr.


Núgildandi gjald

Fjárlög

Tillaga Hækkun frá núgildandi gjaldi

Kr. Kr. Kr. Kr. Kr.
Fiat Uno
4.019 7.942 5.552 3.924 1.534
Skoda
4.754 9.397 6.569 4.642 1.814
Mazda 323
4.896 9.676 6.764 4.780 1.868
Toyota Corolla
5.094 10.068 7.038 4.974 1.944
Lada Samara
5.094 10.068 7.038 4.974 1.944
Volvo 440
6.056 11.969 8.641 5.913 2.585
Subaru
7.443 14.710 11.515 7.267 4.072
     Að öllu samanlögðu svara breytingarnar á bensín- og bifreiðagjaldi til 0,3% lækkunar á framfærsluvísitölu miðað við forsendur fjárlaga. Áætlað er að heildaráhrif þessara breytinga hafi í för með sér að minnsta kosti 350 m.kr. minni tekjur á árinu 1990 en fjárlög gerðu ráð fyrir.
    Til upplýsingar má nefna að ákveðið var að afturkalla 8% hækkun á þungaskatti frá síðustu áramótum og jafnframt draga úr fyrirhugaðri hækkun 1. júlí þannig að hún verði 6% í stað 9%. Þetta hefur óbein áhrif til lækkunar á vísitölu ef til vill af stærðargráðunni 0,05%. Þessi áhrif hafa þó ekki verið metin inn í 0,3% lækkunina.



Fylgiskjal IV.


Bréf Trausta, félags sendibílstjóra,


og Landssambands vörubifreiðastjóra


til fjármálaráðherra.


(24. janúar 1990.)



    Með tilkomu virðisaukaskatts á vöruflutninga hefur orðið veruleg hækkun á því hlutfalli sem ríkissjóður hefur af veltu hjá þeim aðilum sem þá vinnu stunda. Veltuhlutfallið er fyrir hefðbundna vörubifreið frá því að vera 10–15% fram að áramótum í það að vera 30–35% eftir áramót.
    Og enn eru álögur auknar með tilkomu bifreiðagjalds samkvæmt lögum nr. 39/1988 og breytingu á þeim nú skömmu fyrir jól þar sem gjaldið var hækkað langt umfram vísitölu.
    Í athugasemdum með frumvarpi til laga um breytingar á lögum nr. 19/1988 er þess getið að ekki standi til að hækka tekjur af þungaskatti og bensíngjaldi eins og lög leyfa á þessu ári. Tekjur muni hækka um tæplega 100 millj. kr. í 1.200 millj. kr. sem þýðir 8–9% hækkun þessara gjalda á árinu í stað 25% eins og heimilt er samkvæmt lögum og er það vel.
    En betra væri ef sú litla hækkun, sem nú stendur til, yrði viðvarandi og viljum við undirritaðir því skora á yður, herra fjármálaráðherra, að þær hækkanir, sem fram koma í nýrri reglugerð um þungaskatt nú um áramótin, verði lögbundnar sem nýr grunnur.
    Enn fremur skorum við á yður að fá breytt lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald, á þann hátt að bifreiðar í vöruflutningum verði undanþegnar bifreiðagjaldi þar sem þunga- og virðisaukaskattur sé ærinn og nóg gjaldtaka.
    Rekstur vöruflutningabíla er oft og tíðum misjafn eins og annað í þessu þjóðfélagi. Þegar illa árar veldur há gjaldtaka ríkissjóðs af veltunni verulegri gremju manna meðan þeir berjast í bökkum við að halda í tæki sín í glímu við fjármögnunarleigur og lánastofnanir.
    Enn fremur viljum við minna á skýrslu og niðurstöður vinnuhóps um endurskoðun á innheimtukerfi þungaskatts og/eða skattlagningu gasolíu, dags. í nóvember 1989, unnin á vegum ráðuneytis yðar og enn fremur áður send bréf og beiðnir undirritaðra varðandi þungaskattsmál.



Fylgiskjal V.


Svar fjármálaráðherra við fyrirspurn


Hreggviðs Jónssonar, 11. þm. Reykn., um bifreiðagjald.


(Þskj. 228, 136. mál, 112. löggjafarþing.)



    Spurt er hvernig álagning bifreiðagjalds 1989 skiptist milli einstakra kjördæma.
    Til svars fyrirspurninni liggja fyrir eftirfarandi upplýsingar (upphæðir í kr.):

    Reykjavík ................................     
307.807.963

    Reykjanes ................................     
192.813.447

    Vesturland ...............................     
47.384.179

    Vestfirðir ...............................     
28.950.552

    Norðurland vestra ........................     
35.280.519

    Norðurland eystra ........................     
78.914.260

    Austfirðir ...............................     
46.376.655

    Vestmannaeyjar ...........................     
10.840.327

    Suðurland ................................     
57.397.578

                  
————–

         Samtals     
805.765.