Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 443 . mál.


Sþ.

771. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um meðferð mála hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins.

Frá Inga Birni Albertssyni.



    Hver er venjulegur gangur mála hjá Rannsóknarlögreglunni frá því að kært er og skýrsla er tekin og þangað til máli telst lokið?
    Eru brögð að því að kærumál séu látin liggja óafgreidd eftir skýrslutöku og engin frekari rannsókn fari fram. Sé svo, hver er skýringin á því?