Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 241 . mál.
Nd.
779. Nefndarálit
um frv. til l. um kyrrsetningu, lögbann o.fl.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndinni bárust umsagnir um frumvarpið frá Dómarafélagi Íslands, Lögmannafélagi Íslands og Sýslumannafélagi Íslands. Gerðu þessi félög engar athugasemdir við það. Markús Sigurbjörnsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, var kallaður á fund nefndarinnar til viðræðna um efni frumvarpsins.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt án breytinga.
Alþingi, 21. mars 1990.
Jón Kristjánsson, form., frsm.
Ólafur G. Einarsson, fundaskr.
Guðni Ágústsson.
Sighvatur Björgvinsson.
Friðjón Þórðarson.
Ingi Björn Albertsson.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.