Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 454 . mál.


Sþ.

789. Tillaga til þingsályktunar



um staðfestingu rammasamnings um samvinnu á sviði vísinda og tækni milli Íslands og Evrópubandalaganna.

(Lögð fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd rammasamning um samvinnu á sviði vísinda og tækni milli lýðveldisins Íslands og Evrópubandalaganna sem gerður var í Brussel 30. október 1989.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Með þingsályktunartillögu þessari fer ríkisstjórnin þess á leit að Alþingi heimili staðfestingu rammasamnings um samvinnu á sviði vísinda og tækni sem gerður var í Brussel 30. október 1989. Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með tillögu þessari.
    Samningur þessi er árangur samningaviðræðna milli fulltrúa Íslands og fulltrúa ráðs Evrópubandalaganna, en samkomulag náðist um drög að samningi í september 1988. Umsagnar Rannsóknaráðs ríkisins og Vísindaráðs var leitað og af þeirra hálfu var mælt með því að íslensk stjórnvöld staðfestu samninginn hið fyrsta. Samningurinn var síðan undirritaður í Brussel 30. október 1989. Hann er hliðstæður öðrum tvíhliða rammasamningum við Evrópubandalögin sem öll EFTA-ríki nema Ísland hafa nú þegar samþykkt.
    Markmið þessa samnings er að auðvelda og auka tvíhliða samstarf Íslands og Evrópubandalaganna á sviði vísinda, tækni, rannsókna og þróunar. Þetta markmið er í samræmi við þá stefnu íslenskra stjórnvalda að Ísland verði virkur þátttakandi í menningarlegri og vísindalegri samvinnu Evrópuþjóða.
    Samningurinn felur í sér ákvæði um samstarf stjórnvalda, opinberra fyrirtækja og einkafyrirtækja sem taka þátt í rannsóknaáætlunum á Íslandi eða í löndum Evrópubandalaganna. Þessu samstarfi yrði fylgt eftir m.a. með heimsóknum og skiptum á vísindamönnum, verkfræðingum og tæknimönnum.
    Rammasamningurinn býr í haginn fyrir aðild Íslendinga að öðrum vísindaáætlunum Evrópubandalaganna. Í þessu sambandi má nefna hvataáætlun („Science“-áætlun) Evrópubandalaganna sem gæti eflt vísindastarfsemi í mikilvægum greinum, svo sem á sviði jarðhitarannsókna og hafrannsókna. Önnur slík samstarfsverkefni eru COMETT-verkefnið sem fjallar um samstarf milli háskóla og atvinnulífs á sviði tækniþróunar og ERASMUS-áætlunin sem skipuleggur nemenda- og kennaraskipti á milli háskóla. Þannig er rammasamningurinn í raun umgjörð fyrir þátttöku í einstökum verkefnum eftir því sem um er samið í hverju tilviki.
    Ef rétt er á málum haldið gæti rammasamningurinn bæði eflt það vísinda- og tæknisamstarf milli Íslands og Evrópubandalaganna sem fyrir er og opnað aðra möguleika á samstarfi um rannsóknir sem ykju skilning á íslensku umhverfi og auðlindum.



Fylgiskjal.

(Texti er ekki til í tölvutæku formi.)