Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 481 . mál.


Nd.

838. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 47/1971, um náttúruvernd.

Flm.: Jón Sæmundur Sigurjónsson.



1. gr.

    Við 1. mgr. 19. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Einnig er heimilt að setja upp látlausar auglýsingar um atvinnurekstur eða þjónustu við vegamót heimreiðar og aðalþjóðvegar til kauptúna eða kaupstaða þar sem slík starfsemi fer fram.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Það hefur reynst mjög bagalegt fyrir kauptún, sem liggja úr helstu alfaraleið, að hafa ekki óskoraðan rétt til að vekja athygli ferðamanna, sem leið eiga um þjóðveginn, á þeim þjónustumöguleikum sem þau hafa upp á að bjóða. Það væri áreiðanlega mikil lyftistöng fyrir viðkomandi staði að auka ferðamannastrauminn að nokkru með þessu móti.
    Ferðamenn á leið um þjóðveg 1 og þjóðveg 76 til Siglufjarðar fara t.d. fram hjá Hvammstanga, Skagaströnd, Sauðárkróki og Hofsósi án þess að þessir staðir hafi möguleika til að setja upp upplýsingaskilti á látlausan hátt við þjóðveginn sem upplýsti ferðamenn t.d. um hótel, bensínstöð, bifreiðaþjónustu og aðra þjónustu og atvinnustarfsemi eða jafnvel mannfundi.
    Þessi lagabreyting er til þess ætluð að réttur staða, sem þannig eru í sveit settir, sé ótvíræður til að vekja athygli með þessum hætti á því mannlífi sem þar fer fram.