Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 482 . mál.
Nd.
840. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.
Flm.: Jón Sæmundur Sigurjónsson.
1. gr.
Við 5. mgr. 12. gr. laganna, sbr. 7. gr. laga nr. 90/1987, bætist nýr málsliður svohljóðandi: Námsmenn við framhaldsskóla, sem lögheimili eiga á stöðum þar sem engir slíkir skólar eru fyrir hendi og hafa ekki nýtt persónuafslátt sinn að fullu við upphaf haustmissiris, eiga rétt á aukaskattkorti frá skattstjóra til ráðstöfunar fyrir foreldri eða viðurkenndan fjárhaldsmann þar sem tilgreindur er sá persónuafsláttur sem fyrirsjáanlegt er að námsmaðurinn nýtir ekki.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda gera ráð fyrir því að launamaður, sem stundar nám í a.m.k. sex mánuði á ári en er í launuðu starfi yfir sumarmánuðina, geti sótt um að fá námsmannaskattkort hjá ríkisskattstjóra sem beri hærri mánaðarlegan persónuafslátt en aðalskattkort. Námsmaður við viðurkennda framhaldsskóla hefur þannig tvö skattkort til afnota fyrir mánuðina júní, júlí og ágúst.
Nú þarf námsmaðurinn að hafa tiltölulega góð laun þessa þrjá mánuði til að fullnýta persónuafslátt sinn sem er einnig leið til að fjármagna námið. Fullvíst má telja að í fæstum tilvikum séu laun námsmanna þennan stutta tíma það góð að þau endist til framfærslu allt skólaárið. Aðstoð þarf því í flestum tilvikum að koma til frá foreldrum eða fjárhaldsmönnum. Framhaldsskólanemendur njóta ekki námslána fyrr en á háskólastigi.
Í eldri skattalögum nutu foreldrar og fjárhaldsmenn afsláttar vegna námskostnaðar barna sinna í framhaldsskólum. Í núgildandi lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda er ekki gert ráð fyrir slíku, en þó er gefinn kostur á persónuafslætti námsmannsins sem oftast er sýnd veiði en ekki gefin.
Sérstakan kostnað umfram aðra hafa nemendur í framhaldsskólum og foreldrar þeirra þegar sækja þarf skóla í önnur byggðarlög. Það felst veruleg mismunun í því fyrir margt landsbyggðarfólk að geta ekki veitt börnum sínum fæði og húsnæði í heimahúsum meðan á framhaldsskólagöngu stendur, heldur verða að senda þau um langan veg með ærnum tilkostnaði.
Þessu frumvarpi er ætlað að bæta úr þessum aðstöðumun til menntunar í landinu þannig að landsbyggðarfólki, sem ekki býr á framhaldsskólastöðum, gefist kostur á að fullnýta þann persónuafslátt námsmanna sem skattalögin hvort eð er bjóða upp á.
Samkvæmt 1. gr. þessa frumvarps eiga námsmenn í framhaldsskólum, sem sjaldnast eru í hjónabandi eða í sambúð, sama rétt og makar og fólk í sambúð til að framvísa skattkortum sínum til ráðstöfunar, í þessu tilfelli til foreldra eða fjárhaldsmanns. Þessi réttarbót er ætluð til að jafna aðstöðumun til menntunar og er því bundin við lögheimili fjarri framhaldsskólum.