Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 493 . mál.
Sþ.
858. Tillaga til þingsályktunar
um fullgildingu á alþjóðasamþykkt nr. 122 um stefnu í atvinnumálum.
(Lögð fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)
Alþingi ályktar að veita ríkisstjórninni heimild til þess fyrir Íslands hönd að fullgilda samþykkt nr. 122 um stefnu í atvinnumálum sem gerð var á 48. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í Genf 9. júlí 1964.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Á 75. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), sem haldið var árið 1988, var þess minnst að 40 ár voru liðin frá afgreiðslu samþykktar nr. 87 um félagafrelsi og verndun þess. Við þetta tækifæri var einnig minnst 40 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Við þessi tímamót gerði forstjóri ILO stöðu og þróun mannréttinda í heiminum að umtalsefni í ársskýrslu sinni til Alþjóðavinnumálaþingsins. Í skýrslunni er fjallað um helstu samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar á sviði mannréttinda, hvernig framkvæmd þeirra hafi gengið og hvernig stuðla megi að því að fleiri aðildarríki fullgildi þær og gefi þeim þar með meira vægi. Þær samþykktir, sem hér um ræðir, eru eins og áður sagði samþykkt nr. 87 (1948), en auk þess samþykkt nr. 98 um beitingu grundvallarreglnanna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega (1949), nr. 100 um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf (1951), nr. 111 um misrétti með tilliti til atvinnu og starfs og nr. 122 um stefnu í atvinnumálum (1964). Í skýrslu forstjóra og á þinginu komu fram eindregin tilmæli til þeirra aðildarríkja sem ekki hafa fullgilt framangreindar samþykktir að gera það sem allra fyrst. Af þessum samþykktum hefur Ísland fullgilt allar nema samþykkt nr. 122 sem hér með er leitað eftir heimild til að fullgilda.
Þess skal getið að markmið samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar er að setja reglur um afmörkuð svið vinnumála, félagsmála eða mannréttinda. Með fullgildingu axlar aðildarríki tvíþætta skyldu. Annars vegar að vinna að framkvæmd ákvæða hlutaðeigandi samþykktar og hins vegar að samþykkja að haft sé alþjóðlegt eftirlit með framkvæmdinni. Samkvæmt 22. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar skal aðildarríki senda alþjóðavinnumálaskrifstofunni reglulega skýrslu um aðgerðir sem það hefur gripið til í því skyni að hrinda í framkvæmd ákvæðum samþykktarinnar. Samkvæmt gildandi reglum skal taka þessar skýrslur saman annað hvert ár og senda alþjóðavinnumálaskrifstofunni. Sérfræðinganefnd á hennar vegum fer yfir skýrslur aðildarríkjanna og birtir niðurstöðu sína í árlegri skýrslu sem er til umfjöllunar í einni af fastanefndum Alþjóðavinnumálaþingsins. Frá því að Ísland gerðist aðildarríki Alþjóðavinnumálastofnunarinnar árið 1945 hefur félagsmálaráðuneytið borið ábyrgð á samningu skýrslna um framkvæmd samþykkta sem Ísland hefur fullgilt.
Aðdragandann að afgreiðslu 48. Alþjóðavinnumálaþingsins á samþykkt nr. 122 um stefnu í atvinnumálum má rekja til ársins 1961. Á 45. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar var samþykkt einróma ályktunartillaga sem m.a. fól í sér eindregin tilmæli til stjórnarnefndar ILO að leggja áherslu á að taka stefnu í atvinnumálum sem allra fyrst á dagskrá Alþjóðavinnumálaþingsins og ekki síðar en árið 1963. Markmiðið væri að afgreiða viðeigandi gerð sem stuðlaði að auknu framboði atvinnu eftir leiðum sem bent var á í tillögunni. Stjórnarnefnd alþjóðavinnumálaskrifstofunnar samþykkti á 152. fundi sínum í júní 1962 að boða til undirbúningsfundar um þetta málefni. Fundurinn var haldinn 30. september til 16. október 1963. Á fundi stjórnarnefndar í nóvember það ár var samþykkt að taka stefnu í atvinnumálum til umræðu á 48. þinginu 1964 með það að markmiði að afgreiða viðeigandi gerð um þetta málefni.
Áðurnefndur undirbúningsfundur, sem haldinn var haustið 1963, afgreiddi drög að alþjóðasamþykkt og tillögu sem lögð voru til grundvallar umræðum á Alþjóðavinnumálaþinginu sumarið 1964. Þingnefnd, sem fjallaði um drögin, varði þremur fundum í að ræða hvort stefnt skyldi að afgreiðslu alþjóðasamþykktar eða ekki. Að afloknum umræðum um þetta atriði var gengið til atkvæða. Atkvæði féllu þannig að samþykkt var með 36.678 vegnum atkvæðum að stefnt skyldi að afgreiðslu alþjóðasamþykktar, 31.530 voru á móti og 2.016 sátu hjá. Af þessu sést að nokkuð skorti á fulla samstöðu með þingfulltrúum um afstöðuna til þessa atriðis.
Flestir, sem tóku afstöðu gegn því að stefnt skyldi að afgreiðslu alþjóðasamþykktar, lýstu yfir þörf á mikilli framleiðni og frjálsu vali starfs. Af ýmsum ástæðum töldu þeir að þessari þörf yrði ekki fullnægt með afgreiðslu alþjóðasamþykktar um þetta málefni. Þessir fulltrúar bentu á að atvinnumál væru viðamikill málaflokkur þar sem stefnumörkun væri erfið vegna margra óvissuþátta. Í alþjóðasamþykkt um þetta efni gæti í besta falli falist viljayfirlýsing um markmið sem stefnt væri að á þessu sviði. Af þessari ástæðu yrði erfitt fyrir alþjóðavinnumálaskrifstofuna að hafa með því eftirlit hvort aðildarríki hugsanlegrar samþykktar stæðu við þær skuldbindingar sem þau gengjust undir með fullgildingu. Einnig var vakin á því athygli að atvinnuástandið í mörgum þróunarlöndum væri með þeim hætti að fullgilding af þeirra hálfu væri nánast marklaus og mundi vekja tálvonir meðal íbúa þessara landa.
Talsmenn þess að Alþjóðavinnumálaþingið afgreiddi alþjóðasamþykkt bentu á máli sínu til stuðnings að öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, svo og ríki sem hefðu tekið undir Mannréttindayfirlýsingu samtakanna, viðurkenndu rétt manna til launavinnu þeim og fjölskyldum þeirra til framfærslu. Lögð væri áhersla á þennan rétt í Fíladelfíuyfirlýsingu Alþjóðavinnumálaþingsins árið 1944 um hlutverk og markmið Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Alþjóðasamþykkt um stefnu í atvinnumálum gæti orðið grundvöllur þróunaráratugar Sameinuðu þjóðanna. Með slíkri samþykkt yrði lögð áhersla á mikilvægi þess að nýta þá auðlind sem felst í vinnuframlagi fólks. Af hálfu þessara aðila var viðurkennt að samþykkt um þetta efni mundi einungis fela í sér viljayfirlýsingu en ekki nákvæmlega skilgreindar skuldbindingar. Ekki væri hætta á að þetta mundi grafa undan áliti á alþjóðasamþykktum ILO. Hitt yrði þvert á móti tilefni til gagnrýni ef Alþjóðavinnumálastofnunin léti hjá líða að afgreiða alþjóðasamþykkt þar sem lýst væri yfir lágmarksmarkmiðum í atvinnumálum.
Niðurstaða 48. Alþjóðavinnumálaþingsins varð sú að afgreiða stutta alþjóðasamþykkt sem felur í sér að aðildarríki lýsi m.a. yfir því sem meginmarkmiði að framfylgja stefnu er miði að því að veita öllum næga arðbæra atvinnu eftir frjálsu vali, sbr. fylgiskjal I. Auk samþykktarinnar afgreiddi vinnumálaþingið ítarlega tillögu nr. 122, um stefnu í atvinnumálum. Í henni er bent á ýmsar leiðir til að ná markmiðum samþykktarinnar. Hún er birt sem fylgiskjal II með þessari þingsályktunartillögu.
Þess skal getið að 70. Alþjóðavinnumálaþingið, sem haldið var 1984, afgreiddi tillögu um stefnu í atvinnumálum. Á þessa tillögu, nr. 169, ber að líta sem endurskoðun og viðauka við tillögu nr. 122 frá 1964. Í nýju tillögunni eru áherslur nokkuð aðrar en í þeirri eldri. Benda má á ákvæði um aukna áherslu á starfsmenntun starfsfólks vegna nýrrar tækni. Þótt tillagan sé birt í skýrslu félagsmálaráðuneytisins um 70. Alþjóðavinnumálaþingið sem kom út árið 1985 er hún birt til hægðarauka sem fylgiskjal III.
Eins og kemur fram hér að framan felur fullgilding samþykktarinnar í sér þá skuldbindingu að stjórnvöld lýsi m.a. yfir því að þau fylgi stefnu sem miði að því að veita öllum næga, arðbæra atvinnu eftir frjálsu vali. Af þessu leiðir að ekki er nauðsynlegt að fylgja fullgildingu eftir með sérstakri lagasetningu. Yfirlýsing stjórnvalda í samræmi við markmið samþykktarinnar nægir til að standa við þær skuldbindingar sem leiðir af fullgildingu. Í þessu sambandi má minna á að það hefur verið grundvallarmarkmið í stefnu allra ríkisstjórna lýðveldisins Íslands í atvinnu- og efnahagsmálum að viðhalda fullri atvinnu. Þetta hefur komið fram í samstarfssamningum eða stjórnarsáttmálum þeirra stjórnmálaflokka sem hafa staðið að ríkisstjórnum á Íslandi.
Leitað hefur verið álits þriggja aðila á því hvort fullgilda eigi alþjóðasamþykkt nr. 122. Þeir eru: Alþýðusamband Íslands, Vinnumálasamband samvinnufélaganna og Vinnuveitendasamband Íslands. ASÍ mælir eindregið með því að ríkisstjórninni verði heimiluð fullgilding. Vinnumálasambandið og VSÍ leggjast ekki gegn fullgildingu.
Alþjóðasamþykkt nr. 122 um stefnu í atvinnumálum er meðal þeirra sem flest aðildarríki Alþjóðavinnumálastofnunarinnar hafa fullgilt. Hinn 1. janúar 1989 höfðu eftirtalin 72 ríki fullgilt samþykktina: Alsír, Austurríki, Ástralía, Barbados, Belgía, Bólivía, Brasilía, Danmörk, Djíbútí, Ekvador, Filippseyjar, Finnland, Frakkland, Gínea, Grikkland, Gvatemala, Holland, Hondúras, Hvíta-Rússland, Írak, Íran, Írland, Ísrael, Ítalía, Jamaíka, Japan, Jórdan, Júgóslavía, Kamerún, Kampútsea, Kanada, Kípur, Kómoreyjar, Kostaríka, Kúba, Líbanon, Líbía, Madagaskar, Marokkó, Máritanía, Mongólía, Nýja-Sjáland, Noregur, Panama, Papúa Nýja-Gínea, Paragvæ, Perú, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Sambía, Senegal, Síle, Sovétríkin, Spánn, Stóra-Bretland, Súdan, Súrínam, Svíþjóð, Tékkóslóvakía, Túnis, Tyrkland, Tæland, Ungverjaland, Úganda, Úkraína, Úrúgvæ, Venesúela, Víetnam, Þýska alþýðulýðveldið og Þýska sambandslýðveldið.
Fylgiskjal I.
Fylgiskjal II.
(Texti ekki til tölvutækur.)
Fylgiskjal III.
(Texti ekki til tölvutækur.)
- Neðanmálsgrein: 1
- Setu- og atkvæðisrétt á Alþjóðavinnumálaþinginu eiga fulltrúar ríkisstjórna, atvinnurekenda og launafólks. Í því skyni að jafna áhrif þessara þriggja hópa eru greidd atkvæði margfölduð með ákveðnum stuðli sem tekur mið af fjölda fulltrúa hvers hóps um sig á þinginu eða í hlutaðeigandi þingnefnd. Af þessari ástæðu virðast atkvæðatölur vera í litlu samræmi við fjölda fulltrúa.