Ferill 131. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 131 . mál.
Ed.
864. Nefndarálit
um frv. til l. um lögheimili.
Frá félagsmálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Hallgrím Snorrason hagstofustjóra og Ævar Ísberg vararíkisskattstjóra.
Nokkurn tíma hefur tekið að fjalla um frumvarpið í nefndinni því að ekki hefur legið ljóst fyrir hvaða afleiðingar frumvarpið hefði á skattlagningu námsmanna sem eru við nám á Norðurlöndum. Nefndinni hefur nú borist bréf frá fjármálaráðherra þar sem því er lýst yfir að ráðuneytið sé nú að athuga þetta atriði og ef við athugunina komi í ljós að frumvarpið skerði rétt námsmanna erlendis þá muni hann leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á tekjuskatts- og eignarskattslögum er tryggi að ný lögheimilislög hafi ekki áhrif á skattlega meðferð námsmanna sem eru við nám erlendis. Yfirlýsing fjármálaráðherra er birt sem fylgiskjal með áliti þessu.
Með hliðsjón af bréfi fjármálaráðherra og því að brýnt er að fá frumvarpið lögfest mælir nefndin með samþykkt þess, með þeirri breytingu að gilditökuákvæði þess færist frá 1. júlí 1990 til 1. janúar 1991. Þessi breyting er gerð til að veita Hagstofu Íslands meiri tíma til að undirbúa framkvæmd laganna en gildistökuákvæði frumvarpsins hafði miðast við að það yrði afgreitt fyrr á þessu þingi.
Alþingi, 28. mars 1990.
Margrét Frímannsdóttir, form., frsm.
Guðmundur H. Garðarsson, fundaskr.
Danfríður Skarphéðinsdóttir, með fyrirvara.
Karl Steinar Guðnason.
Jóhann Einvarðsson.
Salome Þorkelsdóttir.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Fylgiskjal.
Bréf fjármálaráðherra til félagsmálanefndar efri deildar.
(20. mars 1990.)
Ráðuneytinu hefur verið kynnt frumvarp til laga um lögheimili sem háttvirtur félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Sérstaklega hefur verið óskað eftir upplýsingum um hvaða afleiðingar breyting 9. gr. frumvarpsins hefur í för með sér varðandi skattlagningu námsmanna, en samkvæmt henni geta þeir námsmenn, sem skráðir eru með fasta búsetu erlendis, ekki átt samtímis lögheimili hér á landi eins og verið hefur. Þetta snertir eingöngu námsmenn á Norðurlöndum.
Nú er verið að skoða í ráðuneytinu hvaða afleiðingar umrætt frumvarp hefur á skattlagningu námsmanna sem eru við nám erlendis. Ef í ljós kemur að umrædd breyting muni skerða rétt námsmanna samkvæmt skattalögum mun undirritaður leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, sem tryggir að umrætt frumvarp til laga um lögheimili mun ekki hafa áhrif á skattalega meðferð námsmanna sem eru við nám erlendis.
Ólafur Ragnar Grímsson.