Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 495 . mál.
Nd.
867. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
Flm.: Árni Johnsen, Ólafur G. Einarsson, Birgir Ísl. Gunnarsson,
Einar Kr. Guðfinnsson, Ragnhildur Helgadóttir, Kristinn Pétursson,
Friðrik Sophusson, Pálmi Jónsson, Eggert Haukdal, Sólveig Pétursdóttir,
Friðjón Þórðarson, Matthías Á. Mathiesen.
1. gr.
Við 1. mgr. 12. gr. laganna, sbr. 6. gr. laga nr. 119/1989, bætist nýr töluliður, svohljóðandi:12. Sala á flotvinnubúningum sem fullnægja kröfum sem Siglingamálastofnun ríkisins setur um slíka búninga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Á undanförnum missirum hefur það ítrekað bjargað lífi sjómanna, sem hafa fallið fyrir borð á hafi úti, að vera klæddir flotvinnubúningum. Flotvinnubúninga er ekki skylt að hafa í fiskiskipum, en Siglingamálastofnun hefur viðurkennt flotgallana sem öryggistæki með reglugerð frá 28. júlí 1989. Siglingamálastofnun er eini umsagnaraðilinn á landinu um öryggisbúnað sjómanna.
Fjölmennur fundur eiginkvenna sjómanna í Vestmannaeyjum vakti fyrst athygli á því hve óeðlilegt væri að leggja virðisaukaskatt á það öryggistæki sem flotvinnubúningurinn er og getur skipt sköpum um lífsmöguleika sjómanna. Nemendur Stýrimannaskólans í Reykjavík fylgdu í kjölfarið og segja m.a. í skjali sem þeir hafa afhent fjármálaráðherra, forseta sameinaðs Alþingis og alþingismönnum: „Við getum ekki sætt okkur við að greiða virðisaukaskatt af möguleika okkar til að lifa.“
Konur sjómanna um allt land hafa vakið athygli á mikilvægi málsins og hvatt til þess að efla öryggi sjómanna. Þá heldur dr. Jóhann Axelsson, prófessor í lífeðlisfræði, því fram út frá rannsóknum á ofkælingu að flotgallar geti ráðið úrslitum um lífslíkur sjómanna sem lenda í hrakningum.
Siglingamálastofnun hefur nú þegar viðurkennt þrjár tegundir flotvinnubúninga sem uppfylla kröfur um einangrun og flothæfni. Öll rök mæla með því að flotvinnubúningar séu undanþegnir virðisaukaskatti. Þeir eru viðurkennt öryggistæki, það er rík ástæða til þess að hvetja til notkunar þeirra og því eðlilegt að lækka svo sem mögulegt er kostnað sjómanna við öflun slíkra öryggistækja. Björgunarbúningar, sem eru um borð í skipaflota landsmanna, henta ekki sem vinnugallar, en það gera flotvinnubúningarnir sem reynslan hefur sýnt á undanförnum mánuðum að ráðið hafa úrslitum um björgun mannslífa. Óviðunandi er að skattleggja öryggi sjómanna sem búa við mesta slysatíðni allra starfsstétta í landinu. Slík lagabreyting, sem hér er lögð til, er knýjandi til þess að efla og auðvelda öryggi sjómannastéttarinnar í landinu.