Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 26 . mál.
Sþ.
888. Nefndarálit
um till. til þál. um könnun á aðstöðu einstaklinga með glúten-óþol.
Frá félagsmálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna á nokkrum fundum. Umsagnir bárust frá Samtökum fólks með glúten-óþol, Tryggingastofnun ríkisins og landlækni. Einnig komu á fund nefndarinnar til viðræðu um málið Ólafur Ólafsson landlæknir, Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu, og Gestur Pálsson barnalæknir.
Umsagnaraðilar mæla með að tillagan hljóti afgreiðslu. Fulltrúi Samtaka fólks með glúten-óþol segir m.a. í umsögn sinni:
„Samkvæmt upplýsingum frá Svíþjóð munu sjúklingar með glúten-óþol fá aðstoð með skattaívilnunum og væri það vafalaust æskilegasta lausnin hérlendis, nema ef farið væri að greiða út bætur ... Við hvetjum því eindregið til þess að yfirvöld sjái ástæðu til að kanna hvernig að málum er staðið á öðrum Norðurlöndum svo koma megi málefnum einstaklinga hérlendis, sem haldnir eru sjúkdómnum, í betra horf.“
Í viðtölum við ofangreinda um málið kom fram að líkt væri ástatt um ýmsa fleiri hópa sem þjást af ofnæmi eða skyldum sjúkdómum og væru svipað settir og fólk með glúten-óþol. Þá var dregið í efa að fjöldi sjúklinga með glúten-óþol hérlendis væri jafnmikill og talið hefur verið og látið er liggja að í greinargerð með tillögunni. Rannsóknir hafa farið fram um nokkurt skeið á glúten-óþoli hjá börnum hérlendis og aðeins örfá ný tilfelli greinst með sjúkdóminn. Sjúkdómurinn er mun sjaldgæfari á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum, t.d. Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Þannig virðist þessi sjúkdómur almennt séð frekar í rénun en vexti að sögn Gests Pálssonar læknis. Það breytir samt ekki eðli vandans hjá þeim sem haldnir eru glúten-óþoli.
Félagsmálanefnd vefengir ekki að verulegur aukakostnaður geti fallið á einstaklinga sem haldnir eru glúten-óþoli. Það gildir hins vegar um ýmsa fleiri hópa sem haldnir eru ofnæmi gagnvart fæðutegundum. Því virðist ekki sjálfgefið að taka glúten-óþol sérstaklega út úr í þessu efni.
Nefndin hvetur yfirvöld heilbrigðis- og tryggingamála til að kanna hversu mikil brögð eru að því að fólk haldið ofnæmissjúkdómum, þar á meðal glúten-óþoli, standi verr að vígi hér á landi gagnvart tryggingum og greiðslu opinberra gjalda en samsvarandi hópar í nágrannalöndum og geri tillögur um leiðréttingar eftir því sem réttmætt er talið. Í trausti þess að það verði gert leggur nefndin til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 3. apríl 1990.
Hjörleifur Guttormsson, form., frsm.
Rannveig Guðmundsdóttir, fundaskr.
Guðni Ágústsson.
Kristinn Pétursson.
Birgir Ísl. Gunnarsson.
Alexander Stefánsson.
Anna Ólafsdóttir Björnsson.