Ferill 517. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 517 . mál.


Nd.

903. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 82/1989.

Flm.: Sólveig Pétursdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,


Friðrik Sophusson, Hreggviður Jónsson, Ólafur G. Einarsson,


Þórhildur Þorleifsdóttir.



1. gr.

    27. gr. laganna orðist svo:
    Vistmenn, sem hafa tekjur umfram 30.000 kr. á mánuði, skulu taka þátt í greiðslu dvalarkostnaðar á stofnunum fyrir aldraða, sbr. 18. gr.
    Með tekjum sínum, sem eru umfram 30.000 kr., skal vistmaður (langlegusjúklingur) greiða dvalarkostnað sinn að hluta eða öllu.
    Setja skal með reglugerð nánari ákvæði um þátttöku vistmanna í greiðslu dvalarkostnaðar, m.a. um hækkun viðmiðunartekna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1990.

Greinargerð.


    Í frumvarpi þessu er lögð til sú breyting að þær 11.000 kr., sem kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 82/1989, um málefni aldraðra, skuli hækka upp í 30.000 kr., en 27. gr., þar á meðal 3. mgr., er að öðru leyti efnislega óbreytt. Rétt er þó að vekja sérstaklega athygli á 3. mgr. þar sem gera má ráð fyrir því að ætlunin hafi verið að hækka þessar viðmiðunarfjárhæðir talsvert í reglugerð, en nú, þegar hún hefur litið dagsins ljós, er aðeins um óverulegar hækkanir að ræða og því er hér gerð tillaga um lagabreytingu.
    Í eldri lögum um málefni aldraðra þurftu aldraðir að vísu að greiða hlutdeild í dvalarheimiliskostnaði ef þeir höfðu lífeyrissjóðstekjur umfram frítekjumark en greiðslur féllu niður ef þeir fluttust á hjúkrunardeild. Í lögum nr. 82/1989 virðist hafa verið ætlunin að breyta þessu fyrirkomulagi að einhverju leyti í réttlætisátt og jafnvel að létta á greiðsluskyldunni hjá þeim sem greitt hafa í lífeyrissjóði en niðurstaðan hefur orðið önnur. Það sem vekur sérstaka athygli er að nú greiða einnig aldraðir sjúklingar fyrir vist sína. Lögin hafa þannig stækkað þann hóp aldraðra sem ætlað er að greiða dvalarkostnað sinn í stofnunum að hluta eða öllu. Þeir sem hafa yfir 11 þús. kr. á mánuði í eigin tekjur skulu þannig greiða með sér og bitna þessar greiðslur aðallega á fólki sem greitt hefur til lífeyrissjóða á starfsævi sinni, enda þótt eignatekjur séu einnig teknar inn í þennan kostnað. Þetta fólk fær þar að auki ekki neina vasapeninga frá Tryggingastofnun ríkisins líkt og þeir sem ekki hafa neinar aðrar tekjur en frá þeirri stofnun. Vasapeningaupphæðin er að vísu „smánarlega lág“ eins og heilbrigðismálaráðherra, Guðmundur Bjarnason, komst að orði í umræðum um frumvarpið á sl. þingi, eða núna um það bil 6.000 kr. á mánuði. Það þyrfti svo sannarlega að hækka þessar bætur því að fjöldi vistmanna þarf nú að sækja um fjárhagsstyrki til fatakaupa frá sveitarfélaginu og þykir mörgum sárt. Raunar geta margir aldraðir ekki hugsað sér að sækja um slíka styrki.
    Engu að síður hlýtur að teljast óeðlilegt að það fólk, sem hefur tekjur umfram bætur frá Tryggingastofnun vegna þess sparnaðar sem það hefur ástundað alla ævi, skuli missa þær til ríkisins þegar það sest í helgan stein. Vandséð er hvaða rök geta réttlætt slíka ráðstöfun löggjafans enda þótt vistun aldraðra feli í sér mikinn kostnað fyrir ríkissjóð. Það má einnig leiða að því rök að eldri borgarar þessa lands séu nú þegar búnir að leggja sitt af mörkum til samfélagsins hvað þennan kostnað varðar og að þeir eigi sinn sparnað sjálfir.
    Í núgildandi lögum um málefni aldraðra felast margvíslegar breytingar frá því sem áður var. T.d. falla nú færri stofnanir undir lögin en áður, þar á meðal svonefndar þjónustuíbúðir aldraðra. Í 18. gr. laganna er skilgreint hvað teljist stofnanaþjónusta fyrir aldraða samkvæmt lögum þessum. Hún er tvískipt, annars vegar þjónustuhúsnæði aldraðra skv. 1. tölul. og hins vegar hjúkrunarrými á öldrunarstofnunum eða hjúkrunarheimili skv. 2. tölul., sjá fylgiskjal I með skilgreiningu laganna á stofnanaþjónustu og fylgiskjal II, reglugerð nr. 47/1990 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, einkum fylgiskjal með henni þar sem er skrá um öldrunarstofnanir og hjúkrunarrými fyrir aldraða.
    Um langan tíma hefur það verið eitt af höfuðeinkennum sjúkratrygginga á Íslandi að öllum sjúkratryggðum landsmönnum hefur verið tryggð ókeypis vist á sjúkrahúsum og sjúkradeildum fyrir aldraða, sbr. 40. og 41. gr. laga um almannatryggingar. Þannig segir í upphafi 41. gr.:
    „Hverjum þeim, sem sjúkratryggður er skv. 40. gr., skal tryggð ókeypis vist að ráði læknis í sjúkrahúsum ...“
    Verður ekki annað séð en 27. gr. laga nr. 82/1989 gangi þvert á þetta ákvæði almannatrygginga og breytir þar varla nokkru um þótt aldraðir sjúklingar séu í reglugerð kallaðir „langlegusjúklingar“. Þessa nýtilkomnu greiðslubyrði mætti e.t.v. kalla „sjúklingaskatt“ og vísast þá til fyrri umræðna á Alþingi um hann, m.a. á þinginu 1983–84 er rætt var um umdeilda tillögu í þá átt að sjúklingar greiddu hluta af fæðiskostnaði sínum en þá var þessi nafngift notuð.
    Þess má geta til upplýsingar að 1.596 lífeyrisþegar dveljast nú í hjúkrunarrými landsins. Af þeim greiða 285 eitthvað upp í vistgjaldið af tekjum sínum en 20 greiða það að fullu. Ekki liggja fyrir tölfræðilegar upplýsingar um fjölda aldraðra sem er í þjónustuhúsnæði og greiðir dvalarkostnað sinn að hluta eða öllu leyti. Samkvæmt upplýsingum Tryggingastofnunar fá u.þ.b. 1.200 vistmenn greidda elliheimilisuppbót að fullu eða hluta vegna þess að þeir geta ekki greitt allan dvalarkostnað sinn. Það eru þó alltaf nokkrir vistmenn sem greiða dvalarkostnað sinn að fullu. Við meðferð málsins í nefnd væri æskilegt að fá nákvæmar tölfræðilegar upplýsingar um kostnaðargreiðslur vistmanna.
    Lög nr. 82/1989 tóku gildi um síðustu áramót og reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, nr. 47/1990, frá 17. janúar 1990 tók gildi 1. febrúar sl. Í reglugerð þessari hafa viðmiðunarmörk 27. gr. laga nr. 20/1989 aðeins verið hækkuð til samræmis við hækkun bóta og eru nú þær upphæðir, sem vistmenn halda eftir á mánuði, 15.700 kr. í þjónustuhúsnæði og 13.200 kr. í hjúkrunarrými. Allar tekjur umfram þessar fjárhæðir renna til greiðslu dvalarkostnaðar upp að 61.290 kr. á mánuði eins og daggjaldanefnd hefur ákveðið. Þessar fjárhæðir eru allt of lágar og hlýtur það að reynast fólki þungbært að hafa ekki meira fé til ráðstöfunar hvort sem það dvelst í þjónustuhúsnæði eða hjúkrunarrými. Þykir því sanngjarnt að leggja til þessa hækkun til viðmiðunar, þ.e. 30.000 kr.
    Til þess að gera skýrari grein fyrir þeim nýmælum sem frumvarp þetta felur í sér í samanburði við 27. gr. laga gildandi laga, nr. 82/1989, ásamt fyrrnefndri reglugerð, eru hér tvö dæmi, miðuð við 1. febrúar 1990. Tryggingastofnun ríkisins greiðir svokallaða elliheimilisuppbót skv. 19. gr. almannatryggingalaga, sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 351/1977. Grunnlífeyrir ellilífeyrisbóta er nú 11.016 kr. á mánuði:

Núgildandi kerfi:
    Einhleypur í þjónustuhúsnæði. Viðmiðun 15.700 kr. á mánuði.
    Tekjur 60.000 kr. á mánuði (eftirlaun).
    Tekjutrygging á mánuði er engin.
    Hann borgar sjálfur með tekjum sínum á mánuði, að frádregnum skerðingarmörkum: 60.000 - 15.700 = 44.300 (maður á langlegudeild borgar 46.800).
    Dvalarkostnaður = 61.290 - (11.016 + 60.000 - 15.700) = 5.974 kr. sem er svokölluð elliheimilisuppbót.
    Tryggingastofnun borgar því 11.016 + 5.974 = 16.900.

Samkvæmt frumvarpinu:
    Einhleypur í þjónustuhúsnæði. Viðmiðun 30.000 kr. á mánuði.
    Tekjur 60.000 kr. á mánuði (eftirlaun).
    Tekjutrygging á mánuði er engin.
    Hann borgar sjálfur 60.000 - 30.000 = 30.000.
    Dvalarkostnaður = 61.290 - (11.016 + 60.000 - 30.000) = 20.274 kr. sem er svokölluð elliheimilisuppbót.
    Tryggingastofnun borgar því 11.016 + 20.274 = 31.290.

    Rétt þótti að gera einnig grein fyrir kostnaðarhlutdeild Tryggingastofnunar en hún er að sjálfsögðu fjármögnuð af skattgreiðendum. Þá má sömuleiðis geta þess að skattalögum hefur ekki verið breytt vegna vistmanna á stofnunum þannig að allar tekjur sem eru umfram 52.400 kr. á mánuði, eru skattskyldar.
    Eftir að núgildandi lög um málefni aldraðra komu til framkvæmda hefur orðið vart mikillar óánægju meðal aldraðra og telja þeir ekki sanngjarnt að þurfa á síðustu árum ævinnar að greiða meiri hluta eftirlauna sinna til ríkisins. Reyndar kom frumvarpið að núgildandi lögum svo seint fram á síðasta þingi að lítill tími gafst til efnislegrar umfjöllunar um þennan viðamikla málaflokk og er ekki óeðlilegt að ætla það, m.a. af umræðum á Alþingi að dæma, að fulltrúar löggjafarvaldsins margir hverjir hafi búist við mun hærri viðmiðunarmarki en ákvæði reglugerðarinnar gera ráð fyrir. Í þessu sambandi er einnig rétt að minna á 2. mgr. 1. gr. laganna um málefni aldrara sem ákvæði 1. og 2. mgr. 27. gr. geta varla talist samrýmast, en þar segir svo:
    „Tilgangur þessara laga er að aldraðir geti svo lengi sem verða má búið við eðlilegt heimilislíf en að jafnframt sé tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar gerist þörf. Eftir því sem kostur er skal sjálfsákvörðunarréttur aldraðra í því efni virtur og möguleikar þeirra til ráðstöfunar eigin eigna og lífeyris ef þess gerist þörf.“
    Með hliðsjón af þessu ákvæði, og til þess að milda áhrif þeirrar löggjafar sem hér um ræðir, er lagabreyting þessi lögð til. Það er skoðun flutningsmanna að enda þótt nú sé mikið rætt um þörf aðhalds og sparnaðar í ríkiskerfinu hljóti að verða að taka tillit til hagsmuna og sjálfsvirðingar þessa fólks sem lagt hefur grundvöllinn að íslensku nútímaþjóðfélagi.



Fylgiskjal I.


Skilgreining 18. gr. laganna um málefni aldraðra á stofnanaþjónustu.



(Tölvutexta vantar.)





Fylgiskjal II.


(Tölvutexta vantar. Reglugerð um stofnanaþjónustu.)