Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 420 . mál.
Nd.
906. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, með síðari breytingum.
Frá menntamálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið sem þegar hefur verið afgreitt frá efri deild. Frumvarpið var undirbúið af háskólaráði en gerð var á því ein breyting eftir að háskólaráð afgreiddi það og áður en það var lagt fram í þinginu. Að athuguðu máli telur nefndin rétt að færa frumvarpið aftur í fyrra horf eins og háskólaráð gekk frá því. Þessi breyting felur það í sér að námsráðgjöf skal starfrækt sem sérstök háskólastofnun en í frumvarpinu var ákvæði þetta í heimildarformi. Er gerð tillaga um þessa breytingu á sérstöku þingskjali og er mælt með að samþykkja frumvarpið þannig breytt.
Alþingi, 9. apríl 1990.
Ragnar Arnalds,
form., frsm.
fundaskr.
Birgir Ísl. Gunnarsson,
Árni Gunnarsson.
Guðmundur G. Þórarinsson.
Ragnhildur Helgadóttir.
Pétur Bjarnason.
Þórhildur Þorleifsdóttir.