Ferill 529. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 529 . mál.


Sþ.

926. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skil á staðgreiddu útsvarsfé til sveitarfélaganna.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



1.     Hversu háum fjárhæðum nemur ofgreiðsla ríkissjóðs á staðgreiddu útsvari til sveitarfélaga sem kom í ljós nú nýverið?
2.     Hvernig áttu þessi mistök sér stað og hver ber ábyrgð á þeim?
3.     Verður sveitarfélögunum gefinn kostur á að endurgreiða hið ofgreidda staðgreiðslufé með jöfnum greiðslum út árið?