Ferill 534. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 534 . mál.


Nd.

931. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 64/1981, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)



1. gr.

    3. gr. hljóði svo:
    Ákvæði laga þessara taka til félagsmanna í þeim stéttarfélögum sem við gildistöku þeirra eru aðilar að Atvinnuleysistryggingasjóði, svo og þeirra félaga sem stjórn sjóðsins veitir síðar aðild að sjóðnum eftir umsókn þeirra þar um. Lögin taka ekki til þeirra sem tryggður er réttur til atvinnuleysisbóta með öðrum lögum.

2. gr.

    2. mgr. 11. gr. hljóði svo:
    Um skilafrest launaframtals, meðferð þess og viðurlög skulu gilda ákvæði X.–XII. kafla laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, eftir því sem við á.

3. gr.

    Í 1. mgr. 12. gr. falli niður tilvitnunin „nr. 40/1978, sbr. lög nr. 7/1980“ og í staðinn komi: nr. 75/1981.

4. gr.

    1. tölul. 1. mgr. 16. gr. hljóði svo:
1. Eru orðnir 16 ára að aldri en yngri en 71 árs.

5. gr.

    1. mgr. 17. gr. hljóði svo:
    Sá sem er atvinnulaus og fullnægir skilyrðum bótaréttar skv. 16. gr. en tekur starfi sem ekki er tryggingarskylt samkvæmt lögum þessum og stundar það allt að 24 mánuðum heldur að loknu því starfi bótarétti þeim sem hann hafði áunnið sér enda taki ákvæði annarra laga eða samninga um atvinnuleysistryggingar ekki til starfsins. Sama gildir í allt að 24 mánuðum um þá sem taka að stunda nám svo og þá sem verða að hverfa frá vinnu af heimilisástæðum.

6. gr.

    Við 1. mgr. 18. gr. bætist: Ákvæði þessarar málsgreinar gilda ekki um þá sem taka að stunda námskeið eða annað nám sem varir lengur en sex vikur.

7. gr.

    6. tölul. 21. gr. orðist svo:
6.     Þeir sem neita starfi sem þeim býðst fyrir milligöngu vinnumiðlunar eða á annan sannanlegan hátt, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör öll í samræmi við gildandi kjarasamninga. Bótaréttur glatast þó ekki þótt umsækjandi hafni vinnu ef hann með læknisvottorði sannar að hann geti eigi stundað þá vinnu sem hann á kost á.
             Eigi fellur heldur niður bótaréttur þótt sá sem hefur notið bóta skemur en fjórar vikur hafni vinnu í starfsgrein sem hann hefur ekki áður stundað, enda fylgi starfinu að mati úthlutunarnefndar mun meiri áreynsla og vosbúð en þeim störfum sem hann hefur áður stundað. Þegar hafnað er vinnu fjarri heimili metur úthlutunarnefnd hvort það skuli varða missi bótaréttar og skal þá gætt heimilisástæðna umsækjanda.

8. gr.


    Við 5. mgr. 24. gr. bætist: Fyrirsjáanlega skerðingu vinnutíma skal atvinnurekandi tilkynna fyrir fram til vinnumiðlunar þar sem fyrirtæki starfar og tilgreina ástæður til samdráttar. Tilkynningu skal fylgja skrá um það starfsfólk sem ráðgert er að skerðingin taki til ásamt upplýsingum um dagvinnustundafjölda einstakra starfsmanna hjá fyrirtækinu á síðustu 12 mánuðum áður en til skerðingar kemur, svo og upplýsingum um stéttarfélög viðkomandi. Vinnumiðlun staðreynir skrána svo og síðari upplýsingar um það fólk sem skerðingin hefur tekið til og sendir til úthlutunarnefnda atvinnuleysisbóta fyrir þau félög, sem starfsmenn eru félagar í, sem síðan úrskurða um bótarétt. Ekki verða greiddar bætur samkvæmt þessari grein lengur en 30 bótadaga fyrir hvern starfsmann á almanaksári. Komi til uppsagna starfsmanna falla greiðslur niður og eiga þeir ekki bótarétt að nýju fyrr en að loknum uppsagnarfresti.

9. gr.

    Í 1. mgr. 26. gr. fellur niður tilvitnunin „sbr. 7. gr. laga nr. 52/1956, um vinnumiðlun“ en í staðinn komi: sbr. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 18/1985, um vinnumiðlun.

10. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða I falli niður.

11. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella þau ásamt lögum nr. 10/1985, lögum nr. 79/1986, V. kafla laga nr. 87/1989 og VI. kafla laga nr. 7/1990 inn í meginmál laga nr. 64/1981 og gefa lögin út að nýju svo breytt.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipaði 18. október 1988 að beiðni stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs nefnd til að endurskoða lög og reglur um atvinnuleysistryggingar hér á landi.
    Í nefndina voru skipaðir: Jón Ingimarsson skrifstofustjóri, án tilnefningar, og var hann jafnframt skipaður formaður nefndarinnar, Eyþór Þorbergsson lögfræðingur, tilnefndur af Vinnumálasambandi samvinnufélaga, Guðmundur Þ Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, Jón Rúnar Pálsson lögfræðingur, tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Íslands, og Eyjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuleysistryggingasjóðs, tilnefndur af stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs. Eyjólfur tók við formennsku í nefndinni í september 1989 er Jón Ingimarsson andaðist.
    Nefndin lauk störfum í nóvember 1989 og klofnaði í afstöðu sinni til breytinga á 3. gr. laga nr. 64/1981, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum. Nefndin er sammála um að leggja til breytingar á þessari grein, en greinin útilokar nú nokkrar tilgreindar stéttir frá atvinnuleysisbótum. Helmingur nefndarmanna vill að fellt verði niður það skilyrði bótaréttar að hlutaðeigandi umsækjandi sé í stéttarfélagi enda telja þeir að skilyrði um aðild að stéttarfélagi brjóti í bága við Félagsmálasáttmála Evrópu sem Ísland er aðili að. Félagsmálaráðherra mun hafa fengið athugasemd frá sérfræðinganefnd Evrópuráðsins vegna þessa. Hinn helmingur nefndarmanna telur brottfall skilyrðis um stéttarfélagaaðild slíka grundvallarbreytingu að fyrst þurfi að breyta þeim ákvæðum sem ekki sé ágreiningur um svo að umræða um breytingar á grunnskipulagi laganna tefji ekki málið.
    Í frumvarpi því, sem hér er lagt fram, er breytingartillaga um 3. gr. í samræmi við vilja þeirra nefndarmanna sem vildu ganga skemmra í breytingum á ákvæðum laganna. Um önnur atriði frumvarpsins var samkomulag í nefndinni.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Frá upphafi hafa ýmsar starfsgreinar verið utan atvinnuleysistrygginga. Hér er lagt til að þær takmarkanir falli niður og félagsmenn allra launþegasamtaka, sem 2. gr. tekur til, geti verið tryggðir í atvinnuleysistryggingum.

Um 2. gr.


    Greinin er efnislega óbreytt, aðeins tilvitnun í ný skattalög.

Um 3. gr.


    Tilvitnun er breytt vegna nýrra skattalaga.

Um 4. gr.


    Í lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 29/1956, sagði að rétt til bóta ættu þeir sem væru á aldrinum 16–67 ára. Þó var þeim sem orðnir voru 67 ára tryggður bótaréttur ef þeir nutu ekki ellilífeyris.
    Aldurshámarkið, 67 ár, var fellt úr gildi með bráðabirgðalögum nr. 81 31. desember 1968. Í lögum nr. 70/1969 var svo ákveðið að elli- og örorkulífeyrisþegar öðlist því aðeins bótarétt að loknu fyrsta bótatímabili að þeir sanni með læknisvottorði að þeir séu þá færir til almennrar vinnu. Hliðstætt ákvæði er í núgildandi lögum nr. 64/1981.
    Í meðfylgjandi frumvarpsdrögum er lagt til að bótarétt eigi þeir sem eru orðnir 16 ára en yngri eru en 71 árs. Úrræði aldraðra eru orðin önnur nú en áður var með stóraukinni tekjutryggingu almannatrygginga og tilkomu lífeyrissjóða. Ekki er eðlilegt að greiddar séu atvinnuleysisbætur löngu eftir að tengslum bótaþega við vinnumarkað er lokið, enda leiðir það beinlínis af sér skerðingu eða brottfall tekjutryggingar almannatrygginga. Það virðist færast í vöxt að starfsmönnum sé sagt upp um sjötugt vegna aldurs og jafnvel dæmi um lægri aldur. Í nágrannalöndum er aldurshámark atvinnuleysistrygginga 65–67 ár, en það er ekki með öllu sambærilegt þar sem úrræði almannatrygginga vegna aldurs geta tekið til yngra fólks en hér.
    Í tillögu þeirri, sem hér er gerð, felst að sá sem missir starf sitt sjötugur fær möguleika á að vera umsækjandi um vinnu og fá atvinnuleysisbætur um tíma meðan hann leitar fyrir sér um starf sem kynni að henta honum.

Um 5. gr.


    Greinin fjallar um geymdan bótarétt undir vissum kringumstæðum.
    Lagt er til að í upphafi greinarinnar sé beint tekið fram að geymsla bótaréttar vegna starfs sem ekki er tryggingaskylt eigi við þann sem orðinn er atvinnulaus og tekur slíku launþegastarfi. Með rýmkun þeirri á aðild að sjóðnum, sem gert er ráð fyrir í 3. gr., mun trúlega lítið reyna á þetta ákvæði.
    Ákvæði núgildandi laga um geymdan rétt þeirra sem taka að stunda heimilisstörf allt að 24 mánuðum felur ekki í sér neina takmörkun né skilyrði. Lagt er til að sett verði svipað skilyrði og þegar um veikindi er að ræða, þ.e. knýjandi ástæður séu fyrir því að hinn tryggði hverfi af vinnumarkaði.

Um 6. gr.


    Ákvæði þessu er ætlað að taka af tvímæli um skilning á ákvæðum greinarinnar.

Um 7. gr.


    Greinin fjallar um sama efni og núverandi 6. tölul. 21. gr. Efnisbreyting er sú að samkvæmt frumvarpinu er bótaþega, sem notið hefur bóta í fjórar vikur eða lengur, skylt að viðlögðum missi bótaréttar að taka vinnu í starfsgrein sem er erfiðari en sú sem hann stundaði áður. Í núgildandi lögum fer um þetta samkvæmt mati úthlutunarnefndar. Þótt það heimildarákvæði sé fellt niður til þess að tryggja betur samræmi í framkvæmd nýtur bótaþegi eftir sem áður hinnar almennu reglu greinarinnar að sanna að hann sé ekki fær um að stunda það starf sem boðið er.

Um 8. gr.


    Hér er bætt við 5. mgr. 8. gr. sem var áður 4. mgr., en færðist til er bætt var í lög nr. 10/1985 nýrri málsgrein á eftir 1. mgr. greinarinnar. Efni greinarinnar er þríþætt. Í fyrsta lagi er lagt til að lögfest verði ákvæði um framkvæmd greiðslna en tillagan er í samræmi við reglur sem hafa myndast um framkvæmd. Þá er lagt til að hámarkstími greiðslu verði 30 bótadagar sem er í samræmi við ákvæði laga um greiðslur vegna fiskvinnslufólks samkvæmt lögum nr. 34/1988. Loks er lagt til að beint sé tekið fram í lögunum að bótagreiðslur samkvæmt ákvæðum greinarinnar falli niður sé starfsmönnum sagt upp. Tilgangurinn með greiðslum þessum er að koma í veg fyrir uppsagnir en komi til þeirra ber starfsmönnum að fá greidd laun í uppsagnarfresti enda eru þá brostnar forsendur fyrir greiðslunum.

Um 9. gr.


    Sett hafa verið ný lög um vinnumiðlun.

Um 10. gr.


    Ákvæði þetta er löngu úrelt og ástæðulaust að hafa það lengur í lögunum.

Um 11. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.