Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 543 . mál.
Ed.
940. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 29 29. apríl 1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)
1. gr.
4. gr. laganna orðist svo:Stjórn sjóðsins skal heimilt að taka í tölu sjóðfélaga starfsmenn fræðsluskrifstofa, starfsmenn bæjar-, sýslu- og hreppsfélaga og stofnana er þeim tilheyra og sérstakan fjárhag hafa, starfsmenn landshlutasamtaka sveitarfélaga, starfsmenn stofnana í sameign ríkis og sveitarfélaga sem sérstakan fjárhag hafa, starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands, starfsmenn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Bandalags háskólamanna, svo og starfsmenn aðildarfélaga bandalaganna ásamt starfsfólki sparisjóða, samnorrænna stofnana og uppeldis- og heilbrigðisstofnana sem reknar eru af sjálfstæðum styrktar- og líknarfélögum, svo og starfsmenn stjórnmálaflokka sem voru í starfi árið 1971 eða hófu starf síðar enda séu uppfyllt skilyrði 3. gr. I. a. um ráðningartíma og aðalstarf.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 61 31. maí 1989, um breyting á lögum nr. 29 29. apríl 1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Til þess að skýra þær breytingar, sem hér eru lagðar til á 4. gr. laganna, er nauðsynlegt að reifa nokkuð ítarlega forsögu málsins.
Um vorið 1987 varð ágreiningur um aðild hljóðfæraleikara og annarra starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Til þess að höggva á þann hnút var leitað eftir álitsgerð Arnljóts Björnssonar prófessors.
Í greinargerð hans segir svo m.a. um 4. gr. laganna: „... í henni er allvíðtæk heimild til handa stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til að taka í tölu sjóðfélaga starfsmenn ýmissa opinberra stofnana og fleiri stofnana, samtaka og félaga. Þeir sem hér koma til álita eru aðeins „starfsmenn bæjar-, sýslu- og hreppsfélaga og stofnana er þeim tilheyra og sérstakan fjárhag hafa“. Sinfóníuhljómsveit Íslands er, eins og áður kom fram, sjálfstæð stofnun sem rekin er af ríkissjóði, einni ríkisstofnun og tveimur bæjarfélögum. Hljómsveitin verður ekki talin stofnun sem tilheyrir bæjarfélagi eða bæjarfélögum. Eftir orðanna hljóðan nær heimild 4. gr. því ekki til starfsmanna hljómsveitarinnar.
Hitt er annað mál að lagarök eru vandfundin fyrir því að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sé óheimilt að taka í tölu sjóðfélaga starfsmenn stofnunar sem er í sameign ríkis og sveitarfélaga þegar stjórnin má veita aðild starfsmönnum samtaka stéttarfélaga ríkisstarfsmanna, stjórnmálaflokka og fleiri félagasamtaka utan ríkiskerfisins. Hvað sem því líður virðist mér ljóst að ótvíræð lagaheimild til þess að taka starfsmenn Sinfóníuhljómsveitarinnar í lífeyrissjóðinn er ekki fyrir hendi. Þessu verður ekki breytt án atbeina löggjafans.“
Þegar þetta álit lá fyrir beitti stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sér fyrir því að samin yrðu drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Í þeim frumvarpsdrögum var m.a. gert ráð fyrir að 4. gr. laganna yrði breytt í þá veru sem hér er lagt til. Ekki varð ágreiningur innan stjórnarinnar um þær breytingar. Jafnframt var lagt til að ýmsum öðrum ákvæðum laganna yrði breytt. Full samstaða náðist hins vegar ekki um þær breytingartillögur innan stjórnarinnar.
Þessi ágreiningur hafði það í för með sér að frumvarpsdrögin, sem stjórnin lét semja, voru aldrei færð í frumvarpsbúning.
Hins vegar voru ákvæði tekin úr þessum frumvarpsdrögum sem stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hafði látið semja og færð í frumvarpsbúning og þannig lögð fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89, að frumkvæði fjármálaráðherra.
Í greinargerð með því frumvarpi kemur fram að markmiðið með því sé m.a. „að færa til betri vegar ýmis ákvæði laganna sem sum hver eru orðin úrelt eða erfið í framkvæmd með því að þau eru óljós og órökrétt.
Verki þessu varð ekki að fullu lokið, m.a. vegna þess að ekki náðist full samstaða um öll þau atriði sem æskilegt þótti að breyta.
Þótt staðan sé enn óbreytt hvað málið í heild varðar er talin nauðsyn á að gera nú þegar breytingar á skilyrðum fyrir aðild að sjóðnum. Stafar það m.a. af því að eftir athugun lögfróðs aðila, er stjórn sjóðsins leitaði til, er talið að aðild starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands samrýmist ekki ákvæðum laganna. Breyti þá engu þótt þau kveði á um skylduaðild ríkisstarfsmanna og heimili aðild starfsmanna sveitarfélaga. Verður að telja eðlilegt að hið sama gildi um starfsmenn stofnana sem ríkið og sveitarfélög eiga að reka í sameiningu.“
Frumvarp þetta náði hins vegar aldrei fram að ganga í heild sinni, nánast dagaði uppi. Ákvæði 3. gr. frumvarpsins um breytingu á 4. gr. laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins fékk af þeim sökum ekki nægilega efnislega umfjöllun.
Starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands héldu hins vegar áfram að vinna að framgangi mála sinna með þeim afleiðingum að samþykkt voru á Alþingi vorið 1989 lög nr. 61/1989, um breytingu á lögum nr. 29/1963.
Í greinargerð með þeim lögum segir m.a. að fjárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar hafi haft til athugunar frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 29 29. apríl 1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Við umfjöllun nefndarinnar um málið kom í ljós að fulltrúar stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins höfðu ýmsar veigamiklar athugasemdir fram að færa við sum ákvæði frumvarpsins.
Einn þátt í frumvarpinu var þó nefndin og sjóðstjórnin sammála um að nauðsynlegt yrði að lögfesta. Sá þáttur varðaði Sinfóníuhljómsveit Íslands, en í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. orðrétt: „Starfsmenn hljómsveitarinnar hafa árum saman átt aðild að sjóðnum en á síðasta ári var lögð fram álitsgerð lögfróðs manns þess efnis að aðild starfsmanna Sinfóníuhljómsveitarinnar samrýmdist ekki ákvæðum laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Í álitsgerðinni kom fram að það breyti engu þótt lögin kveði á um skylduaðild ríkisstarfsmanna og heimili aðild starfsmanna sveitarfélaga. Verður að telja eðlilegt að hið sama gildi um starfsmenn stofnana sem ríkið og sveitarfélög eiga að reka í sameiningu. Nefndin telur því brýnt að lögfest verði ótvíræð heimild til handa sjóðstjórn að taka starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands í tölu sjóðfélaga. Í því skyni flytur nefndin frumvarp til laga þess efnis að sett verði bráðabirgðaákvæði um aðild starfsmanna Sinfóníuhljómsveitarinnar meðan lögin um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins eru í frekari athugun.“
Þó að fram komi í greinargerð með frumvarpinu að eðlilegt sé að starfsmenn stofnana, sem ríki og sveitarfélög reki í sameiningu, skuli eiga þess kost að gerast aðilar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins að fengnu samþykki sjóðstjórnar var slíkt ákvæði ekki lögfest.
Það hefur m.a. haft í för með sér að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hefur ákveðið að taka ekki við nýjum starfsmönnum Landsvirkjunar í sjóðinn og hefur aðild núverandi starfsmanna Landsvirkjunar, sem eru sjóðsmeðlimir, til athugunar, en þeir hafa margir hverjir átt aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins í allt að 25 ár og á þeim tíma hefur aldrei verið talið að vafi gæti leikið á um aðild þeirra að sjóðnum. Sömu sjónarmið eiga við um starfsmenn Orkubús Vestfjarða og Hitaveitu Suðurnesja, en stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hefur ákveðið að taka ekki við iðgjöldum nýrra starfsmanna frá og með 1. apríl 1990, en starfsmenn þessara fyrirtækja hafa verið aðilar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Með hliðsjón af ofansögðu er lagt hér til að 4. gr. laganna verði breytt í þá veru að heimild fáist til að veita starfsmönnum stofnana í sameign ríkis og sveitarfélaga aðild að sjóðnum. Telja verður óeðlilegt að heimild til aðildar starfsmanna og hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins byggist á bráðabirgðaákvæði. Því er lagt til að sú heimild verði jafnframt lögfest í 4. gr.