Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 386 . mál.
Ed.
981. Nefndarálit
um frv. til l. um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar um nokkurt skeið og sent það til umsagnar allra prófasta, Prestafélags Íslands og leikmannaráðs þjóðkirkjunnar. Auk þess bárust nefndinni ýmsar athugasemdir og ábendingar frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Fjórðungssambandi Norðlendinga, Árna Sigurðssyni, fulltrúa á kirkjuþingi, og sóknarnefndum Áss- og Breiðabólsstaðarprestakalla.
Nefndin leggur til að nokkrar breytingar verði gerðar á frumvarpinu.
Í kjölfar þróunar, sem orðið hefur í þjóðfélaginu, hafa nokkrum sinnum verið gerðar breytingar á lögum um skipan prestakalla og prófastsdæma á þessari öld. Þær breytingar hafa verið misjafnlega róttækar og alllangur tími liðið á milli þeirra. Með þessu frumvarpi er verið að gera slíkt einu sinni enn. Jafnframt er tekin upp í ríkari mæli en áður sú stefna að gera skipulag þjóðkirkjunnar í málefnum prestakalla og prófastsdæma sveigjanlegra. Er þá auðveldara fyrir safnaðarfólk, presta, biskup og ráðherra að gera æskilegar breytingar án þess að slíkt þurfi að gera með nýjum lögum. Með breytingartillögum nefndarinnar er þetta sjónarmið ítrekað enn frekar, að slíkar skipulagsbreytingar verði með undangengnu samkomulagi, en ekki samkvæmt valdboði frá Alþingi.
Við 1. gr. frumvarpsins er því lagt til að nokkur prestaköll verði ekki lögð af og gerðar tillögur um að færa til sóknir í nokkrum prestaköllum þannig að skipan þessara prestakalla verði óbreytt miðað við núgildandi lög. Í breytingartillögum við 1. gr. er líka lagt til að nöfn nokkurra prestakalla verði færð aftur í núverandi horf þar sem þau hafa unnið sér ríka hefð í huga fólks. Lögð er áhersla á með breytingartillögum við 4., 6., 21., 22. og 29. gr. frumvarpsins að nánara samstarf verði tekið upp milli presta og á þann hátt mótuð æskileg skipan. Lagt er til að 5. mgr. 8. gr. falli brott þar sem núverandi prestssetur hafa verið byggð með fjárveitingum úr ríkissjóði, enda er gert ráð fyrir að um leið verði prestum fjölgað annars staðar þar sem þarf þá að reisa nýtt hús. Lagt er til að lokaákvæði 42. gr. verði fellt brott þannig að fastbundið verði að vígslubiskupar sitji í Skálholti og á Hólum. Þá er að lokum lagt til að lögin öðlist gildi 1. júlí 1990.
Nefndin mælir með því að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 20. apríl 1990.
Jón Helgason,
form., frsm.
Guðmundur Ágústsson,
fundaskr.
Skúli Alexandersson.
Jóhann Einvarðsson.
Salome Þorkelsdóttir.
Ey. Kon. Jónsson.
Danfríður Skarphéðinsdóttir.