Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 49 . mál.
Sþ.
986. Breytingartillögur
við till. til þál. um aukin verkefni sveitarfélaga.
Frá félagsmálanefnd.
1. Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að kanna skipulega í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga hvernig best verði staðið að frekari tilfærslu á verkefnum og tekjustofnum frá ríkinu til sveitarfélaga og héraða.
2. Fyrirsögn till. verði: Till. til þál. um tilfærslu verkefna og tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga og héraða.