Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 362 . mál.
Nd.
1047. Nefndarálit
um frv. til l. um launasjóð stórmeistara í skák.
Frá menntamálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið um það umsagnir frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Jafnréttisráði og Tryggingastofnun ríkisins.
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Meginbreytingar á frumvarpinu eru þrjár. Í fyrsta lagi er sett inn ákvæði sem tryggja að ef kona er ekki í hópi stórmeistara skuli veita laun hverju sinni a.m.k. einni konu er náð hefur afburðaárangri í skák ef slík umsókn liggur fyrir. Í öðru lagi eru þau ákvæði, er tryggja aðild þeirra, er hljóta laun úr sjóðnum, að lífeyrissjóði opinberra starfsmanna gerð skýrari. Í þriðja lagi eru sett ákvæði um stjórn fyrir sjóðinn.
Alþingi, 25. apríl 1990.
Ragnar Arnalds,
form.
Birgir Ísl. Gunnarsson,
fundaskr.
Guðmundur G. Þórarinsson,
frsm.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Sólveig Pétursdóttir.
Þórhildur Þorleifsdóttir.
Ólafur Þ. Þórðarson.