Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 163 . mál.


Ed.

1053. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



1.    Við 3. gr. Greinin orðist svo:
         2. mgr. 6. gr. laganna orðist svo:
        6.2.     Ráðherra skipar héraðslækni í Reykjavík, í Norðurlandshéraði eystra og Reykjaneshéraði til fjögurra ára í senn. Ráðherra er heimilt að skipa héraðslækna til fjögurra ára í senn í öðrum héruðum sé það talið nauðsynlegt vegna umfangs héraðslæknisstarfsins. Skulu héraðslæknar samkvæmt áðurgreindu vera sérmenntaðir embættislæknar eða hafa jafngilda menntun til starfsins. Þar sem ekki eru skipaðir sérstakir héraðslæknar skipar ráðherra einn af starfandi heilsugæslulæknum héraðsins sem héraðslækni til fjögurra ára í senn.
        6.3.     Ráðherra skipar héraðshjúkrunarfræðing í Reykjavík, í Norðurlandshéraði eystra og Reykjaneshéraði til fjögurra ára í senn. Ráðherra er heimilt að skipa héraðshjúkrunarfræðinga til fjögurra ára í senn í öðrum héruðum sé það talið nauðsynlegt vegna umfangs starfsins. Þar sem ekki eru skipaðir sérstakir héraðshjúkrunarfræðingar er ráðherra heimilt að skipa einn af starfandi heilsugæsluhjúkrunarfræðingum héraðsins sem héraðshjúkrunarfræðing til fjögurra ára í senn.
2.    Við 4. gr. 1. málsl. 1. efnismgr. orðist svo: Heilbrigðismálaráð skal skipað héraðslækni, héraðshjúkrunarfræðingi og einum fulltrúa tilnefndum af stjórn hverrar heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss í héraðinu.
3.    Við 10. gr. Greinin orðist svo:
         2. mgr. 14. gr. laganna orðist svo:
        14.2.    Í Reykjavík skulu starfrækt fjögur heilsugæsluumdæmi sem hér segir:
            1.    Vesturbæjarumdæmi þar sem starfa þrjár heilsugæslustöðvar sem hér segir:
                1.1.    Garðastræti H2, starfssvæði: Sóleyjargata, Fríkirkjuvegur og Lækjargata að austan og Hringbraut til sjávar að sunnan.
                1.2.    Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg H2, starfssvæði: Sóleyjargata, Fríkirkjuvegur og Lækjargata að vestan, flugvöllur að sunnan og Snorrabraut að austan.
                1.3.    Drápuhlíð H2, starfssvæði: Hlíðahverfi, Norðurmýrar- og Túnahverfi sem markast af Snorrabraut og flugvallarsvæði að vestan og Kringlumýrarbraut að austan.
            2.     Miðbæjarumdæmi þar sem starfa þrjár heilsugæslustöðvar sem hér segir:
                2.1.    Laugarnes H2, starfssvæði: Kringlumýrarbraut að vestan, Miklabraut austan Kringlumýrarbrautar að sunnan, Grensásvegur, Holtavegur, Sunnuvegur, Laugarásvegur og Dalbraut að austan.
                2.2.    Borgarspítalinn H2, starfssvæði: Kringlumýrarbraut að vestan, Miklabraut austan Kringlumýrarbrautar að norðan, Breiðholtsbraut að austan og Kópavogur að sunnan.
                2.3.    Voga- og Heimahverfi H2, starfssvæði: Grensásvegur, Holtavegur, Sunnuvegur, Laugarásvegur og Dalbraut að vestan, Elliðaár að austan og Miklabraut að sunnan.
            3.     Austurbæjarumdæmi syðra þar sem starfa tvær heilsugæslustöðvar sem hér segir:
                3.1.    Breiðholt I og II H2, starfssvæði: Elliðaár að norðan, Reykjanesbraut að vestan, landamerki við Kópavog að sunnan og Arnarbakki að austan.
                3.2.    Breiðholt III H2, starfssvæði: Elliðaár að norðan og austan, Arnarbakki og Höfðabakki að vestan og Breiðholtsbraut að sunnan.
            4.     Austurbæjarumdæmi nyrðra þar sem starfa tvær heilsugæslustöðvar sem hér segir:
                4.1.    Árbær og Seláshverfi H2, starfssvæði: Grafarvogur að norðan, Elliðaár að vestan og sunnan og Lækjarbotnar að austan.
                4.2.    Grafarvogshverfi H2, starfssvæði: Grafarvogur að sunnan, landamerki Reykjavíkur og Mosfellsbæjar að austan.
                        Starfssvæði heilsugæslustöðvar á Seltjarnarnesi nær frá Hringbraut að norðan að flugvelli að austan.Þrátt fyrir skiptingu Reykjavíkur í heilsugæsluumdæmi geta íbúar borgarinnar jafnan valið sér heilsugæslulækni eða heimilislækni utan heilsugæslustöðva og leitað læknishjálpar sem þeir eiga auðveldast með að ná til hverju sinni.
4.    Við 15. gr. Greinin orðist svo:
            1. mgr. 17. gr. orðist svo:
                17.1.     Ráða skal sjúkraþjálfara til starfa við heilsugæslustöðvar H2. Í Reykjavík skal vera a.m.k. einn sjúkraþjálfari í hverju heilsugæsluumdæmi.
5.    Á eftir 15. gr. komi ný grein er orðist svo:
         Við 1. mgr. 18. gr. laganna bætast fjórir nýir málsliðir er orðist svo: Hvorugur aðili á kröfur á hinn um leigu vegna eignar eða eignarhluta. Meiri háttar viðhald og tækjakaup skulu teljast til stofnkostnaðar. Almennur viðhaldskostnaður fasteigna og tækja greiðist sem rekstrarkostnaður. Heilbrigðisráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um hvað telst til meiri háttar viðhalds.
6.    Við 16. gr. (er verði 17. gr.): Greinin orðist svo:
         Eftirtaldar breytingar verða á 20. gr. laganna:
    a.    Síðari málsliður 1. mgr. falli brott.
    b.     2. mgr. greinarinnar orðist svo:
            20.2.     Ráðherra setur gjaldskrá fyrir veitta þjónustu heilsugæslustöðva og skal hún vera í samræmi við hliðstæðar gjaldskrár samkvæmt lögum um almannatryggingar.
7.    Við 17. gr. (er verði 18. gr.). Greinin orðist svo:
             Í stað 2. mgr. 21. gr. laganna komi tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
                 21.2.     Þegar heilsugæslustöð er í starfstengslum við sjúkrahús fer stjórn þess, sbr. 30. gr., með málefni allrar stofnunarinnar. Læknaráð og starfsmannaráð skulu vera sameiginleg fyrir alla stofnunina. Séu fleiri en ein stöð í sama sveitarfélagi skulu þær vera undir einni sameiginlegri stjórn.
                21.3.     Stjórnir heilsugæsluumdæma í Reykjavík skulu skipaðar fimm mönnum. Einn stjórnarmanna skal skipaður af ráðherra og skal hann vera formaður; hann skal vera búsettur í umdæminu. Þrír skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu borgarstjórnar og einn samkvæmt tilnefningu starfsmanna heilsugæslustöðvanna í umdæminu. Ráðherra setur reglur um kjör fulltrúa starfsmanna. Í Reykjavík ráða stjórnir heilsugæslustöðva framkvæmdastjóra þeirra og hafa þeir sömu skyldur og framkvæmdastjórar sjúkrahúsa skv. 29. gr. Fer um mat á hæfni þeirra skv. 30. gr. Ráðherra setur reglugerð í samráði við héraðslækni um fyrirkomulag á samvinnu heilsugæslustöðva innan Reykjavíkurhéraðs. Þar skal m.a. kveðið á um ráðningu framkvæmdastjóra.
8.    Við 18. gr. (er verði 19. gr.). Greinin orðist svo:
             22. gr. laganna orðist svo:
                 22.1.     Stjórnir heilsugæslustöðva ráða starfslið stöðvanna og fer um laun þeirra samkvæmt kjarasamningum við hlutaðeigandi stéttarfélög.
9.    Við 20. gr. (er verði 21. gr.). 4. tölul. orðist svo:
                        4.     Hjúkrunarheimili. Vistheimili fyrir aldraða og sjúklinga sem búið er að sjúkdómsgreina, en þarfnast vistunar og meðferðar sem hægt er að veita utan almennra og sérhæfðra sjúkrahúsa.
10.    Við 22. gr. (er verði 23. gr.). Greinin orðist svo:
             Eftirtaldar breytingar verða á 30. gr. laganna:
        a.     2. mgr. orðist svo:
                30.2.     Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar skal skipuð fimm mönnum. Borgarstjórn Reykjavíkurborgar kýs þrjá fulltrúa í stjórnina og starfsmannaráð tvo.
        b.    Á eftir 2. mgr. bætast tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
                30.3.     Sjúkrahúsum (öðrum en þeim sem um getur í 1., 2. og 4. mgr. þessarar greinar) skal stjórnað af fimm manna stjórnum sem ráðherra skipar. Starfsmannaráð sjúkrahúsa tilnefna einn mann, hlutaðeigandi sveitarstjórn eða stjórnir þrjá og ráðherra einn og skal hann vera búsettur á starfssvæði sjúkrahússins; er hann jafnframt formaður stjórnarinnar.
                30.4.     Einkasjúkrahúsum og sjálfseignarstofnunum skal stjórnað af fimm manna stjórnum þar sem í eiga sæti þrír kosnir af eigendum, einn fulltrúi kosinn af starfsmannaráði og einn tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Stjórnir einkasjúkrahúsa og sjálfseignarstofnana skipta sjálfar með sér verkum.
        c.    Við greinina bætist ný málsgrein er verði 8. mgr. og orðist svo:
                   30.8.     Stjórnir sjúkrahúsa ráða starfslið sjúkrahúsanna og fer um laun þeirra samkvæmt kjarasamningum við hlutaðeigandi stéttarfélög.
11.    Við 23. gr. Greinin fellur brott.
12.    Við 24. gr. Greinin orðist svo:
             Eftirtaldar breytingar verða á 34. gr. laganna:
        a.    2. mgr. orðist svo:
                34.4.     Sveitarfélögum er skylt að taka þátt í framkvæmdum í samræmi við ákvörðun Alþingis um fjárveitingar á hverjum tíma. Ráðherra getur gert samkomulag við aðra aðila en þá sem falinn er rekstur heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum þessum um framkvæmdir eða rekstur heilbrigðisstofnana innan ramma áætlana 33. gr.
        b.    Við 3. mgr. bætast fjórir nýir málsliðir er orðist svo: Hvorugur aðili á kröfu á hinn um leigu fyrir eign eða eignarhluta. Meiri háttar viðhald og tækjakaup skal teljast til stofnkostnaðar. Almennur viðhaldskostnaður fasteigna og tækja greiðist sem rekstrarkostnaður. Heilbrigðisráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um hvað telst til meiri háttar viðhalds.
        c.    Síðari málsliður 4. mgr. falli brott.
13.    Við 25. gr. Greinin falli brott.
14.    Við 27. gr. Greinin falli brott.
15.    Við 29. gr. (er verði 27. gr.). Greinin orðist svo:
             Lög þessi öðlast þegar gildi. Þegar lögin hafa hlotið staðfestingu skal fella þau inn í meginmál laga nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt.
16.    Við ákvæði til bráðabirgða.
    a.     Í stað 1. og 2. tölul. komi nýr töluliður sem orðist svo:
             1.     Heilsuverndarstarf í Reykjavík samkvæmt lögum nr. 44/1955, sbr. lög nr. 28/1957, skal haldast óbreytt frá því sem er við gildistöku laga þessara þar til heilsugæslustöðvar hafa verið skipulagðar til þess að annast það en þó ekki lengur en til ársloka 1991. Ráðherra skal skipa þriggja manna stjórn Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík. Formaður skal skipaður án tilnefningar, einn skal skipaður samkvæmt tillögu Reykjavíkurborgar og einn samkvæmt tillögu tryggingaráðs. Stjórnin skal í umboði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra annast rekstur Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og í samráði við héraðslækni og stjórnir heilsugæsluumdæmanna í Reykjavíkurhéraði undirbúa að starfsemi stöðvarinnar leggist niður eigi síðar en 1. janúar 1992. Frá þeim tíma falla lög um heilsuverndarstarf, nr. 44/1955, sbr. lög nr. 28/1957, úr gildi.
        b.    3. tölul. (er verði 2. tölul.) orðist svo:
             2.    Stjórnir heilsugæslustöðva í Reykjavík, sbr. 21. gr., og stjórnir sjúkrahúsa, sbr. 30. gr., skulu kosnar eftir næstu reglulegar sveitarstjórnarkosningar en fram að þeim tíma skulu þær vera óbreyttar. Tilflutningur starfsmanna, annarra en starfsmanna Borgarspítala, einkasjúkrahúsa og sjálfseignarstofnana, fer fram þegar nýjar stjórnir hafa tekið við og skal lokið fyrir árslok 1990. Um réttindi þeirra starfsmanna fer samkvæmt lögum nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
        c.    4. tölul. fellur brott.