Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 192 . mál.
Sþ.
1103. Nefndarálit
um till. til þál. um heimild til handa forsetum Alþingis að gagna til samninga um kaup á Hótel Borg.
Frá meiri hl. fjárveitinganefndar.
Nefndin hefur haft tillöguna til meðferðar um nokkurt skeið. Hún fékk til viðræðna við sig um efni tillögunnar fulltrúa eigenda Hótel Borgar, fulltrúa borgarstjóra og skipulagsyfirvalda Reykjavíkurborgar, svo og núverandi rekstraraðila og hótelstjóra Hótel Borgar.
Í nefndinni voru mjög skiptar skoðanir um hvort rétt væri að Alþingi festi kaup á Hótel Borg og var ekki meiri hl. fyrir afgreiðslu tillögunnar eins og hún lá fyrir. Samkomulag var hins vegar gert um það í nefndinni að afgreiða málið nokkuð samhliða afgreiðslu fjáraukalaga fyrir árið 1990.
Afgreiðsla hefur nú farið fram í nefndinni. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að tillagan verði afgreidd með nokkrum breytingum, m.a. í ljósi þeirrar stöðu sem upp hefur komið. Meiri hl. flytur breytingatillögur sínar á sérstöku þingskjali og varða þær bæði efnisgrein tillögunnar og fyrirsögn hennar.
Alþingi, 28 apríl 1990.
Sighvatur Björgvinsson,
form., frsm.
Margrét Frímannsdóttir,
fundaskr.
Alexander Stefánsson.
Málmfríður Sigurðardóttir.
Ásgeir Hannes Eiríksson.
Ólafur Þ. Þórðarson.