Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 192 . mál.
Sþ.
1104. Breytingartillögur
við till. til þál. um heimild til handa forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg.
Frá meiri hl. fjárveitinganefndar (SighB, MF, AS, MálmS, ÁHE, ÓÞÞ).
1. Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að heimila forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup eða leigu á húsnæði fyrir Alþingi í næsta nágrenni við Alþingishúsið, eftir því sem hagkvæmara þykir.
Hafa skal samráð við fjárveitinganefnd um ákvarðanir.
Fyrirsögn tillögunnar verði: Till. til þál. um heimild til handa forsetum Alþingis til þess að kaupa eða leigja húsnæði fyrir Alþingi.