Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 192 . mál.
Sþ.
1118. Breytingartillögur
við till. til þál. um heimild til handa forsetum Alþingis að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg.
Frá minni hl. fjárveitinganefndar (PJ, EgJ, FÞ).
1. Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að fela forsetum Alþingis að kanna hvaða möguleikar eru til aukinnar hagkvæmni í húsnæðismálum Alþingis og skila um það skýrslu til formanna allra þingflokka á næsta haustþingi.
Í skýrslunni skal koma fram:
1. Möguleikar á leigu eða kaupum á húsnæði í grennd við Alþingishúsið.
2. Áætlun um kostnað í hverju tilviki fyrir sig.
3. Áætlun um nýtingu húsnæðis sem tekið kynni að vera á leigu eða keypt.
4. Hvað af núverandi húsnæði Alþingis megi láta af hendi.
2. Fyrirsögn till. verði: Till. til þál. um könnun á húsnæðismálum Alþingis.