Ferill 534. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 534 . mál.
Nd.
1129. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um atvinnuleysistryggingar, nr. 64/1981, með síðari breytingum.
Frá meiri hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og kom Dögg Pálsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, til viðræðna við nefndarmenn um efni frumvarpsins. Einnig barst umsögn um það frá Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna.
Í nefndinni hefur komið fram það sjónarmið að fella beri brott það skilyrði í lögunum að réttur til atvinnuleysisbóta sé háður félagsaðild að stéttarfélagi, sbr. 1. gr. frumvarpsins. Um þetta atriði er djúpstæður ágreiningur. Verkalýðshreyfingin leggur mikla áherslu á að þetta ákvæði haldist óbreytt. Því telur meiri hl. nefndarinnar ekki rétt að gera eða standa að tillögu sem byggist á slíku sjónarmiði.
Í skýrslu sérfræðinganefndar Evrópuráðsins um skýrslu Íslands um framkvæmd á ákvæðum í félagsmálasáttmála Evrópu á árunum 1986 og 1987 kemur fram gagnrýni á það fyrirkomulag að réttur til bóta úr atvinnuleysistryggingasjóði sé tengdur aðild að stéttarfélagi. Ágreiningur er þó innan embættismannanefndarinnar um túlkun sérfræðinganefndarinnar á 5. gr. sáttmálans. Hluti nefndarmanna (fulltrúar Bretlands, Danmerkur, Noregs, Íslands, Sambandslýðveldisins Þýskalands og Svíþjóðar) telja að túlka beri ákvæðið þröngt þannig að það taki ekki til réttarins til að standa utan félaga. Hinn hlutinn (Austurríki, Frakkland, Ítalía, Kípur, Malta og Spánn) eru sammála sérfræðinganefndinni. Fulltrúar Grikklands og Írlands hafa verið í vafa og setið hjá. Afleiðing þessa er að hvorug skoðunin hefur tilskilinn meiri hluti í embættismannanefndinni.
Svör og skýringar íslenskra stjórnvalda og Alþýðusambands Íslands á þessu fyrirkomulagi koma fram í skýrslu Íslands um framkvæmd sáttmálans á árunum 1988 og 1989 sem nú er unnið að. Í ljósi þess að álit sérfræðinganefndarinnar á skýringum íslenskra stjórnvalda liggur ekki fyrir fyrr en sumarið 1991 mælir meiri hl. nefndarinnar með því að réttur til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði verði áfram háður sömu skilyrðum og nú er krafist. Taki sérfræðinganefndin ekki tillit til skýringa íslenskra stjórnvalda og telji að óbreytt fyrirkomulag sé í andstöðu við félagsmálasáttmálann mælist meiri hl. nefndarinnar til þess að félagsmálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra beiti sér fyrir viðræðum milli aðila vinnumarkaðarins um þetta efni með hliðsjón af afstöðu Evrópuráðsins til skýringa íslenskra stjórnvalda.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við 1. gr. Í stað orðanna „þeirra félaga“ í fyrri málslið efnismálsgreinarinnar komi: í þeim stéttarfélögum.
Alþingi, 28. apríl 1990.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
form., frsm.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
Geir Gunnarsson.
Guðmundur G. Þórarinsson,
með fyrirvara.