Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 352 . mál.
Ed.
1130. Nefndarálit
um frv. til l. um stjórn fiskveiða.
Frá 5. minni hl. sjávarútvegsnefndar.
Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi 15. febrúar. Fyrsti fundur um það í sjávarútvegsnefnd deildarinnar var 23. febrúar.
14. mars var byrjað að ræða frumvarpið á sameiginlegum fundum beggja deilda og voru haldnir sjö sameiginlegir fundir. Á þeim fundum var fyrst og fremst rætt við svokallaða hagsmunaaðila sem flestir höfðu verið þátttakendur í ráðgjafarnefndinni er fjallaði um frumvarpið á undirbúningsstigi. 9. apríl var svo farið að skoða það í sjávarútvegsnefnd Ed. 12 fundir hafa verið haldnir í nefndinni. Frumvarpið var yfirfarið rækilega og nefndarmenn gerðu grein fyrir skoðunum sínum og flokka sinna á því. Greinilega kom í ljós að mikill ágreiningur var um efni þess innan nefndarinnar og einnig milli stjórnarliða innbyrðis.
Á öllum þessum fundum var aldrei gerð nein tilraun til að samræma sjónarmið innan nefndarinnar. Svo gerist það laugardaginn 21. apríl að boðaður er fundur með formönnum stjórnarflokkanna (fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra, umhverfisráðherra og sjávarútvegsráðherra) og stjórnarþingmönnum úr sjávarútvegsnefnd Ed. og áheyrnarfulltrúa Borgaraflokksins í nefndinni ásamt tveimur lögfræðingum úr sjávarútvegsráðuneyti.
Þessi fundur var það fyrsta sem gert var til að leiða saman fulltrúa stjórnarflokkanna til umfjöllunar og til þess að leita leiða til að samræma þær ólíku áherslur og skoðanir sem stjórnarflokkanir og þingmenn þeirra í nefndinni höfðu á frumvarpinu.
Frumvarpið var lagt fram sem stjórnarfrumvarp, en með fyrirvörum frá þingflokkum ríkisstjórnarinnar um það að á því þyrfti að gera veigamiklar breytingar.
Það eru ótrúleg vinnubrögð að það skuli vera látnir líða rúmir tveir mánuðir frá því er frv. var lagt fram á Alþingi þar til forustumenn stjórnarflokkanna fara að huga að samkomulagsleiðum innan
ríkisstjórnarflokkanna. Þá var aðeins ein vika eftir af fyrirhuguðum starfstíma Alþingis á þessu vori.
Ekki var það af því að ágreiningurinn leyndi sér.
Við afgreiðslu frumvarpsins úr ráðgjafarnefndinni 23. janúar lagði undirritaður fram bókun (sjá fylgiskjal I) eftir að hafa ráðfært sig við þingflokkinn. Sú bókun var um nauðsynlegar breytingar á því. Þingflokkur Alþýðubandalagsins gerði 12. febrúar samþykkt, sem send var ríkisstjórninni, þar sem enn voru ítrekuð áhersluatriði þau sem flokkurinn taldi að þyrftu að vera í væntanlegum lögum um fiskveiðistjórn. (Sjá fylgiskjal II).
Þá hafði Alþýðubandalagið staðfest samþykkt miðstjórnar flokksins frá 5. desember 1987, með nokkrum breytingum, á 9. landsfundi flokksins haustið 1989 (sjá fylgiskjal III).
Bókun undirritaðs í ráðgjafarnefndinni og samþykkt þingflokksins byggjast á þessari landsfundarsamþykkt Alþýðubandalagsins sem er í veigamiklum atriðum í miklu ósamræmi við þetta frumvarp.
Fiskveiðistefna Alþýðubandalagsins byggist á því að auðlindirnar innan fiskveiðilandhelgi Íslands eru þjóðareign, sameign allra Íslendinga. Veiðiheimildum verði úthlutað til byggðarlaga, veiðirétturinn verði þó eftir sem áður tengdur skipum.
Alþýðubandalagið leggur til að tveimur þriðju hlutum veiðiheimildanna verði úthlutað til byggðarlaga samkvæmt sérstakri reiknireglu. Í fyrsta lagi felur hún í sér að fjórðungur þessa nýja byggðakvóta yrði reiknaður út frá úthlutuðu afla- og sóknarmarki skipa í byggðarlögum eins og sú úthlutun var að meðaltali árið 1984–1986. Þrír fjórðu hlutar verði hins vegar reiknaðir út frá úthlutuðu afla- og sóknarmarki skipa í byggðarlögum í árslok 1987.
Í öðru lagi verði þriðjungi veiðiheimilda úthlutað til útgerðar á skip og skal sá hluti reiknaður með sama hætti og ákveðið var í reglugerð fyrir árið 1987. Eftir að byggðakvóti hefur verið reiknaður skal honum deilt á milli þeirra skipa sem fá kvóta úthlutað í viðkomandi byggðarlagi í hlutfalli við veiðiheimildir þeirra.
Við sölu skipa úr byggðarlaginu fylgir þeim einungis sá þriðjungur aflakvótans sem fór til útgerðarinnar. Tveir þriðju hlutar verða hins vegar áfram í byggðarlaginu og þeim endurúthlutað þar í sambandi við ákveðnar reglur. Hagur byggðarlaganna er þannig gerður að forgangsatriði.
Með því að binda veiðiheimildir við byggðarlög er verið að tryggja hag sjómanna og starfsfólksins í fiskiðnaði og allra íbúa þeirra byggðarlaga sem byggja afkomu sína á öruggri og skipulagðri nýtingu sjávarafla.
Þær reiknireglur sem Alþýðubandalagið leggur til að notaðar verði hafa einnig í för með sér að komið verði nokkuð til móts við þau byggðarlög sem tapað hafa mestum aflakvóta á undanförnum árum vegna ranglætisins í því kerfi sem ríkt hefur og enn er lagt til að gildi áfram.
Byggðakvótinn kemur auk þess í veg fyrir brask í tengslum við skipa- og kvótasölu sem þróast hefur í skjóli ríkjandi fiskveiðistefnu. Óeðlilegt verð á fiskiskipum mundi hverfa að mestu. Keppni milli byggðarlaga um kaup á skipum til að komast yfir afla mundi hætta og þannig yrði stuðlað að aukinni hagkvæmni í útgerð. Raunhæfara arðsemismat mundi gilda í viðhorfum til skipakaupa.
Fiskveiðistefna Alþýðubandalagsins opnar nýjar leiðir til þróunar og nýsköpunar og hvetur til bættrar meðferðar á afla og afurðum og til aukinnar framleiðni innan sjávarútvegsins, svo og að því að fiskistofnarnir verði nýttir með það fyrir augum að hámarksafrakstur fáist miðað við ákveðin tímabil.
Frumvarpið beinist til annarra átta. Þar er verið að festa í sessi ranglátt miðstýrt kerfi sem á undanförnum árum hefur ekki skilað þeim markmiðum sem því var ætlað að ná. Fiskveiðistjórn síðustu sex ára hefur brugðist hrapallega.
— Þorskstofninn hefur ekki styrkst.
— Fiskiskipaflotinn hefur ekki minnkað.
— Gæði hráefnis hafa ekki aukist.
— Kostnaður við útgerð hefur ekki minnkað.
— Sjávarbyggðirnar hafa ekki eflst.
Sjá töflu I og töflu II.
Það er meir en vafasöm aðgerð að ætla að framlengja slíkt kerfi. Kapp þeirra sem vilja viðhalda þessu mislukkaða stjórnkerfi er hins vegar svo mikið og málsvarar þess svo vel settir í stjórnsýslu og hagsmunakerfinu að lítil von er til þess að því verði breytt í höfuðatriðum þó að skoðanakönnun félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sýni að yfir 82% aðspurðra telji að stjórn fiskveiða eigi að tengjst byggðunum.
Undirritaður valdi því þann kostinn að mæla fyrir því að reyna að lagfæra núverandi aflamarkskerfi. Ýmsir þættir hafa verið nefndir hér.
Aðaltillögur undirritaðs um breytingar á frumvarpinu byggjast á tillögum og samþykktum Alþýðubandalagsins. Þær eru við 1. gr. frumvarpsins, 7. gr., um að 9. gr. breytist, við 16. gr. og að ákvæði til bráðabirgða VI falli niður (sjá fskj. IV).
Þá hefur undirritaður lagt til að í frumvarpinu komi ákvæði um svokallaðar „girðingar“ um framsal aflahlutdeildar milli skipa (sjá fskj. V).
Undirritaður lagði fram fyrir ráðherra og þingmenn stjórnarflokkanna í nefndinni tillögu um vinnslukvóta (sjá fylgiskjal VI). Þar er um að ræða útfærslu á tillögum Verkamannasambands Íslands og fulltrúa Félags Sambandsfiskframleiðenda og Jóhanns A. Jónssonar (sjá fskj. VII og VIII).
Undirritaður telur rétt að fram komi hverjar þær hugmyndir voru sem lagðar voru fyrir áðurnefndan fund sem haldinn var 21. apríl (sjá fskj. IX.) Þar er í engu komið til móts við tillögur Alþýðubandalagsins um tengingar aflaheimilda við byggðir né reynt að hamla gegn hinni óheftu sölu á aflaheimildum frá byggðarlögum. Einn fundur annar var haldinn með svipuðu sniði. Þá komu fram ákveðnar tillögur um sölu á veiðiheimildum og um að gera fyrirhugaðan úreldingarsjóð að stofnun sem kæmi til hjálpar byggðarlögum þegar afleiðingar fiskveiðistefnunnar færu að koma í ljós og byggðarlögin stæðu uppi án aflaheimilda.
Eftir þennan fund hefur umfjöllun um frumvarpið verið í höndum ráðherra stjórnarflokkanna.
Ýmislegt í bókunum fulltrúa Farmanna- og fiskimannasambands Íslands (fskj. X), Sjómannasambands Íslands (fskj. XI), Landssambands smábátaeigenda (fskj. XII) er í takt við breytingartillögur mínar þótt útfærsla sé á annan hátt.
Einnig kemur fram beinn stuðningur við tillögur undirritaðs í umsögnum sem nefndinni bárust frá Fjórðungssambandi Norðlendinga, (fskj. XIII), Vinnuveitendafélagi Vestfjarða (fskj. XIV), Verkalýðsfélaginu Baldri (fskj. XV), Vinnuveitendafélagi Breiðafjarðar (fskj. XVI), Útvegsmannafélagi Snæfellsness (fskj. XVII), ályktun frá aðalfundi Félags Sambandsfiskframleiðenda (fskj. XVIII), ályktun frá hreppsnefnd Presthólahrepps (fskj. XIX).
Nefndinni bárust ýmis gögn um sjávarútveg, m.a. skýrsla um færeyska útgerð (Upprit um fiskivinnuna, fskj. XX).
Sú niðurstaða, sem nú er studd af ríkisstjórninni bæði um afgreiðslu þessa frumvarps um stjórn fiskveiða og frumvarpsins um Úreldingarsjóð fiskiskipa, er í veigamiklum atriðum í beinni andstöðu við marga hagsmunaaðilda, t.d. Verkamannasamband Íslands og Félag Sambandsfiskframleiðenda. Sú tillaga Alþýðubandalagsins að tengja úthlutun aflaheimilda við byggðarlög er ekki tekin til greina.
Á síðstu dögum umfjöllunar í nefndinni voru svo lagðar fram tillögur um
samtengingu frumvarpsins um Úreldingarsjóð fiskiskipa við frumvarpið um stjórn fiskveiða. Takmörkuð umræða hefur átt sér stað um þær tillögur. Nauðsynlegt er að skoða þær tillögur miklu betur.
Greinilegt er einnig að stuðningur við meginefni beggja þessara frumvarpa minnkar stöðugt meðal almennings og hagsmunaaðila. Undirritaður telur því nauðsynlegt að endurskoða þessi frumvörp bæði frá grunni og að samráðsnefnd sú, sem skipuð var samkvæmt lögum nr. 3 8. janúar 1988, um stjórn fiskveiða 1988–1990, verði kölluð saman að nýju og skili áliti eigi síðar en 1. ágúst nk. Í framhaldi af því verði aukaþing kallað saman svo fljótt sem verða má til þess að afgreiða heildarlög um stjórn fiskveiða.
Alþingi, 30. apríl 1990.
Skúli Alexandersson.
TÖFLUR 1 OG 2 – Texti er ekki til tölvutækur.
Fylgiskjal I.
Bókun Skúla Alexanderssonar.
(23. janúar 1990.)
Í október sl. lagði vinnuhópur sem starfaði sl. sumar á vegum ráðgjafanefndarinnar fram tillögu í formi frumvarps.
Tillögur þessar hafa síðan verið til umfjöllunar í nefndinni.
Ekki hefur náðst allsherjarsamkomulag í nefndinni um ýmis atriði í frumvarpsdrögunum. Um önnur atriði virðist vera fullt samkomulag, t.d. um afnám sóknarmarksins, veiðitímabil verði ekki miðað við almanaksárið og að væntanleg lög verði ekki tímabundin.
Mínir fyrirvarar um frumvarpsdrögin nú við lokaafgreiðslu í nefndinni eru aðallega við eftirtaldar greinar:
9. gr. um skerðingu botnfisksaflamarks vegna sérveiða, 10. gr. um álag og vigtun á fiski sem fluttur er óunninn á erlendan markað, 11. gr. og síðar í frumvarpsdrögum um aflahlutdeild sem fylgir skipi við eigendaskipti og flutning milli byggða, sbr. tillögur Alþýðubandalagsins um sjávarútvegsstefnu og byggðakvóta, og við 17. og 18. gr. um eftirlit sjávarútvegsráðuneytisins með framkvæmd væntanlegra laga.
Ég mun fylgja [breytingartillögum] sem fram kunna að koma við frumvarpsdrögin við meðferð málsins á Alþingi og í ríkisstjórn telji ég þær til bóta.
Fylgiskjal II.
Tilkynning frá þingflokki Alþýðubandalagsins.
(12. febrúar 1990.)
Þingflokkur Alþýðubandalagsins tekur undir bókun Skúla Alexanderssonar í ráðgjafarnefnd um mótun fiskveiðistefnu varðandi tillögur að frumvarpi um fiskveiðistjórn.
Jafnframt vill þingflokkurinn benda sérstaklega á eftirfarandi atriði:
1. Að athugað verði hvort nauðsynlegt er að útfæra betur í lögunum það grundvallaratriði þeirra, sbr. 1. gr., að tímabundinn og takmarkaður afnotaréttur myndi aldrei einstaklingsbundna og stjórnarskrárvarða eign.
2. Að í lögunum verði ákvæði sem draga úr útflutningi á óunnum fiski.
3. Að gætt verði byggðasjónarmiða og vísast í því sambandi til stefnuyfirlýsingar sem samþykkt var á síðasta landsfundi flokksins.
4. Sett verði ákvæði í lögin sem girða fyrir röskun stærðarhlutfalla milli smábáta- og báta-, og báta- og togaraflota.
5. Þá telur þingflokkurinn að sjávarútvegsráðuneytið eigi hvorki að annast eftirlit með framkvæmd laganna né að úrskurða vegna brota á þeim.
Þingflokkurinn samþykkir að frumvarpsdrögin eins og þeim var skilað frá ráðgjafarnefndinni með fullum fyrirvörum og bókunum verði lagt fram á Alþingi.
Þingmenn Alþýðubandalagsins áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum og munu síðan meta afstöðu sína til samþykktar frumvarpsins á Alþingi þegar fyrir liggur við afgreiðslu málsins hverjar af athugasemdum þingflokksins ná fram að ganga.
Fylgiskjal III.
Fiskveiðistefna Alþýðubandalagsins.
1. Sjávarauðlindir eru sameign þjóðarinnar.
Fiskistofnarnir og aðrar sjávarauðlindir eru ævarandi sameign allra Íslendinga. Grundvallaratriði fiskveiðistjórnunar verður að vera hinn sameiginlegi eignarréttur þjóðarinnar á auðlindum hafsins.
2. Skipuleg stjórnun fiskveiða.
Sótt verði í fiskistofnana á skipulegan hátt í samræmi við sérfræðilegt mat á stærð þeirra og undir eftirliti óháðrar stofnunar. Markmið veiðistjórnunar verði:
a. að auka gæði afla og afurða,
b. að hámarksafrakstur fáist miðað við ákveðin tímabil,
c. að ofveiði eigi sér aldrei stað.
Forðast verði óhagkvæmnisáhrif fiskveiða og þess sérstaklega gætt við skipulag veiðanna að togurum verði ekki hleypt inn á hefðbundin fiskimið smábáta.
3. Byggðakvóti í stað rígbindingar við skip.
Í stað þess að binda kvóta alfarið við skip eins og gert hefur verið á undanförnum árum verði tekið upp nýtt kerfi þar sem veiðiheimildum á bolfiski verði skipt í tvo flokka:
Í fyrsta lagi skal 2 / 3 hlutum veiðiheimildanna úthlutað til byggðarlaga og skal fjórðungur þessa nýja byggðakvóta reiknaður út frá úthlutuðu afla- og sóknarmarki skipa í byggðarlögunum eins og sú úthlutun var að meðaltali árin 1984–1986 og 3 / 4 hlutar reiknaðir út frá úthlutuðu afla- og sóknarmarki skipa í byggðarlögum í árslok 1987.
Í öðru lagi skal 1 / 3 hluta veiðiheimilda úthlutað til útgerðar á skip og skal sá hluti reiknaður með sama hætti og ákveðið var í reglugerð fyrir árið 1987.
Eftir að byggðakvóti hefur verið reiknaður út skal honum deilt á milli þeirra skipa sem fá kvóta úthlutað í viðkomandi byggðarlagi í hlutfalli við veiðiheimildir þeirra.
Við sölu skipa úr byggðarlaginu fylgir þeim einungis sá hluti aflakvóta sem úthlutað var til útgerðar, ekki sá hluti sem fór til byggðarlagsins. Þeim hluta aflakvótans sem eftir verður í byggðarlaginu verði ráðstafað á nýjan leik í samræmi við ákveðnar reglur.
Með því að binda veiðiheimildir að verulegu leyti við byggðarlög er verið að tryggja hag starfsfólks í fiskiðnaði, fiskvinnslustöðva og allra íbúa þeirra byggðarlaga sem byggja afkomu sína á öruggri og skipulagðri nýtingu sjávarafla. Óeðlilegt verð á fiskiskipum og brask í tengslum við skipa- og kvótasölu ætti að mestu að hverfa úr sögunni. Einnig er leitast við með útreikningsaðferð á byggðakvótanum að koma nokkuð til móts við þau byggðarlög sem tapað hafa mestum aflakvóta á undanförnum árum.
Veiðiheimildir skulu einungis bundnar við aflamark.
Við úthlutun veiðiheimilda skal kvóta byggðarlags sjálfkrafa úthlutað til fiskiskipa í viðkomandi byggðarlagi samkvæmt reglugerð.
Séu skip tekin af skrá eða seld burt úr byggðarlagi skal sveitarstjórn úthluta byggðakvóta skipsins. Fyrstu tvö árin verði byggðakvóti lánaður útgerðum skipa, en verði eftir það bundinn við ákveðin skip í byggðarlaginu. Að öðru leyti er heimilaður frjáls flutningur kvóta milli skipa innan byggðarlags.
4. Opið og sveigjanlegt kerfi í stað hinnar lokuðu miðstýringar.
Nauðsynlegt er að skipulag fiskveiðistjórnunar hafi til að bera hæfilegan sveigjanleika til að það loki ekki á nýjungar og eðlilegar breytingar í útgerð og fiskvinnslu. Nýir rekstraraðilar verða að geta haslað sér völl við útgerð og fiskvinnslu. Það er hættulegt að rígbinda kerfið við þá sem gerðu út skip fyrir hálfum áratug síðan.
Jafnframt þarf kerfið að taka mið af breyttum aðstæðum í hinum ýmsu byggðarlögum og búa yfir getu til að leiðrétta hlut þeirra byggðarlaga sem sérstaklega eiga undir högg að sækja í atvinnumálum.
Einnig er nauðsynlegt að opna á næstu árum fyrir tilraunir með nýjar aðferðir til að ákveða veiðiheimildir og stýra sókninni í fiskstofnana.
Endurskoðunin og nýsköpunin þarf að vera byggð inn í kerfið en á undanförnum árum hefur allt verið læst í fastar og óbreytanlegar skorður.
Til að tryggja nauðsynlegan sveigjanleika og opnun kerfisins verði undirbúið að heimila í framtíðinni úthlutun á allt að 10% heildaraflans í því skyni:
— að tryggja aðgang nýrra rekstraraðila,
— að leiðrétta hag byggðarlaga sem hafa orðið illa úti,
— að gera tilraunir með nýjar stjórnunaraðferðir.
5. Veiðar smábáta.
Veiðiheimildir smábáta verði með svipuðu sniði og verið hefur. Jafnframt verði fjölgun smábáta stöðvuð.
6. Útflutningsgjald í þágu rannsóknarstarfsemi.
Ákveðið verði útflutningsgjald á fisk sem fluttur er út óunninn og komi það að einhverju eða öllu leyti í stað þeirra skerðingarákvæða sem í gildi hafa verið. Útflutningsgjaldið verði ákvarðað með hliðsjón af tollastefnu Evrópubandalagsins og annarra viðskiptalanda og verði því ráðstafað til rannsóknar- og þróunarstarfsemi á vegum Hafrannsóknastofnunar og fyrirtækja og samtaka innan sjávarútvegsins.
7. Veiðar á einstökum fiskstofnum.
Stefnt verði að því að innan fárra ára verði hægt að veiða 400–450 þús. tonn af þorski á ári. Fiskifræðingar telja að með réttri sókn í þorskstofninn á næstu árum sé slík veiði raunhæf miðað við jafna veiði og ekki verði sótt um of í ungfisk.
Veiði ýsu, karfa, ufsa og grálúðu verði stjórnað í tengslum við veiðistjórn á þorski.
Skipulag veiða á síld og loðnu verði áfram með svipuðu sniði og á undanförnum árum. Lögð verði áhersla á markaðsleit og stóraukna kynningu á síldarafurðum til að tryggja að sem stærstur hluti aflans úr vaxandi síldarstofni verði nýttur í góðar og verðmiklar manneldisvörur.
Aflamarki á úthafsrækju verði úthlutað jöfnum hlutum til skipa og vinnslustöðva með hliðsjón af aflareynslu skipanna og vinnslu stöðvanna undanfarin ár. Rækjumið og skelfiskmið innan fjarða og flóa verði nytjuð af íbúum viðkomandi strandsvæða.
Aukin verði veiði á ýmsum sjávardýrum og fiskum sem lítið hafa verið nýtt til þessa.
8. Kjör og starfsaðstaða fiskvinnslufólks og sjómanna.
Launakjör fiskvinnslufólks verði jafnan með þeim betri í þjóðfélaginu og leiðrétt verði þegar í stað það misrétti og ranglæti sem skapast hefur í launamálum fiskvinnslufólks í samanburði við aðrar starfsgreinar.
Starfsaðstaða fiskvinnslufólks og sjómanna verði til jafns við aðrar stéttir og helgidagavinna fiskvinnslufólks og sjómanna verði bönnuð.
9. Aukin gæði afla og afurða.
Til að tryggja aukin gæði sjávarafla og fiskafurða verði komið á nýrri skipan sem feli í sér:
— að allur fiskur sé settur í kassa og kör um borð í veiðiskipum,
— að sem stærstur hluti af afla verði slægður um borð í veiðiskipum,
— að allur afli verði nýttur: lifur, hrogn og fleira,
— að fiskmóttökur séu kældar,
— að umhverfi og ytra útlit fiskvinnslustöðva þoli samanburð við útlit og umhverfi banka, verslana og mjólkurvinnslustöðva,
— að vinnuaðstaða fiskvinnslufólks samræmist matvælaframleiðslu í besta gæðaflokki.
10. Eðlileg byggðaþróun.
Til að tryggja búsetu um allt land og eðlilega byggðaþróun verði þess gætt við stjórnun fiskveiða:
— að hvert svæði njóti aðstöðu vegna nálægðar við fiskimið,
— að núverandi útgerð og fiskvinnslu verði tryggður réttur á heimaslóð.
Samþykkt á fundi miðstjórnar 5. desember 1987 og staðfest með breytingum á 9. landsfundi Alþýðubandalagsins 1989.
Fylgiskjal IV.
Breytingartillögur
við frv. til laga um stjórn fiskveiða.
Frá Skúla Alexanderssyni.
1. Við 1. gr.
Við greinina bætist nýr málsliður er orðist svo: Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
2. Við 7. gr.
Orðin „sbr. þó ákvæði 9. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. falli niður.
3. Við 9. gr.
Greinin orðist svo:
Sé skip selt úr byggðarlagi fylgir því þriðjungur aflahlutdeildar þess en tveir þriðju hlutar aflahlutdeildar verða eftir í því sveitarfélagi sem skipið var selt frá. Skal sveitarstjórn úthluta útgerðum annarra skipa í byggðarlaginu árlega því aflamarki sem eftir varð í tvö fiskveiðiár eða veiðitímabil eftir söluna. Eftir þann tíma skal sveitarstjórn úthluta aflahlutdeild hins selda skips varanlega öðru skipi eða öðrum skipum í byggðarlaginu. Ráðherra skal með reglugerð ákveða hvaða reglur skuli gilda um úthlutun sveitarstjórnar á aflahlutdeild eða aflamarki samkvæmt þessari grein.
4. Við 16. gr.
Í stað 1. mgr. komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
Allur afli þar á meðal sá afli, sem fluttur er óunninn úr landi, skal veginn á löndunarstað. Hafnaryfirvöld á hverjum löndunarstað skulu hafa umsjón með vigtun afla og söfnun upplýsinga um landaðan afla.
Sigli skip með eigin afla til sölu erlendis er heimilt að víkja frá ávæði 1. mgr. um vigtun innan lands enda sé fullnægt kröfum ráðuneytisins um vigtun við löndun eða sölu afla erlendis.
5. Ákvæði til bráðabirgða VI falli niður.
Fylgiskjal V.
Breytingartillaga
við frv. til laga um stjórn fiskveiða (girðingar).
Frá Skúla Alexanderssyni.
Aftan við 1. málsl. 4. gr. 11. gr. frumvarpsins komi tveir nýir málsliðir er orðist svo: Óheimilt er þó að framselja aflahlutdeild milli skipa sem ekki tilheyra sama flokki. Þó er heimilt að framselja aflahlutdeild frá stærra skipi til minna skips. Í þessu sambandi skal skipum sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni skipt upp í eftirtalda fjóra flokka: Bátar undir 30 brl., bátar 30 brl. og stærri, togarar aðrir en þeir sem frysta afla um borð og frystitogarar.
Fylgiskjal VI.
Minnisatriði
varðandi hugmyndir að breytingum
á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða.
Frá Skúla Alexanderssyni.
7. gr. orðist svo:
Veiðar á þeim tegundum sjávardýra sem ekki sæta takmörkun á leyfilegum heildarafla skv. 3. gr. eru frjálsar öllum þeim skipum sem leyfi fá til veiða í atvinnuskyni skv. 4. gr. með þeim takmörkunum sem leiðir af almennum reglum um veiðisvæði, veiðarfæri, veiðitíma og reglum settum skv. 2. mgr. 4. gr.
60% veiðiheimilda skal úthluta til einstakra skipa. Nefnist það aflahlutdeild skips.
40% veiðiheimilda skal úthlutað til einstakra fiskvinnslustöðva. Nefnist það aflahlutdeild vinnslustöðva. Aflahlutdeild helst óbreytt milli ára.
Aflahlutdeild vinnslustöðva er fundin þannig að lagður er saman afli allra vinnsustöðva, sem móttekin var til vinnslu árin 1987, 1988 og 1989. Síðan er mótteknum afla einstakra fiskvinnslustöðva í þessi þrjú ár deilt upp í heildartöluna.
Nú hefur fiskvinnslustöð hætt starfsemi sinni fyrir árslok 1989 og skal þá reiknuð aflahlutdeild hennar fyrir árin 1987 og/eða 1988 og 1989 bætast við aflahlutdeild þeirra fiskvinnslustöðva sem eftir eru í byggðarlaginu.
Hafi fiskvinnslustöð orðið gjaldþrota á árunum 1988/1989 og sé starfsemi hafin í nýju fyrirtæki innan árs frá gildistöku laga þessara, í fyrri húsakynnum hennar og með vélbúnaði hennar, má úthluta nýja fyrirtækinu útreiknaða aflahlutdeild þeirrar stöðvar sem varð gjaldþrota.
Nú hættir fiskvinnslustöð starfsemi sinni og er henni þá heimilt að framselja aflahlutdeild sína varanlega til annarra fiskvinnslustöðva í byggðarlaginu fyrir lok fiskveiðiárs. Að þeim tíma liðnum fellur réttur til
aflahlutdeildar niður. Nú hefur fiskvinnslustöð orðið gjaldþrota og skal þá nýtt fyrirtæki, sem tekur til starfa í húsakynnum og með vélbúnaði hennar innan tveggja ára frá gjaldþroti, eiga rétt á aflahlutdeild hennar.
Fiskvinnslustöð er heimilt að afhenda aflahlutdeild sína til árs í senn, einu eða fleiri fiskiskipum, og er henni skylt að tilkynna sjávarútvegsráðuneytinu um afhendingu jafnóðum og hún fer fram og fá viðurkenningu fyrir. Ekki er heimilt að afhenda fiskiskipi aflahlutdeild nema til veiða fyrir viðkomandi fiskvinnslustöð. Afhenda má aflahlutdeild fiskiskipi sem landar afla sínum á fiskmarkað, samkvæmt sérstökum samningi um viðskipti fiskvinnslustöðvarinnar við fiskmarkaðinn.
Fiskvinnslustöðvar í sama byggðarlagi geta sameinað aflahlutdeild sína varanlega.
Við ákvörðun hlutdeildar einstakra skipa og vinnslustöðva í botnfiskafla skal árlega áætla þann afla sem er utan aflamarks á grundvelli heimilda í 1. málsl. 6. mgr. 10. gr.
Aflaheimild skipa og aflahlutdeild vinnslustöðva á hverju veiðitímabili eða vertíð ræðst af leyfðum heildarafla viðkomandi tegundar og hlutdeild þeirra í þeim heildarafla skv. 2. mgr. Skal sjávarútvegsráðuneytið senda sérstaka tilkynningu vegna hvers skips og vinnslustöðva um aflahlutdeild þeirra í upphafi veiðitímabils eða vertíðar.
Fylgiskjal VII.
Sérálit Verkamannasambands Íslands á drögum
að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða.
(26. janúar 1990.)
Með drögum þeim að lögum um stjórn fiskveiða, sem meiri hluti ráðgjafarnefndar um mótun fiskveiðistefnu virðist hafa komið sér saman um, er ljóst að verið er að lögfesta um ófyrirséða framtíð eignarhald útgerðar á þessari þýðingarmestu auðlind þjóðarinnar.
Það er einnig deginum ljósara að nái frumvarpið fram að ganga í óbreyttri mynd, verða aflaheimildir komnar á hendur örfárra fjársterkra útgerðaraðila innan fárra ára. Fyrir sjómenn mun það þýða gífurlegan mismun á tekjum og fyrir fiskvinnslufólk atvinnumissi og byggðarröskun í meira mæli en áður hefur þekkst.
Verkamannasamband Íslands telur að verði drög þessi að lögum hafi ráðgjafarnefndin með öllu misst sjónar á upphaflegum tilgangi laganna eins og hann kemur fram í 1. gr., að nytjastofnarnir séu eign þjóðarinnar allrar og sem nýta beri af hagkvæmni og tryggja með því atvinnu og byggð í landinu.
Því leggur Verkamannasamband Íslands til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:
2. mgr. 7. gr. orðist svo: 70% veiðiheimilda á þeim tegundum, sem heildarafli er takmarkaður af á hverjum tíma, skal úthlutað til einstakra skipa. Nefnist það aflahlutdeild skips.
Gerðar verði breytingar á frumvarpinu sem þörf er á til samræmis við þetta.
Ákvæði um fiskvinnslukvóta
sem felld verði inn í viðeigandi greinar frumvarpsins.
(26. janúar 1990.)
1. 30% veiðiheimilda á þeim tegundum, sem heildarafli er takmarkaður af á hverjum tíma, skal úthlutað til einstakra fiskvinnslustöðva. Nefnist það aflahlutdeild vinnslustöðva. Aflahlutdeild vinnslustöðvar skal einungis ráðstafa til vinnslu í viðkomandi fiskvinnslustöð, sbr. þó 4. gr.
2. Aflahlutdeild vinnslustöðva er fundin þannig að lagður er saman allur afli vinnslustöðva sem móttekinn var til vinnslu árin 1987, 1988 og 1989. Síðan er mótteknum afla einstakra fiskvinnslustöðva í þessi þrjú ár deilt upp í heildartöluna.
3. Nú hefur fiskvinnslustöð hætt starfsemi sinni án gjaldþrots fyrir árslok 1988 og skal þá reiknuð aflahlutdeild hennar fyrir árin 1987 og/eða 1988 bætast við aflahlutdeild þeirra fiskvinnslustöðva sem eftir eru í byggðarlaginu.
4. Ekki er vinnslustöð heimilt að selja eða fénýta aflahlutdeild sína á annan hátt en getið er um í 1. gr., en skipti á afla á jöfnu mega fara fram milli fiskvinnslustöðva í samráði við eða með vitneskju ráðuneytis.
5. Nú hættir fiskvinnslustöð starfsemi sinni og skal þá aflahlutdeild hennar renna til fiskvinnslustöðva sem fyrir eru í byggðarlaginu eftir sömu reglum og um getur í 2. gr. í samráði við ráðuneytið.
6. Verði fiskvinnslufyrirtæki gjaldþrota og nýtt fyrirtæki hefur rekstur með húsakosti og tækjum hins gjaldþrota fyrirtækis innan tveggja ára skal hið nýja fyrirtæki fá úthlutað aflahlutdeild þess fyrirtækis er gjaldþrota varð.
7. Leggist fiskvinnsla niður í byggðarlagi skal aflahlutdeild þess eða þeirra fiskvinnslustöðva, er hættu rekstri, skiptast milli fiskvinnslustöðva í viðkomandi landsfjórðungi eftir sömu reglum og um getur í 2. gr.
8. Heimildir til að flytja aflamark á milli fiskveiðiára skulu vera þær sömu hjá fiskvinnslustöðvum og um getur í 10. gr. laganna.
Verkamannasambandið telur að koma beri í veg fyrir sölu á óveiddum afla nema í sérstökum undantekningartilfellum og bendir á að þær hömlur á slíkri sölu, sem fram koma í tillögum Farmanna- og fiskimannasambands Íslands um breytingar á 11. og 12. gr. laganna, væru rétt spor í þá átt.
Einnig gerir VMSÍ að tillögu sinni að í 16. gr. komi ný málsgrein á eftir 1. mgr. er hljóði svo: „Öllum fiski, sem fluttur er út í gámum, fylgi vigtarvottorð er tilgreini þyngd og fjölda tegunda í hverjum gámi.“
Rökin fyrir því að bæta þessari málsgrein inn eru ærin. Eins og fram kom í umræðum í nefndinni fullyrti undirritaður að beitt væri skipulögðum þjófnaði á vog á erlendum fiskmörkuðum og virðast íslenskir seljendur sætta sig við 10% „rýrnun“. Upplýsingar, sem ráðuneytið hafði undir höndum, sýndu „rýrnun“ allt frá 4% í 27%.
Það má furðu gegna að hvorki seljendur né stjórnvöld virðast hafa gert minnstu tilraun til að leiðrétta það ranglæti, en fyrsta skrefið til að koma kvörtunum á framfæri er að hafa í höndunum staðfestingu á því að menn viti með nokkurri nákvæmni hvað þeir eru að senda frá sér.
Einnig vill VMSÍ benda á að óhóflegur útflutningur á óunnum fiski hefur þegar valdið umtalsverðu atvinnuleysi fiskvinnslufólks víðs vegar um land og telur Verkamannasambandið það ekki í anda laganna um fiskveiðistefnu að byggja upp atvinnulíf á Humber-svæðinu og í Norður-Þýskalandi meðan „eigendur“ auðlindarinnar ganga um atvinnulausir.
Því leggur VMSÍ til að allur fiskur, sem fluttur er út óunninn en veginn hér á landi, taki á sig 15% álag, sbr. síðustu málsgrein 10. gr., en sé slíkur fiskur fluttur út óveginn taki hann á sig 25% álag.
Jón Kjartansson.
Fylgiskjal VIII.
Bókun Félags Sambandsfiskframleiðenda.
Undirritaður leggur fram svofellda bókun:
1. Ég mælist til þess að tillaga okkar Jóhanns A. Jónssonar, ásamt greinargerð sem lögð var fram á fundi nefndarinnar 11. desember 1989, verði lögð fram sem fylgiskjal II með þeim drögum að frumvarpi til laga sem hér liggja fyrir.
2. Margt hefur áunnist í starfi ráðgjafarnefndarinnar, t.d. a) að samkomulag hefur orðið um eina aðferð við úthlutun veiðiréttinda; b) að lög um fiskveiðistjórnun verði ótímabundin, en það gerir framkvæmd þeirra markvissari; c) að framsal veiðiréttinda verði með þeim hætti að líklegt er að fullt samræmi verði innan tíðar milli veiðigetu fiskiskipaflotans og þess afla sem ráðlegt verður að taka í hverjum tíma; d) að fiskveiðiárið verði frá september til ágúst.
3. Hins vegar skortir mjög á það jafnræði sem verður að vera milli greina innan sjávarútvegsins, svo mjög að ekki verður við unað þar sem fiskvinnsla og fiskvinnslufólk hefur nánast engin spil á hendi í samskiptum við útgerðina. Í öðru lagi er hvergi neitt að finna sem getur hamlað gegn hraðri og skipulagslausri röskun byggða. Þetta hvort tveggja leiðir líklega til þess, verði frumvarp byggt á þessum drögum að lögum, að framkvæmdarvaldið, einstakar stofnanir þjóðfélagsins og þingmenn einstakra kjördæma verði stöðugt að grípa inn í atburðarásina til þess að forða fólki frá atvinnu- og eignamissi.
Með fyrirvara um þessa veigamiklu annmarka og í trausti þess, að úr verði bætt annaðhvort áður en frumvarpsdrögin verða lögð fyrir Alþingi eða í meðförum þingsins, skrifa ég undir frumvarpsdrögin.
Reykjavík, 26. janúar 1990.
Árni Benediktsson.
Breytingartillögur við frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
lagðar fram af Jóhanni A. Jónssyni og Árna Benediktssyni.
7. gr. breytist.
Önnur málsgrein hefjist þannig: „70% veiðiheimilda á þeim tegundum, sem heildarafli er takmarkaður af á hverjum tíma, skal úthlutað til einstakra skipa. Nefnist það aflahlutdeild skips ... “
Gerðar verði þær breytingar á frumvarpinu, sem þörf er á til samræmis við þetta.
Ákvæði um fiskvinnslukvóta
sem verði felld inn í viðeigandi greinar frumvarpsins.
„30% veiðiheimilda á þeim tegundum, sem heildarafli er takmarkaður af á hverjum tíma, skal úthlutað til einstakra fiskvinnslustöðva. Nefnist það aflahlutdeild vinnslustöðva.“
„Aflahlutdeild vinnslustöðva er fundin þannig að lagður er saman afli allra vinnslustöðva sem móttekin, var til vinnslu árin 1987, 1988 og 1989. Síðan er mótteknum afla einstakra fiskvinnslustöðva í þessi þrjú ár deilt upp í heildartöluna.“
„Nú hefur fiskvinnslustöð hætt starfsemi sinni án gjaldþrots fyrir árslok 1988 og skal þá reiknuð aflahlutdeild hennar fyrir árin 1987 og/eða 1988 bætast við aflahlutdeild þeirra fiskvinnslustöðva sem eftir eru í byggðarlaginu.“
„Hafi fiskvinnslustöð orðið gjaldþrota á árunum 1988–1989 og sé starfsemi hafin í nýju fyrirtæki innan árs frá gildistöku laga þessara í fyrri húsakynnum hennar og með vélbúnaði hennar má úthluta nýja fyrirtækinu útreiknaða aflahlutdeild þeirrar stöðvar sem varð gjaldþrota.“
„Nú hættir fiskvinnslustöð starfsemi sinni og er henni þá heimilt að framselja aflahlutdeild sína varanlega til annarra fiskvinnslustöðva fyrir lok fiskveiðiárs. Að þeim tíma liðnum fellur réttur til aflahlutdeildar niður. Nú hefur fiskvinnslustöð orðið gjaldþrota og skal þá nýtt fyrirtæki, sem tekur til starfa í húsakynnum og með vélbúnaði hennar innan tveggja ára frá gjaldþroti, eiga rétt á aflahlutdeild hennar.“
„Fiskvinnslustöð er heimilt að afhenda aflahlutdeild sína til árs í senn, einu eða fleiri fiskiskipum, og er henni skylt að tilkynna sjávarútvegsráðuneytinu um afhendingu jafnóðum og hún fer fram og fá viðurkenningu fyrir. Ekki er heimilt að afhenda fiskiskipi aflahlutdeild nema til veiða fyrir viðkomandi fiskvinnslustöð. Afhenda má aflahlutdeild fiskiskipi, sem landar afla sínum á fiskmarkað, samkvæmt sérstökum samningi um viðskipti fiskvinnslustöðvarinnar við fiskmarkaðinn.“
„Fiskvinnslustöðvar geta sameinað aflahlutdeild sína varanlega og einnig má framselja aflahlutdeild öðrum fiskvinnslustöðvum varanlega. Sé fyrirhugað að framselja aflahlutdeild til annars byggðarlags hefur fiskvinnslustöð eða fiskvinnslustöðvar í byggðarlaginu forkaupsrétt. Sé fyrirhugað að sameina fiskvinnslustöð fyrirtæki í öðru byggðarlagi er skylt að bjóða fiskvinnslustöðvum í byggðarlaginu aflahlutdeildina á gangverði.“
„Heimilt er að flytja allt að 20% af aflamarki hverrar botnfisktegundar og aflamarki úthafsrækju frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Á sama hátt er heimilt að flytja allt að 10% af aflamarki humars og síldar frá einu veiðitímabili til þess næsta.“
Bókun Jóhanns A. Jónssonar.
(25. janúar 1990.)
Fyrsta grein í drögum að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða hljóðar svo:
„Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“
Í erindisbréfi nefndarinnar er eftirfarandi tekið fram:
„Nefndin skal m.a. kanna áhrif laganna á afkomu og hagkvæmni í sjávarútvegi og skynsamlega nýtingu fiskstofna. Einnig skal hún athuga tilhögun veiðiheimilda, m.a. heimilda sem ekki eru bundin við skip.“
Undirritaður álítur að lagafrumvarpið fullnægi ekki ofangreindum markmiðum.
Afleiðing þeirrar stefnu, sem í frumvarpsdrögunum felst, mun skapa stjórnvöldum mikla erfiðleika og leiðir af sér fólksflutninga samfara eignatjóni og félagslegum hörmungum.
Ég vísa til tillagna um fiskvinnslukvóta og umræðna um byggðakvóta sem fram fóru í nefndinni.
Þrátt fyrir góðan vilja margra nefndarmanna hefur nefndin ekki borið gæfu til að vinna störf sín í samræmi við erindisbréf og yfirlýst markmið draganna eins og kemur fram í fyrstu grein þeirra.
Samkvæmt ofanrituðu get ég ekki samþykkt frumvarpsdrögin eins og þau liggja fyrir og tekið þannig ábyrgð á þeim afleiðingum sem þau munu skapa þjóðinni allri og þó sérstaklega landsbyggðinni sem byggir mest alla afkomu sína á sjávarútvegi.
Fylgiskjal IX.
Stjórn fiskveiða.
Hugmyndir til að samræma sjónarmið, drög lögð fram á fundi til kynningar.
(21. apríl 1990.)
1. Byggðamál og leiga veiðiheimilda. Fram hafa komið sjónarmið um að enda þótt nauðsynlegt sé að tryggja möguleika á þróun í útgerð og fiskvinnslu, ber að taka í meira mæli en gert hefur verið tillit til hagsmuna einstakra útgerðarstaða sem af einhverjum ástæðum standa höllum fæti. Í frumvarpinu er komið til móts við þessi sjónarmið með því að kveða á um tilkynningarskyldu við sölu á skipi eða veiðiheimildum. Hugmyndir um forkaupsrétt við sölu skips úr byggðarlagi virðast ekki geta náð tilgangi sínum vegna þess hversu auðvelt er að sniðganga þær. Sama á við um hugmyndir um að ákveðinn hluti veiðiheimilda verði eftir við sölu skips úr byggðarlagi. Lagt er til að Úreldingarsjóður verði efldur og honum ætlað stærra hlutverk en gert er í því frumvarpi sem nú er til umfjöllunar í Ed., m.a. varðandi byggðamál. Sjóðnum verði árlega fengnar til ráðstöfunar aflaheimildir er nema helmingi þeirra aflaheimilda sem ekki nýttust árið á undan vegna skerðingar á aflamarki við ísfiskútflutning. Verði verulegt atvinnuleysi í byggðarlagi vegna sölu fiskiskipa milli útgerðarstaða er stjórn sjóðsins að fenginni umsögn stjórnar Byggðastofnunar heimilt að bjóða til leigu hluta þessara veiðiheimilda gegn því skilyrði að aflanum verði landað til vinnslu á viðkomandi stað. Er í þessum tilvikum heimilt að víkja frá ákvæðum 7. gr. frumvarpsins um Úreldingarsjóð varðandi verðlagningu veiðiheimilda sé þess þörf. Þær aflaheimildir, sem ekki verður ráðstafað til að mæta staðbundnum vandamálum með ofangreindum hætti, skal stjórn sjóðsins leigja hæstbjóðanda samkvæmt reglum 2. mgr. 7. gr. Úreldingarsjóðsfrumvarpsins. Þessar ráðstafanir verða gerðar með breytingum á frumvarpi til laga um Úreldingarsjóð fiskiskipa.
2. Tómstundaveiðileyfi. Lagt er til að skilyrðum frumvarpsins til að fá leyfi til fiskveiða í atvinnuskyni verði haldið óbreyttum sem og skilgreiningu á veiðum í atvinnuskyni og tómstundaveiðum en niður verði fellt ákvæðið um að sérstakt leyfi þurfi til að stunda tómstundaveiðar.
3. Framkvæmd. Þær miklu breytingar sem orðið hafa á útgerðarháttum og stjórn fiskveiða á undanförnum árum hafa stóraukið þau verkefni sem stjórnsýslunni er falið að leysa á sviði upplýsingaöflunar og úrvinnslu eftirlits og stjórnunar. Þessi verkefni hafa verið leyst af þeim stofnunum sem fyrir voru án verulegra breytinga á mannafla eða tilkostnaði. Enda þótt þessi lausn hafi verið skynsamleg og sé tvímælalaust ódýrust er ljóst að æskilegt er að gera ýmsar endurbætur á skipulagi stjórnsýslu á sjávarútvegssviðinu. Hins vegar hafa allar slíkar breytingar óhjákvæmilega nokkurn kostnaðarauka í för með sér. Í tengslum við umfjöllun um frumvarp um stjórn fiskveiða hafa einkum þrjár hugmyndir í þessu efni verið ræddar.
a. Að sett verði á fót sérstök stofnun er annist m.a. útgáfu veiðileyfa, öflun og skráningu upplýsinga, almennt veiðieftirlit og úrskurði um upptöku ólöglegs sjávarafla. Stofnun þessi (Fiskveiðistofnun) taki við hlutverki veiðieftirlits sjávarútvegsráðuneytisins, hluta af öðrum verkefnum ráðuneytisins, skýrslusöfnun og úrvinnslu Fiskifélags Íslands, rekstri tölvumiðstöðvar Hafrannsóknastofnunar og skráningu og vinnslu ýmissa gagna er nú á sér stað á Hafrannsóknastofnun. Störf við stofnunina yrðu nálægt 35–40. Frá ráðuneyti flyttust 2–4 starfsmenn og 21 veiðieftirlitsmaður, frá Fiskifélagi flyttust 3–5 starfsmenn og frá Hafrannsóknastofnun 2–4 starfsmenn. Bæta þyrfti við 5–10 nýjum stöðugildum. Sé talið rétt að fara þessa leið má kveða á um það í III. kafla frumvarpsins um stjórn fiskveiða.
b. Að endurskoða í heild lögin um upptöku ólötmæts sjávarafla. Slík endurskoðun er nokkuð tímafrek og því óraunhæft að ætla að afgreiða ný lagaákvæði um þetta efni í heild sinni á þessu þingi. Í tengslum við afgreiðslu frumvarpsins um stjórn fiskveiða gæti sjávarútvegsráðherra hins vegar lýst því yfir að frumvarp um þetta efni verði lagt fyrir Alþingi þegar á næsta hausti.
c. Að kveða á um að úrskurðir um upptöku á ólögmætum sjávarafla skuli uppkveðnir af þriggja manna nefnd er sjávarútvegsráðherra skipi og að úrskurðir nefndarinnar séu fullnaðarúrskurðir innan stjórnsýslukerfisins. Sjávarútvegsráðuneytið annist áfram eftirlit og geri kröfur um upptöku til nefndarinnar. Ákvæði um slíka nefnd mætti hugsanlega stinga inn í III. eða IV. kafla frumvarpsins um stjórn fiskveiða enda þótt slík lagasmíð sé óneitanlega mjög klúðursleg.
4. Framsal aflaheimilda. Lagt er til að framsal aflaheimilda verði háð því skilyrði að það fiskiskip sem framselt er til hafi fyrir aflahlutdeild af þeirri tegund sem framseld er. Ráðherra verði heimilt að víkja frá þessu skilyrði að fenginni umsögn samráðsnefndar.
5. Hagkvæmnisathugun. Lagt er til að við frumvarpið verði bætt ákvæði til bráðabirgða þar sem sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands verði falið að gera úttekt á mismunandi kostum við stjórn fiskveiða og hagkvæmni þeirra. Skýrsla stofnunarinnar skal lögð fyrir sjávarútvegsnefndir Alþingis fyrir árslok 1991.
6. Smábátar. Lagt er til að smábátar er bætast í flotann á árinu 1990 án þess að sambærilegir bátar séu úreltir fái aflahlutdeild er svari til meðalaflahlutdeildar báta í sama stærðarflokki. Um aflahlutdeild þessara báta gilda sömu reglur og um aflahlutdeild annarra skipa að öðru leyti en því að framsal hennar er óheimil í fimm ár frá gildistöku laganna með sama hætti og varðar framsal aflahlutdeildar stærri skipa sem rekja má til uppbótar, sbr. 4. mgr. 11. gr. Aflahlutdeild þeirra báta teljist ekki með við ákvörðun aflahlutdeildar annarra smábáta skv. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II.
Fylgiskjal X.
Ályktun FFSÍ um stjórn fiskveiða,
undirrituð af fulltrúa þess, Guðjóni A. Kristjánssyni.
Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands samþykkir ekki frumvarp til nýrra laga um stjórn fiskveiða eins og það birtist í drögum 20. janúar 1990.
Helsta ástæða fyrir þessari afstöðu FFSÍ er sú að í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir sölu á óveiddum fiski sem mun leiða af sér byggðaröskun, misvægi milli einstakra útgerðarflokka, t.d. báta og togara, og aukinn tekjumun milli sjómanna. Þá vill FFSÍ benda á það ósamræmi í frumvarpinu og reyndar í gildandi lögum um stjórn fiskveiða sem felst í því ákvæði sem segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar á sama tíma og einstakir handhafar veiðiréttar hafa umtalsverðar tekjur af sölu á óveiddum fiski.
FFSÍ hefur algjörlega hafnað hugmyndum um sölu á óveiddum fiski í fyrri samþykkt 28. nóvember sl. Í sömu samþykkt var jafnframt bent á leiðir sem gætu dregið verulega úr viðskiptum á óveiddum fiski.
FFSÍ harmar hversu lítil umfjöllun hefur verið í ráðgjafarnefndinni um þetta mikilvæga atriði í frumvarpsdrögunum og þá sérstaklega um þær afleiðingar sem óheft sala á óveiddum fiski getur haft í för með sér bæði fyrir einstaklinga og þjóðarbúið í heild.
FFSÍ lýsir eindregnum vilja til að finna lausn á því vandamáli sem sala á óveiddum fiski er í dag og gæti orðið í framtíðinni og er því reiðubúið til að vinna að frekari útfærslum eða hugmyndum sem gætu leitt til farsællar lausnar á þessu vandasama máli.
Fylgiskjal XI.
Bókun Óskars Vigfússonar, fulltrúa Sjómannasambands Íslands,
í ráðgjafarnefnd um mótun fiskveiðistefnu.
Fulltrúi Sjómannasambands Íslands vill með þessari bókun árétta ályktun formannafundar Sjómannasambands Íslands frá 8. desember sl. varðandi sölu á aflakvótum skipa, en þar segir:
„Formannafundur SSÍ er mótfallin hvers konar sölu á aflakvótum skipa eins og áður hefur komið fram í ályktunum frá Sjómannasambandinu. Fundurinn fellst á að heimilt sé að flytja aflaheimildir milli skipa sömu útgerðar og milli skipa innan sama byggðarlags. Jafnframt fellst formannafundurinn á að heimilt sé að skipta á veiðiheimildum einstakra tegunda enda sé um jöfn skipti að ræða. Að öðru leyti verði sala aflaheimilda bönnuð.“
Þau drög að frumvarpi til laga um stjórnun fiskveiða, sem nú liggja fyrir, eru málamiðlun. Fulltrúi SSÍ er tilbúinn til að standa að drögunum þó svo að ýmislegt í þeim falli ekki að þeim skoðunum sem ríkjandi eru innan Sjómannasambands Íslands.
Fylgiskjal XII.
Bókun fulltrúa Landssambands smábátaeigenda, Arthurs Bogasonar,
á fundi ráðgjafarnefndar um mótun fiskveiðistefnu.
(26. janúar 1990.)
Landssamband smábátaeigenda fellst í megindráttum á fram kominn texta er lagður var fyrir ráðgjafarnefnd um fiskveiðistefnu 23. janúar 1990 er varðar fyrirkomulag um veiðar smábáta frá og með árinu 1991. Er það gert í trausti þess að eftirfarandi atriði verði leiðrétt:
1. Vegna ýmissa óvissuþátta hvað varðar málefni grásleppusjómanna telur LS nauðsynlegt að í stað sjálfvirkrar yfirfærslu í kvótakerfi, fari 0–6 brl. hópurinn fram úr áðurgreindum viðmiðunarmörkum, verði sett endurskoðunarákvæði þar sem þessi óvissa verði vegin inn. Þá verði málefni grásleppubáta, sem háðir eru aflahámörkum, tekin til sérstakrar meðferðar verði verulegar breytingar á tekjuöflun þeirra af grásleppuveiðum.
Til greina komi að meta grásleppuveiðar sem sérveiðar.
2. Þeir nýju bátar sem eru á leið inn í 0–9.99 brl. flokkinn skaði hvorki það svigrúm sem 0–6 brl. hópurinn hefur né áunna aflahlutdeild 6–9.99 brl. hópsins og á þeirra málefnum verði tekið sérstaklega.
Landssamband smábátaeigenda ítrekar fyrri afstöðu sína hvað varðar framsalsrétt veiðiheimilda og hafnar varanlegu framsali milli smábáta og stærri skipa.
Fylgiskjal XIII.
Umsögn Fjórðungssambands Norðlendinga.
Sjávarútvegsnefnd
efri deildar Alþingis.
Ekki voru tök á því að taka fyrir bréf yðar, dagsett 23. febrúar sl., varðandi umsögn um frumvarp til laga um fiskveiðistjórnun fyrr en á fjórðungsstjórnarfundi 14. þ.m.
Umsögn fjórðungsstjórnar er eftirfarandi:
„Fjórðungsstjórn harmar það að hafa ekki átt kost á lengri tíma til samráðs við aðila í Norðurlandi um umsögn varðandi frumvarp um stjórn fiskveiða. Af þessum ástæðum treystir fjórðungsstjórn sér ekki til að láta í té umsögn um einstakar greinar þess.
Fjórðungsstjórn telur ljóst að fyrirliggjandi frumvarp muni ekki bæta mest áberandi galla núverandi fiskveiðikerfis og fiskveiðistjórnunar. Það er ljóst að sú verslun, sem á sér stað um fiskveiðiheimildir milli einstakra aðila og veiðistöðva, er að skapa forréttindi vissra aðila um að höndla með sérréttindi. Þetta hefur iðulega stefnt atvinnulífi einstakra byggða í tvísýnu og í mörgum tilvikum stuðlað að byggðarröskun heilla byggðarlaga.
Fjórðungsstjórn leggur á það ríka áherslu að með fiskveiðistjórnun verði tekið tillit til skynsamlegrar jöfnunar byggðar í landinu og atvinnuhagsmuna landsbyggðar í samræmi við hagsmuni þjóðarinnar.
Fjórðungsstjórn bendir á að miða verði úthlutun fiskveiðiheimilda jafnhliða við hagsmuni sjávarbyggðanna, fiskvinnslunnar og afkomu verkafólksins í landinu.
Fjórðungsstjórn skorar á þingnefndina að endurskoða frumvarpið, og að sett verði skýlaus ákvæði um byggðarlega úthlutun fiskveiðiheimilda þannig að stjórnun fiskveiðanna stuðli að búsetujöfnun sjávarbyggðanna.“
Þess er vænst að umsögnin berist það tímanlega að hún verði höfð til hliðsjónar hjá nefndinni.
F.h. Fjórðungssambands Norðlendinga.
Áskell Einarsson.
Fylgiskjal XIV.
Umsögn Vinnuveitendafélags Vestfjarða.
Sjávarútvegsnefnd
efri deildar Alþingis.
Vinnuveitendafélag Vestfjarða hefur fengið sent til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 352. mál, sem nýlega var lagt fram í efri deild Alþingis.
Fjórðungssamband Vestfirðinga efndi til atvinnumálafundar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 8. september sl. og var félagið aðili að þeim fundi, ásamt fjölmörgum öðrum aðilum atvinnulífsins. Í ályktun fundarins segir m.a.:
„Kvótakerfinu var ætlaður margþættur tilgangur. Það átti öðru fremur að tryggja, að heildaraflinn færi ekki fram úr viðmiðunarmörkum stjórnvalda, koma í veg fyrir stækkun fiskiskipastólsins og treysta stöðu landsbyggðarinnar. Allt þetta hefur í stórum dráttum mistekist. Botnfiskaflinn hefur á hverju ári verið fjarri viðmiðunarmörkum, fiskiskipastóllinn hefur stækkað með ári hverju og staða landsbyggðarinnar er nú veikari en nokkru sinni fyrr.
Það er nú eitt mesta hagsmunamál sjávarútvegsins og landsbyggðarinnar að meiri stöðugleiki sé í atvinnugreininni en verið hefur á þessum áratug þegar þorskaflinn hefur sveiflast frá 469 þús. lestum árið 1981 í 284 þús. lestir árið 1984, og nú leggur Hafrannsóknastofnun til 250 þús. lesta afla næstu tvö árin eða nærri þriðjungs minnkun frá meðaltali seinustu tíu ára. Það er minni þorskafli en verið hefur á Íslandsmiðum allt frá árinu 1947. Þessi óstöðugleiki er meiri en svo að nokkur atvinnuvegur geti búið við og kallar á gjörbreytta aðferð við ákvörðun heildarafla.
Fundurinn telur því nauðsynlegt að nú þegar verði horfið frá þessari stefnu og ákvörðun heildarafla tekin til lengri tíma þannig að fiskveiðistefnan tryggi betur atvinnuöryggi allra þeirra sem við þennan atvinnuveg starfa. Seinasta áratuginn hefur meðalafli botnlægra fisktegunda verið um 670 þús. lestir á ári, 370 þús. lestir af þorski og 300 þús. lestir af öðrum tegundum. Fundurinn leggur því til að næstu 5 árin verði leyfilegur ársafli miðaður við þessa reynslu og árlega leyft að veiða 320–380 þúsund lestir af þorski og 280–320 þús. lestir af öðrum botnlægum fisktegundum, eftir ástandi fiskistofnanna á hverjum tíma. Með þessu móti væri tekið tillit til líffræðilegra og efnahagslegra sjónarmiða við nýtingu fiskistofnanna um leið og leitast væri við að tryggja eðlileg starfsskilyrði í atvinnugreininni sjálfri.“
Vinnuveitendafélag Vestfjarða fær ekki séð að það frumvarp um stjórn fiskveiða, sem nú hefur verið lagt fram, taki á nokkurn hátt á þeim vandamálum sem hér er bent á. Verði það samþykkt óbreytt bendir allt til að sama öryggisleysið verði áfram ríkjandi hjá þeim, sem við þessa atvinnugrein starfa, og staða landsbyggðarinnar haldi áfram að versna.
Í 9. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að ef meiri en 20% samdráttur (miðað við að meðaltal fimm síðustu ára) verði í aflatekjum milli veiðitímabila af veiðum á öðrum tegundum sem sæta ákvæðum um leyfilegan heildarafla en botnfiski og úthafsrækju sé ráðherra heimilt að skerða eða auka tímabundið botnfiskaflamark þeirra fiskiskipa sem aflahlutdeild hafa af þeirri tegund sem breytingum sætir.
Þessi grein frumvarpsins er í beinni mótsögn við tilgang frumvarpsins um hámörkun þjóðhagslegs hagnaðar af fiskveiðunum. Það er augljóst mál að því hlýtur að fylgja verulegur kostnaðarauki að búa viðkomandi sérveiðiskip til botnfiskveiða, enda hefur t.d. verulegur hluti loðnuskipanna selt þann botnfisk- og rækjukvóta sem þau hafa fengið á liðnum árum. Þessi heimild er því líkleg til að skerða enn frekar aflaheimildir botnfiskskipanna en orðið er.
Í stað þessarar greinar væri eðlilegra að skip sem stunda sérveiðar greiði í sinn eigin aflatryggingarsjóð sem hægt væri að grípa til þegar aflabrestur verður.
Við leyfum okkur að vænta þess að tekið verði tillit til framanritaðra sjónarmiða við afgreiðslu málsins á Alþingi.
Virðingarfyllst,
Jón Páll Halldórsson,
formaður.
Ályktun um atvinnumál á fundi á Ísafirði.
(8. september 1989.)
Atvinnumálafundur Fjórðungssambands Vestfirðinga, haldinn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 8. september 1989, telur að horfur í atvinnumálum fjórðungsins séu nú alvarlegri en um langt árabil.
Meginorsök þess vanda er stöðugur aflasamdráttur á seinustu árum, en atvinnulíf á Vestfjörðum er mun háðara sjávarafla heldur en í öðrum landshlutum þar sem 37% alls vinnuafls í fjórðungnum starfar við fiskveiðar og fiskvinnslu þegar þetta hlutfall er 13% á landinu í heild. Þá hefur efnahagsstefna undangenginna ára verið skaðleg útflutnings- og samkeppnisgreinum og flutt fjármagnið frá þeim og landsbyggðinni og þannig veikt atvinnulíf þessara byggðarlaga.
Enginn landshluti er háðari veiðum botnlægra fisktegunda og rækju en Vestfirðir. Á sama tíma og samdráttur hefur orðið í þessum stofnum, hefur veiði og vinnsla annarra tegunda haft afgerandi þýðingu fyrir önnur byggðarlög. Þetta hefur með öðru orðið til að rýra hlut Vestfirðinga í nýtingu sjávaraflans síðan kvótakerfi í botnfiskveiðum og rækju var tekið upp.
Kvótakerfinu var ætlaður margþættur tilgangur. Það átti öðru fremur að tryggja að heildaraflinn færi ekki fram úr viðmiðunarmörkum stjórnvalda, koma í veg fyrir stækkun fiskiskipastólsins og treysta stöðu landsbyggðarinnar. Allt þetta hefur í stórum dráttum mistekist. Botnfiskaflinn hefur á hverju ári verið fjarri viðmiðunarmörkum, fiskiskipastóllinn hefur stækkað með ári hverju og staða landsbyggðarinnar er nú veikari en nokkru sinni fyrr.
Það er nú eitt mesta hagmsunamál sjávarútvegsins og landsbyggðarinnar að meiri stöðugleiki sé í atvinnugreininni en verið hefur á þessum áratug þegar þorskaflinn hefur sveiflast frá 469 þús. lestum árið 1981 í 284 þús. lestir árið 1984, og nú leggur Hafrannsóknastofnun til 250 þús. lesta afla næstu tvö árin eða nærri þriðjungs minnkun frá meðaltali seinustu tíu ára. Það er minni þorskafli en verið hefur á Íslandsmiðum allt frá árinu 1947. Þessi óstöðugleiki er meiri en svo að nokkur atvinnuvegur geti búið við og kallar á gjörbreytta aðferð við ákvörðun heildarafla.
Fundurinn telur því nauðsynlegt að nú þegar verði horfið frá þessari stefnu og ákvörðun um heildarafla tekin til lengri tíma þannig að fiskveiðistefna tryggi betur atvinnuöryggi allra þeirra sem við þennan atvinnuveg starfa. Seinasta áratuginn hefur meðalafli botnlægra fisktegunda verið um 670 þús. lestir á ári, 370 þús. lestir af þorski og 300 þús. lestir af öðrum tegundum. Fundurinn leggur því til að næstu fimm árin verði leyfilegur ársafli miðaður við þessa reynslu og árlega leyft að veiða 320–380 þús. lestir af þorski og 280–320 þús. lestir af öðrum botnlægum fisktegundum, eftir ástandi fiskstofnanna á hverjum tíma. Með þessu móti væri tekið tillit til líffræðilegra og efnahagslegra sjónarmiða við nýtingu fiskstofnana um leið og leitast væri við að tryggja eðlileg starfsskilyrði í atvinnugreininni sjálfri.
Fundurinn bendir á að áður en kvótaskipting var tekin upp í úthafsrækjuveiðum, var 30–35% heildaraflans unnin á Vestfjörðum. Eftir að kvótaskipting var tekin upp í þessum veiðum eru veiðiheimildir vestfirskra skipa aðeins 6% af leyfilegum heildarafla.
Jafnframt telur fundurinn nauðsynlegt að markvisst sé stefnt að því að vinna sig út úr viðjum kvótakerfisins. Verði það hins vegar framlengt þegar núverandi löggjöf um stjórnun fiskveiða fellur úr gildi í árslok 1990 er nauðsynlegt að breyta því í veigamiklum atriðum. Í því sambandi er brýnt að skipunum verði heimilað að vinna sér inn nýja reynslu vegna margþættra breytinga sem orðið hafa á allri útgerð frá viðmiðunarárunum 1981–1983. Sýnt er einnig að ekki verður komist hjá því að tengja veiðiheimildir með einhverjum hætti útgerð og fiskvinnslu til þess að tryggja atvinnuöryggi sjómanna og fiskvinnslufólks og koma í veg fyrir að hægt sé að kaupa upp aflaheimildir heilla byggðarlaga og svipta þessa aðila þannig atvinnu sinni í einu vetfangi.
Fundurinn felur stjórn Fjórðungssambandsins að leita allra leiða til að endurheimta þá hlutdeild Vestfirðinga sem þeir höfðu áður en kvótakerfið var tekið upp.
Fylgiskjal XV.
Umsögn verkalýðsfélagsins Baldurs.
Fundur í verkalýðsfélaginu Baldri 16. febrúar 1990 skorar á sjávarútvegsráðherra og Alþingi að tryggja atvinnuöryggi og lífsafkomu fiskvinnslufólks þegar ný lög verða sett um stjórnun fiskveiða í íslenskri lögsögu.
Í núverandi lögum og í nýjum drögum að frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða er hvergi tekið hið minnsta tillit til hagsmuna fiskvinnslufólks og réttur þess til íhlutunar um ráðstöfun á þessari sameign allrar þjóðarinnar að engu hafður.
Fundurinn krefst réttlætis og jafnréttis í þessu mikla hagsmunamáli vinnandi fólks.
Fylgiskjal XVI.
Athugasemdir stjórnar Vinnuveitendafélags Breiðafjarðar.
Stjórn Vinnuveitendafélags Breiðafjarðar vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 352. mál.
1. Við teljum jákvætt að fella niður sóknarmark.
2. Við viljum afnema kvótasölur frá bátum til togara en erum sammála kvótafærslum milli allra á jöfnum verðmætum. Núverandi færsla til togara frá bátaflotanum stefnir í stórhættu. Við viljum því binda hlutföll þannig að bátar og togarar skipti jöfnu í þorskígildum.
3. Útflutningskvóti komi á hvert skip í hlutfalli við þeirra þorskígildi og verði hann framseljanlegur.
4. Þriðja málsgrein 11. gr.: „Hyggist útgerð selja fiskiskip“ o.s.frv. falli niður. Þessi auglýsingastarfsemi í Lögbirtingablaðinu eykur á þenslu blaðsins og enn þá meira á uppboðsmarkaði kvótabáta.
5. Öll kvótaskerðing vegna útflutnings í gámum og skipum verði notuð sem verðlaun til heimalöndunarbáta.
6. Ráðherravaldið samkvæmt þessum lögum er allt of mikið afl í stjórn veiðanna. Hörpudiskabátar hafa orðið fyrir mikilli skerðingu vegna þessa.
7. Við teljum timabært að afnema ráðherravaldið og færa veiðistjórnina til Fiskifélagsins.
Í stjórn Vinnuveitendafélagsins:
Soffanías Cecilsson, Grundarfirði,
Ólafur Rögnvaldsson, Hellissandi,
Ólafur Gunnarsson, Ólafsvík.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Vinnuveitendafélags Breiðafjarðar,
Soffanías Cecilsson.
Fylgiskjal XVII.
Umsögn Útvegsmannafélags Snæfellsness.
Almennur félagsfundur í Útvegsmannafélagi Snæfellsness sem haldinn var í Grundarfirði 22. apríl skorar á alþingismenn Vesturlandskjördæmis að taka eftirfarandi atriði til greina við afgreiðslu frumvarps um fiskveiðistjórnun.
Fundurinn leggur þunga áherslu á að frumvarpið um stjórn fiskveiða fái afgreiðslu á yfirstandandi þingi.
Fundurinn mótmælir harðlega hugmyndum um sölu veiðileyfa í hverri mynd sem það nefnist. Líta útvegsmenn svo á að sala veiðileyfa sé skattur og er því búið að opna fyrir möguleika á enn frekari veltuskatti á útgerð. Eins og alþingismenn vita hefur afkoma í sjávarútvegi ekki verið viðunandi á síðustu árum. Hér við Breiðafjörð hefur bátaútgerð gengið mjög illa á síðustu árum. Við ríkjandi ástand er ekki hægt að ætlast til að bátaútvegsmenn hér við fjörðinn keppi um kaup á veiðileyfum við t.d. frystitogara eða þá stórar togaraútgerðir. Annað atriði í þessu sambandi er að nú dag er aðstöðugjaldsprósenta orðin mjög misjöfn eftir sveitarfélögum. Á Reykjavíkursvæðinu er hún t.d. mun lægri en hér á Snæfellsnesi. Í framtíðinni munu stórar útgerðir flytja sig þangað sem ódýrast er að gera út og vera þannig betur samkeppnisfærir um kaup á veiðileyfum ef sá háttur yrði upptekinn.
Fundurinn telur það mikla réttlætiskröfu að bátar af sambærilegri stærð og gerð hafi svipaðan kvóta. Þannig að ákvæði til bráðabirgða II þar sem lagðar eru til sóknarmarksuppbætur fyrir þau skip, sem eru fyrir neðan meðallag í sínum flokki, verði ekki hærri en nú er gert ráð fyrir í frumvarpinu, t.d. 80% bætur í staðinn fyrir 40% eða 60% bætur fyrir lakari skipin en 20% dreifist á öll skip. Þetta er mikið atriði fyrir okkur Snæfellinga þar sem flest okkar skip eru fyrir neðan meðallag í sínum sóknarmarksflokki þar sem viðmiðunarár 1981–1983 voru mjög léleg hér í Breiðafirði.
Útvegsmenn á Snæfellsnesi hafa verulegar áhyggjur af óeðlilegri röskun á milli skipaflokka og er sú þróun mjög varasöm.
Fundurinn leggur áherslu á að fjölgun smábáta verði stöðvuð nú þegar og þeir fái ekki aukna hlutdeild í heildarbotnfiskaflanum. Útvegsmenn sætta sig engan veginn við að smábátar megi veiða úr sameiginlegum kvóta og skerði þar með veiðiheimildir annarra skipaflokka verulega. Einnig að þeir smábátar sem nú eru í smíðum minnki ekki á nokkurn hátt veiðiheimildir báta og togara.
Að lokum skal ítrekuð sú samþykkt fundarins að lög um fiskveiðistjórnun verði samþykkt á þessu þingi. Það er algerlega óþolandi fyrir aðila í útgerð að vita ekki hvað er framundan í þessum málum.
Virðingarfyllst,
f.h. Útvegsmannafélags Snæfellsness,
Guðmundur Kristjánsson
formaður.
Fylgiskjal XVIII.
Ályktun aðalfundar Félags Sambandsfiskframleiðenda.
Aðalfundur Félags Sambandsfiskframleiðenda, haldinn í Reykjavík miðvikudaginn 25. apríl 1990, lýsir yfir ánægju með að náðst hefur samkomulag um fjölmarga veigamikla þætti um stjórn fiskveiða eins og fram kemur í frumvarpi til laga því sem nú liggur fyrir Alþingi.
Þar má til nefna að stjórnað verði með einni aðferð, án undantekninga og að lögin verði ótímasett. Þetta er að okkar mati grundvöllur þess að markmiðin um rekstarhagkvæmni fiskveiðiflotans náist eins og að er stefnt.
Hins vegar hefur ekki náðst samkomulag um ákvæði sem tryggi rekstrarhagkvæmni fiskvinnslunnar en það er ekki síður mikilvægt. Þá skortir í frumvarpið öll ákvæði um jafnræði innan sjávarútvegsins, en það getur leitt til ófyrirsjáanlegrar röskunar á byggð í landinu og atvinnuöryggi.
Þess vegna skorar aðalfundurinn á háttvirt Alþingi að samþykkja fiskvinnslukvóta í samræmi við þær hugmyndir sem lagðar voru fram í ráðgjafarnefndinni um fiskveiðistjórn.
Fylgiskjal XIX.
Bókun hreppsnefndar Presthólahrepps.
Á fundi sínum í fyrrakvöld samþykkti hreppsnefnd Presthólahrepps svohljóðandi bókun:
„Við skorum á þingmenn að taka fullt tillit til byggðasjónarmiða við gerð nýrra laga um stjórnun fiskveiða.
Enn fremur að tryggður verði áfram tilveruréttur smábáta og línu- og handfæraveiðar verði gefnar frjálsar á bátum undir 6 tonnum.“
Virðingarfyllst,
Ingunn S. Svavarsdóttir.
Fylgiskjal XX.
Lausleg endursögn á færeyskri skýrslu um útgerð.
(Upprit um fiskivinnuna).
(Þýðingar einstakra hugtaka kunna að orka tvímælis,
en engin tök voru á nánari könnun á svo skömmum tíma.)
Erfiðleikar í útgerð hafa vaxið ár frá ári, að nokkru vegna viðskiptanna við markaðslöndin og að nokkru vegna breyttra atvinnuhátta í aðalatvinnugrein okkar. Sambandið milli einkarekstrar og landskassans verður sífellt óljósara. Stundum er örðugt að segja hver hefur ákvörðunarrétt og ber ábyrgð.
Þetta breytta samband kemur fram á flestum sviðum greinarinnar, hvort sem rætt er um skipasmíði, rekstur, fisksölu, stuðning eða fiskverð.
Samstarfsnefnd landsstjórnarinnar hefur lengi unnið að breyttri skipan og leggur nú fram nokkrar tillögur um breytingar sem geta smám saman bætt samskiptin. Tilgangurinn er:
— að fá gleggri mörk í samskiptum atvinnulífsins og landskassans,
— að skapa atvinnuveginum svo góð kjör sem unnt er, jafnframt því sem meiri ábyrgð er lögð á atvinnulífið,
— að ýta undir að veiddur fiskur fái bestu meðferð á sjó og landi þannig að hærra verð fáist fyrir útflutningsvöruna,
— að veiðiflotinn verði hæfilegur eftir því sem unnt er,
— að móta samskipti í greininni og samfélaginu í heild eftir markaðsverði á útflutningsvöru okkar, og
— að ýta undir að atvinnuvegurinn styrkist þegar vel árar svo að hann sé fær um að taka við áföllum sem koma við og við án hjálpar af almannafé.
Með þetta í huga hefur nefndin komið sér saman um eftirfarandi:
1. Útgerðarráð og starfsnefnd útgerðarinnar.
Nefndin telur brýnt að útgerð og stjórnvöld skýri sjónarmið sín og fyrirætlanir og að fast samstarf komist á um það. Landsstjórnin mu því leggja fyrir þingið tillögu um að breyta útgerðarráði á þessa leið:
Útgerðin velur þrettán fulltrúa ýmissa hagsmuna og veiðiaðferða. Ráðið kýs sér sjálft formann og varaformann. Það skal halda fund minnst tvisvar á ári. Landsstjórnin leggur mikilsverð sjávarútvegsmál fyrir útgerðarráðið til athugunar, og það getur einnig af eigin hvötum tekið mál til meðferðar. Ráðið sendir landsstjórninni skýrslu eigi sjaldnar en einu sinni á ári, þar sem öll sjónarmið koma fram.
Þar að auki verður kosin starfsnefnd útgerðarinnar með fimm mönnum sem mega ekki eiga sæti í útgerðarráði. Útgerðarráð velur fjóra og landsstjórnin einn í starfsnefndina og er hann formaður. Starfsnefndin getur komið sem áheyrnarfulltrúar á fundi útgerðarráðs. Landsstjórnin skipar sama skrifara fyrir útgerðarráð og starfsnefndina. Starfsnefndin er milliliður milli landsstjórnarinnar og útgerðarráðs. Landsstjórnin leggur tillögur um lög, tilkynningar, reglugerðir og þess háttar fyrir starfsnefndina.
2. Samsetning og úrelding veiðiflotans.
Yfirleitt eru menn sammála um að veiðiflotinn við Færeyjar sé of stór. Afleiðingar eru:
— að fiskistofnarnir verða fyrir of miklu álagi,
— að skipin fá of lítinn hlut en vera ætti, og
— að fjárhagur þeirra er þrengri en þyrfti.
Til að bæta úr þessu væri best að minnka veiðigetuna um 20–25%. Ef úthafstogurunum er um leið breytt til að verka aflann um borð verður þar þörf fyrir þann mannskap sem losnar. Slík breyting er þó háð því að annar fiskur fáist handa þeim vinnslustöðvum sem til þessa hafa verkað afla úr úthafstogurum.
Koma verður málum þannig fyrir að veiðigetan minnki. Landsstjórnin mun því leggja fyrir þingið tillögu um nýjar reglur um úreldingarstyrk.
Fé hefur verið veitt til úreldingar á fjárlögum í mörg ár. 73 milljónir króna hafa verið samþykktar í úreldingarstyrk samkvæmt reglum sem landsstjórnin og fjárhagsnefnd settu.
Eftir þessum reglum fengu Realkredittstovnurin og Fiskaríbankinn lánið endurgreitt að fullu, en aðrir fengu allt að 80%.
Ekki er talið að skuldir vegna skipsins eigi að ráða upphæðinni, heldur hitt hversu mikla veiðigetu er unnt að losna við. Samt er framvegis ætlunin að leggja veiðiskipum til úreldingarstyrk þótt þau hafi ekki stundað veiðar um hríð í þeim tilgangi að veiðileyfi hverfi frá þeim. Fjárveitingin til slíkra skipa verður 10 þús. kr. fyrir hvert brúttótonn.
Miklu skiptir að álagið á fiskimiðunum minnki fljótt. Því verður sett í lög að úreldingarstyrkur fáist aðeins 1991 og 1992.
Rætt er um þrenns konar úreldingarstyrk. Stuðning má veita þannig að greiddar verði 10 þús. kr. fyrir hvert brúttótonn og 5 þús. kr. fyrir hvert tonn af hráefni (fiski upp úr sjó) sem skipið hefur veitt að meðaltali fjögur bestu aflaár síðustu sex árin áður en umsókn um styrk er lögð fram miðað við fisk upp úr sjó.
Einnig verður landsstjórninni heimilt að kaupa skip á nauðungarsölu eða til dæmis af peningastofnun í þeim tilgangi að úrelda þau. Heimild til að kaupa fiskiskip til úreldingar gildir einnig þótt landssjóðurinn eigi ekki veð í skipinu né beri ábyrgð vegna þess.
Í þriðja lagi getur landsstjórnin samið við banka og aðrar peningastofnanir um það hvernig skuld vegna skipsins skuli greiðast. Samráð hefur verið haft við báða stóru færeysku bankana um þetta.
Í báðum seinni tilvikunum gilda einnig 5 þús. kr. fyrir hvert veitt tonn og 10 þús. kr. fyrir hvert brúttótonn.
Ákveðin skilyrði verða sett fyrir að fá styrk. Veiðiskipið skal hafa verið í eigu samam aðila að minnsta kosti tvö ár, það missir veiðileyfið að fullu og öllu og fær í framtíðinni engan styrk úr landssjóði.
Síðan verður tilkynnt að hugsanlegur ágóði af úreldingarstyrk verði skattlagður eins og ágóði af skipasölu og að fiskiskip sem hafa fengið úreldingarstyrk geti ekki legið ónotuð lengur en eitt ár.
Ætlunin er að eigandi sem fær úreldingarstyrk eigi skipið með þessum kvöðum og að hann geti selt það eða notað til annars en veiða. Þetta merkir að úreldingarstyrkur verður fyrst og fremst veittur til að ná veiðileyfum frá skipum og bátum.
Til þess að draga úr veiðiálagi er ætlunin að setja reglur um að útróðrarbátar og skip sem veiða í ís skuli vera frá veiðum fjórar vikur á tímabilinu 20. júní til 20. ágúst.
3. Nýsmíðar báta og skipa.
Mismunandi fyrirkomulag hefur verið á almennum stuðningi og styrk til endurnýjunar fiskiflotanum. Þótt gera megi ráð fyrir að fiskiflotinn minnki þegar úreldingarstyrkur verði veittur verður sí og æ þörf á að endurnýja í framtíðinni flotann sem eftir verður.
Landsstjórnin hyggst leggja fram á þessu þingi fleiri lagafrumvörp um breytingu á almennri þátttöku í skipasmíðum. Tillögurnar verða þessar:
3.1. Til nýsmíða á skipum og bátum leggur landssjóður fram sem styrklán ákveðinn hundraðshluta af kostnaðinum. Upphæðin skal þegar það er unnt vera nægilega há til þess að skipið beri sig án rekstrarstuðnings. Styrklánið er vaxta- og afborgunarlaust og verður afskrifað á 15 árum. Það þýðir að ef skipið er selt úr landi þegar það er t.d. sjö ára gamalt skulu 8 / 15 lánsins greiðast landssjóðnum aftur. Ef skipið eða báturinn er áfram í færeyska fiskiflotanum í 15 ár eða lengur verður ekkert af styrkláninu endurgreitt.
3.2. Styrklánið er hið sama hvort sem skipið er smíðað í Færeyjum eða erlendis. Styrkurinn verður veittur færeyskum fiskiskipum sem smíða skip eða báta í færeyska veiðiflotann eða breyta þeim.
Styrklánið á að koma í staðinn fyrir neðangreind lög sem verða numin úr gildi:
3.3. Unnið verður að því að styrklán og lán frá peningastofnun verði jöfn.
3.4. Lög um veð til nýsmíði veiðiskipa verða afnumin. Veðið er nú allt að 10% til skipa yfir 20 tonn þegar smíðað er erlendis, og allt að 15% þegar smíðað er í Færeyjum. Veð verður aðeins veitt með jafnhárri tryggingu frá peningastofnun.
3.5. Lög um lán til nýsmíða veiðiskipa verða afnumin. Það er nú allt að 10% þegar smíðað er í Færeyjum.
3.6. Lög um vaxtastyrk til nýrra skipa verða afnumin. Hann er nú 125 þegar smíðað er í Færeyjum.
3.7. Lög um lán til breytinga verða afnumin. Það er allt að 8% þegar breytingin fer fram erlendis, en allt að 15% þegar breytingin fer fram í Færeyjum.
3.8. Lög um veð vegna breytinga verða numin úr gildi. Það er allt að 30% þegar endursmíðin fer fram í Færeyjum eða erlendis.
3.9. Lög um smíðaveð og samningsveð verða afnumin.
4. Rekstur núverandi flota.
Brýnt er að útvega veiðiflotanum lán til að breyta skuldum þannig að ráðrúm verði til að halda rekstrinum gangandi.
Heimaflotinn hefur samkvæmt upplýsingum útgerðarráðsins safnað 380 milljón króna skuld árin 1985–1988. Til þess að ráða við þessa skuld þarf að útvega eigi minni upphæð en einar 200 millj. króna. Eigi að síður eru nokkur fiskiskip sem enga möguleika hafa til að bera sig og einnig verða nokkur úrelduð.
Til þess að fiskiskip með meðaltalsrekstur geti haldið áfram og útgerð þess borið sig, hyggst landsstjórnin leggja fram frumvarp á þingi um að heimila lánveitingu til tíu ára á lágum vöxtum og afborgunarlaust í fimm ár.
Skilyrði til að fá lánið er að samkvæmt útreikningi útgerðarráðsins liggi rekstur veiðiskipsins innan þeirra meðallagsmarka sem það þarf til að bera sig.
Lánsupphæðin er ákveðin fyrir hvern flokk skipa um sig og fer eftir veiði, stærð og aldri skipsins.
Landsstjórnin útvegar féð en peningastofnun sér um lánin.
5. Skipting aflans, þ.e. hráefnisins, upp úr sjó.
Landsstjórnin mun leggja til við þingið að skipta öllum fiski upp úr sjó sem landað er úr færeyskum fiskiskipum í Færeyjum milli vinnslustöðva:
7 þús. tonn verða sett í sérstaka vinnslu. Fiskur sem er keyptur að til vinnslu í Færeyjum reiknast ekki með í skiptunum.
Efni laganna verður þetta:
5.1. Skipting aflans upp úr sjó gildir frá 1. maí 1990.
5.2. Þessar fisktegundir koma til skiptanna: þorskur, ýsa, keila, langa, blálanga, ufsi, karfi, steinbítur, skötuselur, lýsa, lúða, grálúða, skarkoli og þykkvalúra.
5.3. Eftirtöldum vinnslustöðvum er heimilt að kaupa tilgreinda hundraðshluta þess fisks upp úr sjó sem seldur er í Færeyjum:
%
Bacalao ............... 9,61
Borgin ................ 3,11
Fisk .................. 4,53
Sörvágs Flakavirki .... 3,99
Nólsöyar Flakavirki ... 2,07
Frost ................. 4,62
Frostvirkið ........... 1,74
Harfrost .............. 2,16
Handils- og Frystiv. .. 7,47
Kósavirkið ............ 10,72
Lynfrost .............. 6,52
Norðís ................ 2,70
Joensen & Olsen ....... 1,99
Nykur ................. 6,21
Stranda Fiskavirki .... 4,21
Polarfrost ............ 6,60
Snarfrost ............. 5,51
Sólarris .............. 2,71
Tvöroyrar Flakavirki .. 7,55
Vestmanna Flakavirki .. 4,01
Vikarvirkið ........... 2,40
5.4. Vinnslustöðvum verður ekki leyft að láta öðrum vinnslustöðvum eftir af þessum tiltekna kvóta sínum.
5.5. Vinnslustöðvar geta skipst á fisktegundum.
5.6. Landsstjórnin framkvæmir skiptinguna og áætlar þann tonnafjölda sem hver vinnslustöð getur tekið við á hverjum ársfjórðungi.
5.7. Landsstjórnin má leggja vinnslustöð niður um tíma ef hún kaupir stærri hundraðshluta en henni er úthlutaður.
5.8. Ef vinnslustöðin heldur áfram að kaupa of mikinn fisk verður málið sent lögreglunni.
5.9. Í ársbyrjun er gert upp hversu vel vinnslustöðvarnar hafa haldið kvóta sinn. Ef vinnslustöð hefur keypt of mikinn fisk mun landsstjórnin heimta af
því ágóðann af þessari framleiðslu og leggja hann í landssjóð og annan hluta til útgerðarinnar. Sé farið lítið fram yfir kvótann má jafna muninn árið eftir.
6. Uppboðssala.
Þar til kringum 1965 var verð á fiski upp úr sjó í Færeyjum samningsariði milli fiskkaupenda og sjómanna en síðan hefur nefnd ákveðið verðið.
Uppboð af því tagi sem tíðkast í grannlöndum okkar hafa ekki verið í Færeyjum. Talið er rétt að reyna þetta, m.a. til að komast að raun um hvort sala á uppboði getur veitt betri vitneskju um markaðsverð á fiski.
Landsstjórnin leggur því fram á þingi frumvarp um fiskuppboð. Í upphafi verður aðeins selt á uppboði en stefnt er að því að koma einnig á fót uppboði símleiðis. Efni laganna verður þetta:
6.1. Fiskuppboðið hefst í ágúst 1990.
6.2. Allar fisktegundir má selja á uppboði.
6.3. Frá ágúst 1990 verða 150 tonn af þessum fiski seld á viku í 40 vikur. Auk þess má selja á uppboði allar fisktegundir sem ekki koma til skipta milli vinnslustöðva.
6.4. Fiskur sem keyptur er á uppboði reiknast ekki með í skiptum á fiski upp úr sjó.
6.5. Öll fiskiskip og fiskvinnslubúnað má selja á uppboði. Einnig má selja útlend veiðiskip á uppboði, enda hafi þau nauðsynleg leyfi.
6.6. Árið 1990 verður uppboðið haldið í Klakksvík. Meiri hluti samstarfsnefndarinnar ákveður hvar það verður eftir 1990.
6.7. Hverjum og einum er heimilt að bjóða í á uppboði. Kaupendur skulu áður leggja fram bankatryggingu fyrir kaupunum.
6.8. Landsstjórnin mun koma uppboðinu af stað, standa fyrir því og útvega stað.
6.9. Settur verður fastur uppboðshaldari.
6.10. Flutningsstyrkur verður veittur á fisk frá uppboðsstað til vinnslustöðvar og hagað þann veg að allar stöðvar sitji við sama borð.
6.11. Seljandi ber ábyrgð á þeim fiski sem ekki fæst boð í.
7. Kaup á fiski til vinnslu.
Það er ekki óvenjulegt erlendis nú á dögum að vinnslustöðvar kaupi útlendan frystan fisk til vinnslu. Rússar hafa vakið máls á því að Færeyingar keyptu af þeim verulegt magn af frystum fiski en þessir möguleikar eru mjög skertir nú þar eð kvótinn í Barentshafi hefur verið minnkaður mikið.
Hugsanlegt er að kaupa megi frystan fisk annars staðar að, t.d. frá Kanada, Alaska, Íslandi eða Grænlandi.
Til að koma tilrauninni af stað leggur landsstjórnin til við þingið að veita um tíma styrk til að kaupa fisk, 1 kr. á kg fyrir innveginn frystan fisk til vinnslu.
Frystur fiskur sem vinnslustöðvar kaupa frá útlöndum reiknast ekki með í skiptum á fiski upp úr sjó.
8. Verðstyrkur.
Hráefnisnefndin ákveður afhendingarverð og reikningsverð en styrknefndin ákveður ýmsan annan styrk svo sem kílóstyrk og dagstyrk.
Nefndin fyrir hráefnissjóðinn ákveður mismunandi verðstyrk, þannig að afgreiðslustyrkurinn er settur til fjögurra mánaða en reikningsstyrkurinn breytist á tveggja vikna fresti. Þessir styrkir skiptast milli skips og áhafnar samkvæmt kjarasamningum. Á sumum skipum hefur hráefnissjóður tekið gjald af tilteknum fisktegundum.
Styrknefndin veitir kílóstyrk vegna ákveðinna fisktegunda og ákveðinna skipategunda. Þetta er rekstrarstyrkur til skipa og báta, áhafnarstyrkur og verðauki. Auk þess veitir nefndin dagstyrk, eftirlitsstyrk (til grálúðuskipa) og útflutningsstyrk (til flökunarstöðva vegna karfa).
Ætlunin er framvegis að greina glögglega milli þess verðs sem fæst á markaði fyrir fiskinn og styrkjarins úr landssjóði. Styrkjakerfið verður einfaldað.
Landsstjórnin mun leggja fram fleiri lagafrumvörp í þessa veru sem taka gildi þegar núverandi verðlagstímabili lýkur 30. júní 1990. Frumvörpin verða um:
8.1. Lög um að landsstjórnin og sjávarútvegsnefnd lögþingsins ákveði verðstyrk 1. apríl og 1. október ár hvert. Meiri hluta er krafist bæði í landsstjórninni og sjávarútvegsnefnd. Styrkurinn verður misjafn eftir fisktegundum og skiptist milli skips og áhafnar samkvæmt samningum. Í fyrstu lotu verður auk þess veittur áhafnar- eða rekstrarstyrkur til þess að núverandi styrkupphæð breytist ekki fyrr en samingstímabilið er úti. Sjómenn og útgerðarmenn geta breytt skiptunum með samkomulagi sín á milli.
8.2. Lög um lágmarkslaun, dagstyrk og lágmarkságóða.
8.3. Verðlagsnefnd ákveður lágmarksverð fyrir fisk sem afgreiddur er í Færeyjum. Með lágmarksverði er átt við að ekki sé heimilt að kaupa lægra verði
fisk sem ætlaður er til manneldis. Að sjálfsögðu er heimilt að kaupa fisk fyrir meira en lágmarksverð og ætlunin er að aðeins algengasti fiskurinn verði keyptur við þessu verði, en fiskur sem er gott eða ágætt hráefni á að seljast hærra verði eftir verðmæti vörunnar sem fæst við vinnsluna.
8.4. Í verðlagsnefnd eru tveir fulltrúar fiskkaupenda og tveir fulltrúar seljenda. Þeir kjósa sér oddamann. Ef ekki næst meiri hluti um oddamann, skipa yfirvöld (sorinskrivari) hann.
8.5. Lög um hráefnissjóð og styrkjanefnd verða afnumin.
9. Bónuskerfi fyrir flökunarstöðvar.
Til þess að fiskur verði verkaður þannig að besta verð fáist, verkafólki, vinnslustöðvum, skipum og samfélaginu í heild til heilla, er ætlunin að taka upp bónuskerfi fyrir gæðavörur. Með hærra verði og bónus á vandaða vöru fá vinnslustöðvarnar meira til skiptanna og verðið hækkar.
Styrkurinn til vinnslunnar skiptist þannig í tvennt, annars vegar til veiða og hins vegar til að fá fiskinn verkaðan í tiltekna söluvöru.
Eigi trygging að fást fyrir því að fiskur verði ekki bara sýndur á gólfi og hann síðan seldur óunninn dugir ekki að hafa bónus beinlínis vegna hráefnis heldur verður fiskurinn að vera kominn á tiltekið vinnslustig.
Ef fiskurinn er flakaður getur t.d. ágóðahlutfallið ráðið bónus. Ágóðahlutfall er misjafnt eftir fisktegundum og ekki hið sama allt árið því að fiskurinn er misfeitur og misstinnur.
Ekki verður heldur auðvelt að fylgjast með því á öllum vinnslustöðvum hvort framleiðsluvaran er rétt skráð. Því dugir vart að láta hann ráða bónus. En til þess að koma í veg fyrir að fiskur fái styrk og fari óverkaður úr stöðinni verður að veita styrk vegna fisks sem er flakaður. Þá gæti bónus verið á kílógramm af flökum.
Annað atriði vegna bónus gæti verið að það sem er unnið í neytendavöru fái sérstakan bónus. Í byrjun mætti gera það með því að veita bónus á alla vöru til neytenda en þegar fram í sækir sést hversu það gefst og þá má gera mun á vörum eftir samfélagslegu gildi þeirra. Til bráðabirgða getur bónus verið á kílógramm af unninni vöru.
Reyna mætti að hafa bónus tiltekinn hundraðshluta af virðisauka en slíkt er erfiðara í skráningu. Einnig er erfitt að reikna árangurinn áður en bónuskerfið er prófað. Þegar eitthvert kerfi hefur verið reynt um tíma er efalaust auðveldara að breyta því í annað sem reynist betur.
Ætlunin er að hafa einn bónus fyrir kílógramm af fiski sem er flakaður og annan á kílógramm af unninni vöru sem fer í neytendaumbúðir.
10. febrúar 1990.
Annfinn Kallsberg,
Fólkaflokkurinn.
Pauli Ellefsen,
Sambandsflokkurinn.
Finnbogi Isakson,
Þjóðveldisflokkurinn.