Ferill 534. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 534 . mál.
Nd.
1131. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um atvinnuleysistryggingar, nr. 64/1981, með síðari breytingum.
Frá 1. minni hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.
I.
Frumvarp það, sem hér er til umfjöllunar, var samið af nefnd á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Í nefndinni sátu m.a. fulltrúar Alþýðusambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna. Í nefndinni var efnislegt samkomulag um öll atriði önnur en þau er varða breytingar á 3. gr. laganna og koma fram í 1. gr. frumvarpsins.
Ágreiningur nefndarmanna varðandi 3. gr. laganna laut að því hvort viðhalda skyldi því ákvæði að atvinnuleysistrygginga njóti aðeins þeir sem eru félagar í stéttarfélögum en aðrir launþegar ekki. Í athugasemdum með frumvarpinu er þessu svo lýst:
„Nefndin lauk störfum í nóvember 1989 og klofnaði í afstöðu sinni til breytinga á 3. gr. laga nr. 64/1981, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum. Nefndin er sammála um að leggja til breytingar á þessari grein, en greinin útilokar nú nokkrar tilgreindar stéttir frá atvinnuleysisbótum. Helmingur nefndarmanna vill að fellt verði niður það skilyrði bótaréttar að hlutaðeigandi umsækjandi sé í stéttarfélagi enda telja þeir að skilyrði um aðild að stéttarfélagi brjóti í bága við félagsmálasáttmála Evrópu sem Ísland er aðili að. Félagsmálaráðherra mun hafa fengið athugasemd frá sérfræðinganefnd Evrópuráðsins vegna þessa. Hinn helmingur nefndarmanna telur brottfall skilyrðis um stéttarfélagsaðild slíka grundvallarbreytingu að fyrst þurfi að breyta þeim ákvæðum sem ekki sé ágreiningur um svo að umræða um breytingar á grunnskipulagi tefji ekki málið.
Í frumvarpi því, sem hér er lagt fram, er breytingartillaga um 3. gr. í samræmi við vilja þeirra nefndarmanna sem vildu ganga skemmra í breytingum á ákvæðum laganna. Um önnur atriði frumvarpsins var samkomulag í nefndinni.“
II.
Í heilbrigðis- og trygginganefnd hefur komið fram að upplýsingar um þennan ágreining hafi verið settar í athugasemdir með frumvarpinu að kröfu félagsmálaráðherra sem fer með framkvæmd félagsmálasáttmála Evrópu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í skýrslu félagsmálaráðherra til Alþingis í mars sl. um 76. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 1989 er fjallað í ítarlegu máli um framkvæmd félagsmálasáttmála Evrópu. Þar segir frá því að sérfræðinganefnd Evrópuráðsins hafi gert nokkrar alvarlegar athugasemdir við framkvæmd Íslands á sáttmálanum og fram kemur að nefndin telur ýmis atriði í löggjöf á Íslandi brjóta í bága við ákvæði hans. Þegar vikið er að lögunum um Atvinnuleysistryggingasjóð, sem hér eru til meðferðar, segir svo orðrétt í skýrslu ráðherra (bls. 37):
„Sérfræðinganefnd Evrópuráðsins er óvenjudómhörð þegar hún fjallar um ákvæði um bótarétt í lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð. Um þetta ákvæði segir að nefndin hafi enn fremur veitt því athygli að samkvæmt lögum nr. 64/1981 eigi eingöngu félagar í stéttarfélögum rétt á atvinnuleysisbótum. Það að svipta launamann rétti til fjárhagslegrar verndar ef hann er atvinnulaus sé óverjandi ráðstöfun sem hafi þann tilgang að neyða hann til að ganga í eða vera áfram félagi í stéttarfélagi. Með tilliti til þess hafi nefndin komist að þeirri niðurstöðu að lögin brjóti í bága við anda og bókstaf 5. gr. sáttmálans.“
Á sömu blaðsíðu í skýrslu ráðherra kemur einnig fram að ákvæði 81. gr. sjómannalaga séu talin brjóta í bága við sáttmálann. Við þeirri athugasemd brást ríkisstjórnin með því að leggja fram frumvarp á yfirstandandi Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að þessari grein verði breytt til samræmis við álit nefndarinnar.
Þess má einnig geta að ríkisstjórnin hefur á þessu ári brugðist við athugasemd eftirlitsnefndar með framkvæmd norræns samnings um viðurkenningu á starfsréttindum innan heilbrigðisþjónustunnar með því að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingar á læknalögum þar sem fullt tillit er tekið til athugasemda nefndarinnar.
III.
Í ljósi þessa vekur það óneitanlega athygli að ríkisstjórnin skuli ekki treysta sér til þess að leggja til breytingar á 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar til samræmis við hinar alvarlegu athugasemdir sérfræðinganefndar Evrópuráðsins.
Undirritaðir nefndarmenn hafa því ákveðið að flytja breytingartillögur við frumvarpið til samræmis við athugasemdir nefndarinnar og ganga þær í þá átt að tryggja öllum launamönnum rétt til atvinnuleysisbóta en ekki eingöngu þeim sem félagsbundnir eru í stéttarfélögum. Er í þessum tilgangi nauðsynlegt að breyta 1. gr. gildandi laga þannig að í stað hugtaksins „félagi í stéttarfélagi“ komi: launamaður, svo og öðrum greinum til samræmis. Lagt er til að hugtakið launamaður verði skilgreint í 3. gr. laganna og stuðst við skilgreiningu laga um ríkisábyrgð á launum. Aðrar breytingar, sem undirritaðir leggja til að gerðar verði á frumvarpinu, eru afleiðing þeirrar meginbreytingar sem lögð er til í 1. gr.
Auk þess rökstuðnings, sem fram er kominn og lýtur að alþjóðlegum skuldbindingum Íslendinga og framkvæmd félagsmálasáttmála Evrópu, er því við að bæta að Atvinnuleysistryggingasjóður er fjármagnaður með iðgjöldum af öllum launum, líka þeirra sem standa utan stéttarfélaga, og framlögum sveitarfélaga og ríkis. Hluti af skattgreiðslum allra launþega, líka þeirra sem standa utan stéttarfélaga, er því varið til að fjármagna sjóðinn. Það er því fráleitt óréttlæti að takmarka rétt manna til að fá greitt úr sjóðnum við stéttarfélagsaðild enda verður ekki séð að ófélagsbundnir launamenn hafi minni þörf fyrir bætur, verði þeir atvinnulausir, en aðrir. Þess munu dæmi að fólki, sem ekki er í stéttarfélagi stöðu sinnar vegna, t.d. starfsmenn samtaka vinnuveitenda, starfsmannastjórar eða framkvæmdastjórar í fyrirtækjum, hafi verið neitað um atvinnuleysisbætur á þeirri forsendu að það væri ekki í stéttarfélagi þó að atvinnurekandi hafi greitt iðgjöld til Atvinnuleysistryggingasjóðs af launum viðkomandi um árabil.
Fram til þessa hafa ákveðnir hópar, sem upp eru taldir í 3. gr. laganna, ekki notið atvinnuleysistrygginga. Hér er um að ræða félagsmenn í samtökum opinberra starfsmanna, lækna, lögfræðinga, endurskoðenda, verkfræðinga og annarra sambærilegra aðila. Frumvarpið gerir ráð fyrir að þær takmarkanir falli niður og félagsmenn allra launþegasamtaka geti verið tryggðir gegn atvinnuleysi. Það er fullkomlega eðlilegt að sú rýmkun á lögunum, sem nú er ráðgerð, nái einnig til þeirra sárafáu launþega sem ekki eru í stéttarfélagi.
Á Íslandi er yfirgnæfandi meiri hluti launþega í stéttarfélögum, væntanlega flestir af fúsum og frjálsum vilja. Njóta þeir margvíslegrar þjónustu af þeirra hálfu auk öryggis og réttinda sem þau hafa samið um fyrir sína félagsmenn. Engin ástæða er til að ætla að breyting verði á þessu þótt horfið verði frá gildandi skilyrði um aðild að stéttarfélagi varðandi rétt til
atvinnuleysisbóta. Þær bætur eru opinber réttindi að stærstum hluta fjármögnuð af almannafé sem óeðlilegt er að binda tiltekinni félagsaðild.
Með nefndaráliti þessu er birtur IV. kafli greinargerðar Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, dags. 23. nóv. 1989, um tillögur þessara aðila í nefnd um endurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar.
Alþingi, 30. apríl 1990.
Geir H. Haarde,
Sólveig Pétursdóttir.
frsm.
Fylgiskjal.
Um réttarstöðu ófélagsbundinna launþega gagnvart atvinnuleysistryggingum.
Félagsaðild launamanna.
Samkvæmt íslenskum lögum hvílir engin lagaskylda á launamönnum að vera í stéttarfélagi. Að því eru menn frjálsir. Launamenn eiga skv. 1. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938, ótvíræðan rétt á að vera í stéttarfélagi, en þeim er það ekki skylt.
Í raun gildir sama regla um aðild að stéttarfélögum og um aðild að stjórnmálafélögum eða stjórnmálaflokkum. Menn eiga rétt til aðildar eða inngöngu, en um skylduaðild er ekki að ræða samkvæmt lögum.
Réttarstaða ófélagsbundinna launamanna.
Það heyrir nú til algerra undantekninga að opinber réttindi séu tengd því hvort launamaður sé í stéttarfélagi eða ekki.
Réttur samkvæmt almannatryggingum almennt, þ.e. sjúkratryggingum, lífeyristryggingum og slysatryggingum hefur aldrei verið háður því að launamaður hafi greitt félagsgjöld til stéttarfélags. Hvorki kosningaréttur til Alþingis, atvinnuréttindi né önnur grundvallarmannréttindi hafa þannig verið skilyrt því að launamaður sé félagsmaður í stéttarfélagi.
Með sérstökum lögum á síðustu árum hefur löggjafinn unnið markvisst að því að gera réttarstöðu ófélagsbundinna launamanna tryggari og sambærilegri við réttarstöðu félagsbundinna launamanna samkvæmt kjarasamningum þeirra við vinnuveitendur. Ástæða þessarar löggjafar hefur einnig öðrum þræði verið sú að efna þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem Ísland hefur samþykkt í ýmsum alþjóðlegum sáttmálum og samningum. Skulu hér nefnd nokkur dæmi um nýlega löggjöf sem fjallar um réttarstöðu launafólks:
a. Lög nr. 19/1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla.
Í lögum nr. 19/1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, er enginn greinarmunur gerður á félagsbundnum verkamönnum og ófélagsbundnum. Verkafólki er tryggður lágmarks veikinda- og uppsagnarfrestur óháð því hvort menn séu í stéttarfélagi eða ekki.
b. Lög nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
Samkvæmt lögum nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, eru kjarasamningar stéttarfélaga við atvinnurekendur í einstökum starfsgreinum lágmarkssamningar. Öllum launamönnum og atvinnurekendum er jafnframt skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði.
Einstökum atvinnurekendum og launamönnum er einnig óheimilt að semja um lakari kjör en kjarasamningur stéttarfélags í viðkomandi starfsgrein gerir ráð fyrir. Kjarasamningar stéttarfélaga hafa því almennt gildi í viðkomandi starfsgrein. Þeir gilda sem lágmarkskjör jafnt fyrir félagsbundna sem ófélagsbundna launamenn.
Samkvæmt sömu lögum ber atvinnurekendum jafnframt að greiða 1% af öllum launum í sjúkrasjóð og 0,25% í Orlofsheimilasjóð viðkomandi stéttarfélags hvort sem launamaður er félagsbundinn eða ekki. Vinnuveitendum er þannig gert skylt að greiða í sjúkrasjóð stéttarfélags þótt launamaðurinn sé ekki í stéttarfélaginu.
Forsenda þessara greiðslna til stéttarfélags er hins vegar að hinn ófélagsbundni launamaður njóti fullra réttinda úr orlofs- og sjúkrasjóðum stéttarfélagsins, sbr. hæstaréttardóm frá 24. nóvember 1988. Sé svo ekki er vinnuveitanda ekki skylt að greiða í þessa sjóði. Gjaldskylda og réttindi úr sjúkra- og orlofssjóðunum haldast því í hendur.
c. Lög nr. 23/1985, um ríkisábyrgð á launum.
Samkvæmt lögum nr. 23/1985, um ríkisábyrgð á launum, tryggir ríkissjóður greiðslu vinnulauna við gjaldþrot. Enginn greinarmunur er gerður á réttarstöðu félagsbundinna og ófélagsbundinna launamanna samkvæmt lögunum.
d. Lög nr. 30/1987, um orlof, og lög nr. 20/1987, um fæðingarorlof.
Réttur til orlofs- og fæðingarorlofs hefur alltaf verið algerlega óháður því hvort launamaður er félagsmaður í stéttarfélagi eða ekki.
Sú hugsun liggur að baki öllum þessum lögum að öllum launamönnum sé þessi réttarvernd nauðsynleg.
e. Lög nr. 64/1981, um atvinnuleysistryggingar.
Samkvæmt núgildandi lögum um atvinnuleysistryggingar eiga þó þeir launamenn, sem taka þá ákvörðun að vera ekki í stéttarfélagi, ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Það er óréttlætanleg tímaskekkja að tengja með þessum hætti rétt til opinberrar tryggingar aðild að stéttarfélagi.
Nokkrar starfsstéttir eiga samkvæmt lögum raunar alls ekki rétt til atvinnuleysisbóta, þótt þær séu í stéttarfélagi, samkvæmt grein laganna. Í tillögum Alþýðusambandsins er hins vegar gert ráð fyrir að þetta misrétti gagnvart sumum stéttarfélögum verði afnumið þannig að félagsmenn í stéttarfélögum lögfræðinga, verkfræðinga, arkitekta, viðskiptafræðinga o.fl. öðlist nú rétt til atvinnuleysisbóta.
Sérstök stéttarfélög eru hins vegar ekki til fyrir marga háskólamenntaða launamenn sem ekki eru í ríkisþjónustu.
Lögfræðingafélag Íslands og Félag viðskipta- og hagfræðinga eru t.d. þannig ekki stéttarfélög í skilningi laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur. Þessar stéttir þurfa því samkvæmt tillögu Alþýðusambands Íslands að stofna sérstök stéttarfélög til þess eins að geta átt rétt til atvinnuleysisbóta!
Tillögur Alþýðusambands Íslands gera hins vegar enn ráð fyrir því að ófélagsbundnir launamenn skuli áfram vera sviptir rétti til atvinnuleysisbóta. Slík mismunun þegnanna þekktist hér á öldum áður, en getur með engu móti samrýmst jafnréttis og félagshyggju 20. aldar.
Ófélagsbundnir launamenn hafa jafnmikla þörf fyrir atvinnuleysisbætur ef þeir missa atvinnu sína.
Það að tengja rétt til atvinnuleysisbóta aðild að stéttarfélagi þekkist hvergi í vestrænum lýðræðisþjóðfélögum nema á Íslandi.
Greiðendur tryggingarinnar eru atvinnurekendur, sveitarfélögin í landinu og síðast en ekki síst ríkissjóður. Skatttekjum ríkissjóðs er þannig varið til að kosta atvinnuleysistryggingar sem hluta þjóðfélagsþegna, þ.e. ófélagsbundnum launamönnum, er meinuð aðild að. Ófélagsbundnir launamenn greiða að sjálfsögðu skatta eftir sömu skattareglum og félagsbundnir launamenn. Sköttum þeirra er því varið í tryggingar sem þeir nú eiga ekki kost á að njóta.
73. gr. stjórnarskrárinnar.
Félagafrelsi er tryggt í 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands frá 17. júní 1944.
Í greininni segir að menn eigi rétt á að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi.
Af þessu stjórnarskrárákvæði hefur sú ályktun verið dregin að um sé að ræða rétt manna en ekki skyldu til stofnunar félaga eða aðildar að þeim.
Með því að tengja opinber réttindi við aðild að stéttarfélagi, eins og gert er í lögum um atvinnuleysistryggingar, er vegið að félagafrelsinu. Menn eru í raun ekki frjálsir að því að hafna aðild að stéttarfélagi því að þá fyrirgera þeir rétti sínum til mjög mikilvægra opinberra réttinda, m.a. glata þeir rétti til atvinnuleysisbóta.
78. gr. stjórnarskrárinnar.
Núgildandi reglur eru jafnframt brot á 78. gr. stjórnarskrárinnar, en í þeirri stjórnarskrárgrein segir að:
„Sérréttindi, er bundin séu við aðal, nafnbætur og lögtign, má eigi taka í lög.“
Þegar þessi grein stjórnarskrárinnar var fyrst bundin í lög hafði það um langan aldur tíðkast að yfirstéttin átti þess ein kost að njóta tiltekinna réttinda. Kosningarréttur var þannig bundinn við efnahag og þessir aðilar nutu m.a. skattfrelsis og styrkja úr sameiginlegum sjóðum eingöngu vegna stöðu sinnar og ætternis.
Þessi skipan varð því allri alþýðu manna mikill þyrnir í augum og því varð það eitt fyrsta verk menntaðrar alþýðu að afnema þessi forréttindi.
Það að skilyrða rétt til atvinnuleysisbóta félagsaðild að verkalýðsfélagi felur í sér sams konar óréttlæti og 78. gr. stjórnarskrárinnar var ætlað að eyða.
Í 78. gr. stjórnarskrárinnar felst sá vilji stjórnarskrárgjafans að allir þjóðfélagsþegnar skuli njóta jafnréttis óháð félagslegri stöðu sinni eða skoðunum.
Mannréttindaákvæði alþjóðlegra sáttmála.
Ísland á aðild að og hefur jafnvel fullgilt nokkra alþjóðlega sáttmála sem skuldbinda það samkvæmt þjóðarétti til að virða tiltekin félagsleg mannréttindi.
Félagssáttmáli Evrópu.
Í þessu sambandi er félagssáttmáli Evrópu þýðingarmestur. Lönd þau, sem undirritað hafa þennan sáttmála, skuldbinda sig til þess að tryggja þegnum sínum félagsleg réttindi án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, þjóðernis eða félagslegs uppruna.
Í I. kafla sáttmálans 12. tölul. segir beinlínis að:
„Allt verkafólk og skyldulið þess á rétt á félagslegu öryggi.“
Og samkvæmt 14. tölul. skulu:
„Allir menn eiga rétt á að njóta félagslegrar velferðarþjónustu.“
Þýðingarmest er þó ákvæði II. kafla, 5. gr., sem fjallar um réttinn til að stofna félög. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Í því skyni að tryggja og stuðla að frelsi verkafólks og vinnuveitenda til að stofna staðbundin félög, landsfélög eða fjölþjóðleg sambönd til að gæta hagsmuna þeirra á sviði efnahags- og félagsmála og til að ganga í slík félög, skuldbinda samningsaðilar sig til að sjá um að landslög skerði ekki það frelsi né að þeim verði beitt til að skerða það. Í landslögum eða reglugerðum skal ákveða að hve miklu leyti trygging sú, sem þessi grein veitir, skuli taka til lögreglunnar. Það skal einnig ákvarðast í landslögum eða reglugerðum að hve miklu leyti tryggingin, sem grein þessi gerir ráð fyrir, skuli ná til manna í herþjónustu.“
Ákvæðið tryggir bæði rétt verkafólks til að ganga í félög og rétt fólks til að vera utan félaga. Sú óbeina þvingun til að vera í stéttarfélagi, sem felst í núgildandi ákvæði um atvinnuleysistryggingar, er því brot á þessari grein.
Nú nýlega bárust íslenskum stjórnvöldum athugasemdir frá sérfræðinganefnd Evrópuráðsins varðandi framkvæmd Íslands á þessari grein félagsmálasáttmála Evrópu. Athugasemdirnar eru svohljóðandi:
„Nefndin veitti sérstaka athygli athugasemdum í íslensku skýrslunni og viðbótarupplýsingum sem skýrðu ástandið hvað varðar rétt launamanna til að stofna eða ganga í stéttarfélög.
Hún veitti því fyrst og fremst athygli að samkvæmt úrskurði Hæstaréttar í desember 1988, um 73. gr. Stjórnarskrár Íslands, er mönnum ekki tryggður réttur til þess að vera ekki félagar í stéttarfélagi. Auk þess taldi rétturinn að alþjóðlegir samningar, svo sem Evrópuráðssamningur um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um almenn og pólitísk réttindi o.s.frv., ógiltu ekki sjálfkrafa „staðfest“ ákvæði stjórnarskrárinnar.
Nefndin taldi — með tilliti til þess að frelsi manna til að ganga í stéttarfélög, sem tryggt er með ákvæðum 5. gr. sáttmálans, hlýtur að fela í sér að menn séu ekki með neinum hætti skyldir til að gerast eða vera áfram félagar í stéttarfélagi — að skortur á viðeigandi vernd slíks frelsis í landslögum (hvort sem það stafar af því að viðeigandi lög hafa ekki verið sett eða fordæmisréttur löghelgar athæfi sem brýtur í bága við rétt manna til að mynda með sér félög) geti ekki talist samrýmast ákvæðum 5. gr. sáttmálans.
Nefndin veitti því enn fremur athygli að samkvæmt lögum nr. 64/1981 eiga aðeins félagar í stéttarfélögum rétt á atvinnuleysisbótum. Með tilliti til þess, að það að svipta launamann rétti til fjárhagslegrar verndar ef hann er atvinnulaus er óverjandi ráðstöfun sem hefur þann tilgang að neyða hann til að ganga í eða vera áfram félagi í stéttarfélagi, hlaut nefndin að komast að þeirri niðurstöðu að ofangreind lög brytu í bága við anda og bókstaf 5. gr. sáttmálans.
Fram kemur í íslensku skýrslunni að í flestum almennum kjarasamningum er ákvæði þess efnis að félagar í stéttarfélögum skuli ganga fyrir um vinnu. Þótt heimild til slíkrar ráðstöfunar sé ekki að finna í lögum veitti nefndin því athygli að slík ákvæði um forgang hafa verið staðfest fyrir Félagsdómi. Nefndin taldi að slíkar lögþvinganir gagnvart launamönnum, sem óska ekki eftir að vera félagar í stéttarfélögum, gætu ekki talist vera í samræmi við ákvæði 5. gr. sáttmálans um rétt manna til að mynda með sér félög.
Nefndin veitti því einnig athygli að í almennum kjarasamningum fólks, sem starfar í iðnaði og við verslunar- og skrifstofustörf, eru ákvæði þess efnis að viðkomandi fyrirtækjum sé ekki heimilt að ráða til starfa aðra en félaga í því stéttarfélagi sem það semur við um kaup og kjör. Nefndin taldi að lagasetning (eða skortur á lagasetningu), sem heimilar slíka ráðstöfun og er í mótsögn við sjálft eðli þess frelsis að stofna félög sem verndað er með ákvæðum 5. gr. sáttmálans, geti ekki talist til þess fallin að tryggja virka framkvæmd þeirrar meginreglu sem fólgin er í 5. gr.
Af ofangreindum ástæðum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ástandið á Íslandi bryti enn í bága við ákvæði 5. gr. sáttmálans. Nefndin vonaði að í næstu skýrslu kæmi fram hvort höfnun launamanns á því að ganga í eða vera áfram félagi í stéttarfélagi gæti orðið til þess að honum yrði sagt upp störfum eða honum yrði mismunað með einhverjum hætti.“
Samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, nr. 168 og 176, um aukna atvinnu og vernd gegn atvinnuleysi.
Alþjóðavinnumálastofnunin hefur gert tvær samþykktir um vernd gegn atvinnuleysi, en Ísland er aðili að þeirri stofnun og sækja fulltrúar ASÍ og VSÍ árlega þing hennar.
Í 1. tölul. 6. gr. samþykktar nr. 168 segir:
„Sérhvert aðildarríki skal tryggja að allir hinir tryggðu hafi jafnan rétt án mismununar vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, þjóðernislegs uppruna, menningarlegs- eða félagslegs uppruna, fötlunar eða aldurs.“
Í 16. tölul. samþykktar nr. 176 segir einnig:
„Aðildarríkin ættu að stuðla að því smám saman að löggjöf þeirra um atvinnuleysisbætur nái til allra launþega. Hins vegar má undanskilja tryggingarvernd opinberra starfsmanna ef þeim með landslögum eða reglugerðum er tryggð atvinna til venjulegs eftirlaunaaldurs.“
Núgildandi ákvæði um atvinnuleysistryggingar, sem skilyrða rétt til atvinnuleysisbóta félagsaðild að verkalýðsfélagi, eru bæði í andstöðu við einstakar greinar þessara sáttmála og inntak þeirra í heild.