Ferill 63. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 63 . mál.
Sþ.
1160. Nefndarálit
um till. til þál. um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Frá félagsmálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna á mörgum fundum og fékk um hana umsögn frá eftirtöldum: Alþýðusambandi Íslands og Menningar- og fræðslusambandi alþýðu, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Blaðamannafélagi Íslands, Félagi starfsfólks í veitingahúsum, kjararannsóknarnefnd, Vinnueftirliti ríkisins og Vinnuveitendasambandi Íslands.
Þá fékk nefndin á sinn fund vegna málsins Harald Finnsson, verkefnisstjóra starfsfræðsluverkefnis menntamálaráðuneytisins, og Snorra S. Konráðsson, skólastjóra Félagsmálaskóla alþýðu.
ASÍ og MFA styðja þá hugmynd að Alþingi álykti um sérstakt átak til að kynna fólki á vinnumarkaði réttindi þess og skyldur og að skipuð verði sérstök nefnd til að fylgja því átaki eftir. Hins vegar benda þau á að VSÍ hafi skipað nefnd til að fjalla um ráðningar fólks á svokölluðum verktakasamningum. Á því vandamáli verði að taka og ekki megi tengja það sérstöku átaki til að kynna fólki á vinnumarkaði réttindi þess og skyldur.
BSRB tekur undir nauðsyn þess að kynna almenningi réttindi og skyldur á vinnumarkaði en telur ástæðu til að skoða mál er varða réttindi svonefndra verktaka í öðru samhengi.
Vinnuveitendasambandið mælir gegn samþykkt tillögunnar og tekur m.a. fram eftirfarandi: „Umfangsmikil fræðsla um réttindi og skyldur launþega á sér stað innan vébanda verkalýðshreyfingarinnar með styrk af ríkisfé. Má í því sambandi benda á stofnun Félagsmálaskóla alþýðu. Þá skipaði menntamálaráðherra á síðastliðnu hausti nefnd til að fjalla um starfsfræðslu í skólum og samvinnu við atvinnulífið þar um, en nefndarskipunin er liður í fimm ára átaki ráðuneytisins til eflingar námsráðgjafar og starfsfræðslu í skólum. Verkefni nefndarinnar er m.a. að gera tillögur um heildarstefnu um starfsfræðslu í skólum og hvernig samstarfi skóla og atvinnulífs um þessi mál skuli háttað og þá væntanlega einnig hvort, og þá hvernig, tekið verður á fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Verður því með engu móti séð að þörf sé sérstaks átaks í þessum málum.“
Haraldur Finnsson, verkefnisstjóri starfsfræðsluverkefnis menntamálaráðuneytisins, en í henni eiga sæti 11 manns, staðfesti það sem fram kom í umsögn VSÍ um verkefni nefndarinnar sem er nú að móta stefnu í verkefni sínu, m.a. námsráðgjöf og námsefni, og gæti efni þingsályktunartillögunnar fallið vel að fyrirhuguðu átaki. Þá var haft samband við formann starfsfræðslunefndar, Gerði G. Óskarsdóttur, ráðgjafa menntamálaráðherra í skóla- og uppeldismálum, og tók hún í sama streng. Skipun nefndarinnar er liður í fimm ára átaki menntamálaráðuneytisins til eflingar námsráðgjafar og starfsfræðslu í skólum.
Snorri S. Konráðsson skólastjóri sagði Félagsmálaskóla alþýðu reiðubúinn að vinna með fræðsluyfirvöldum að þessum málum, en á vegum skólans og MFA hefur verið efnt til starfsfræðsludaga í skólum í vetur í tilraunaskyni.
Blaðamannafélag Íslands og Félag starfsfólks í veitingahúsum taka undir efni tillögunnar. Blaðamannafélagið segir óhætt að fullyrða „að réttarstaða verktaka er mjög báborin og hefur verið sýnt fram á að laun slíkra aðila þurfi að vera minnst 40–50% hærri en launamanns í sambærilegu starfi, eigi þeir að standa jafnir að vígi“.
Varðandi málefni verktaka segir VSÍ m.a. í umsögn sinni að aðilar vinnumarkaðarins hafi í bókun með nýgerðum kjarasamningi „lýst því yfir að þeir muni á samningstímanum vinna að því að setja skýrar reglur og skilgreiningar á stöðu launþega annars vegar og verktaka og atvinnurekenda hins vegar. Af hálfu vinnuveitenda er þessi vinna þegar hafin þar sem samin hefur verið greinargerð um þessi efni.“
Félagsmálnefnd telur að með flutningi tillögunnar sé hreyft við þörfu máli sem nauðsynlegt er að sinnt verði betur en hingað til hefur verið gert. Hins vegar er ljóst af ofangreindu að á vegum aðila vinnumarkaðarins og Félagsmálaskóla alþýðu er hafin vinna að þeim málum sem fjallað er um í tillögunni. Þá er starfandi svokölluð starfsfræðslunefnd á vegum menntamálaráðuneytisins sem vinnur að tillögum um námsráðgjöf og starfsfræðslu. Formaður nefndarinnar og starfsmaður telja að umfjöllun um fræðslu fyrir nemendur í grunnskóla og framhaldsskóla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði geti vel fallið að öðrum verkefnum nefndarinnar og telur félagsmálanefnd æskilegt að á því máli verði tekið. Með vísan til þessa og í trausti þess að vel verði staðið að framkvæmd aðgerða til að kynna fólki réttindi þess og skyldur á vinnumarkaði leggur nefndin til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 30. apríl 1990.
Hjörleifur Guttormsson,
form., frsm.
Rannveig Guðmundsdóttir,
fundaskr.
Birgir Ísl. Gunnarsson.
Alexander Stefánsson.
Guðni Ágústsson.
Kristinn Pétursson.
Anna Ólafsdóttir Björnsson.