Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 352 . mál.


Ed.

1186. Breytingartillögur



við frv. til l. um stjórn fiskveiða.

Frá Skúla Alexanderssyni.



1.    Við 7. gr. Orðin „sbr. þó ákvæði 9. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. falli brott.
2.    Við 9. gr. Greinin orðist svo:
         Sé skip selt úr byggðarlagi fylgir því þriðjungur aflahlutdeildar þess en tveir þriðju hlutar aflahlutdeildar verða eftir í því sveitarfélagi sem skipið var selt frá. Skal sveitarstjórn úthluta útgerðum annarra skipa í byggðarlaginu árlega því aflamarki sem eftir varð í tvö fiskveiðiár eða veiðitímabil eftir söluna. Eftir þann tíma skal sveitarstjórn úthluta aflahlutdeild hins selda skips varanlega öðru skipi eða öðrum skipum í byggðarlaginu. Ráðherra skal með reglugerð ákveða hvaða reglur skuli gilda um úthlutun sveitarstjórnar á aflahlutdeild eða aflamarki samkvæmt þessari grein.
3.    Aftan við 1. málsl. 6. mgr. 11. gr. komi þrír nýir málsliðir er orðist svo: Óheimilt er þó að framselja aflahlutdeild milli skipa sem ekki tilheyra sama flokki. Þó er heimilt að framselja aflahlutdeild frá stærra skipi til minna skips. Í þessu sambandi skal skipum, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, skipt upp í eftirtalda fjóra flokka: bátar undir 30 brl., bátar 30 brl. og stærri, togarar aðrir en þeir sem frysta afla um borð og frystitogarar.
4.    Við 16. gr. Í stað 1. mgr. komi tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
         Allur afli, þar á meðal sá afli sem fluttur er óunninn úr landi, skal veginn á löndunarstað. Hafnaryfirvöld á hverjum löndunarstað skulu hafa umsjón með vigtun afla og söfnun upplýsinga um landaðan afla.
         Sigli skip með eigin afla til sölu erlendis er heimilt að víkja frá ákvæði 1. mgr. um vigtun innan lands enda sé fullnægt kröfum ráðuneytisins um vigtun við löndun eða sölu afla erlendis.
5.    Ákvæði til bráðabirgða VI falli brott.