Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 415 . mál.
Nd.
1194. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. lög nr. 109/1988 og nr. 76/1989.
Frá minni hl. félagsmálanefndar.
Nefndin fjallaði um frumvarpið á tveimur fundum og gafst því lítill tími til efnislegrar umfjöllunar um þetta mikilvæga og flókna mál. Mikið kapp var lagt á að hraða afgreiðslu málsins þótt ljóst sé að á frumvarpinu séu ýmsir annmarkar og margt sem færa þarf til betri vegar. Það er hroðvirknislega unnið og hefur minni hl. fundið í því villur af furðulegasta tagi. Meiri hl. nefndarinnar gerir tillögur um að leiðrétta eitthvað af þeim.
Undirritaðir nefndarmenn eru hins vegar þeirrar skoðunar að frumvarpið þyrfti miklu nánari umfjöllunar við ef vel ætti að vera enda bera umsagnir, sem félagsmálanefnd efri deildar bárust um málið, það með sér sem og þau viðtöl sem nefndin átti við gesti. Undirritaðir hafa þó ákveðið að flytja umfangsmiklar breytingartillögur í þeim tilgangi að reyna að færa frumvarpið til skynsamlegri vegar fari svo að það verði að lögum á þessu þingi.
Ekki er unnt að gera í nefndaráliti grein fyrir öllum athugasemdum undirritaðra við frumvarpið og verða þær að verulegu leyti að bíða framsögu við 2. umr. Þó skal minnst á nokkur helstu atriði sem óhjákvæmilegt er að gagnrýna og breytingartillögur minni hl. lúta að.
1. Skipan í húsnæðisnefndir.
Með frumvarpinu eru fleiri verkefni og aukin fjárhagsleg ábyrgð á félagslega húsnæðiskerfinu flutt yfir á sveitarfélögin. Engu að síður er ekki tryggt að meiri hluti í sveitarstjórn skipi jafnframt meiri hluta í húsnæðisnefnd. Þannig getur húsnæðisnefnd með fulltingi fulltrúa minni hluta í sveitarstjórn og fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar skuldbundið sveitarfélag til stórfelldra fjárhagslegra ráðstafana án þess að það sé vilji þeirra sem fara með pólitísk völd í sveitarfélaginu. Þetta er algerlega óeðlilegt. Að vísu er skiljanlegt að verkalýðshreyfingin vilji hafa hönd í bagga þar sem fjallað er um félagslegt húsnæði sem svo er kallað, en kjörnir fulltrúar í sveitarfélaginu hljóta þó að taka á sig þá ábyrgð sem húsnæðisnefndum fylgir. Utanaðkomandi fulltrúar geta ekki komið í þeirra stað þó að um sé að ræða fulltrúa verkalýðsfélaga á staðnum.
Því má bæta við að eins og frumvarpið er úr garði gert er óljóst hvort heildarsamtök launafólks, ASÍ og BSRB, eigi að tilnefna í húsnæðisnfndirnar eða hvort staðbundin verkalýðsfélög eigi að gera það. Það verður ekki ráðið af f-lið 3. gr. (56. gr.) í frumvarpinu og ekki fengust við því skýr svör í nefndinni þó að ítrekað væri eftir þeim gengið.
2. Niðurfelling viðbótarlána til hinna verst settu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að niður falli sá möguleiki sem fyrir hendi er í gildandi lögum að veita þeim sérstakt viðbótarlán til þriggja ára úr Byggingarsjóði verkamanna sem búa við sérstaklega erfiðar fjölskyldu- og fjárhagsaðstæður og eiga í verulegum erfiðleikum við útborgun. Því er borið við að þeir sem þessarar aðstoðar hafa orðið aðnjótandi hafi oft „reist“ sér hurðarás um öxl og ekki ráðið við greiðslubyrðina. Vegna þessa gerir frumvarpið ráð fyrir að þessu fólki verði neitað um lán og því bent á að leigja. Engar upplýsingar hafa komið fram um það hve stór sá hópur fólks er sem ekki hefur ráðið við að taka viðbótarlánið miðað við hina sem einmitt þetta lán hefur gert kleift að eignast íbúð í verkamannabústaðakerfinu. Eftir þessum upplýsingum hefur hins vegar ítrekað verið gengið en þær ekki fengist.
Undirritaðir hafa staðið í þeirri meiningu að félagslega íbúðakerfinu væri einmitt ætlað að hjálpa því fólki, sem lakast er sett, til þess að koma þaki yfir höfuðið. Það er undarleg „félagshyggja“ hjá ábyrgðarmönnum þessa frumvarps og ríkisstjórninni að vilja draga úr aðstoð við þetta fólk og vísa því á leigumarkaðinn. Tekið skal fram að reynt var að leita samstöðu í nefndinni um breytingartillögu þar sem þetta yrði leiðtrétt og opnaður möguleiki fyrir því að áfram yrði heimilt að veita viðbótarlán til þriggja ára við sérstaklega erfiðar aðstæður. Þeir þingmenn, sem mynda meiri hl. í nefndinni, féllust hins vegar ekki á það og flytur minni hl. því breytingartillögu þessa efnis.
3. Á að taka upp eignir einstakra sveitarfélaga?
Sú spurning hefur vaknað hvort með frumvarpinu sé ætlunin að húsnæðisnefndir yfirtaki rekstur og útleigu þess leiguhúsnæðis sem ýmis sveitarfélög eiga. Þess má geta að Reykjavíkurborg á rúmlega 1.000 íbúðir sem leigðar eru skjólstæðingum Félagsmálastofnunar borgarinnar undir umsjón félagsmálaráðs og í umboði borgarstjórnar. Reykjavíkurborg er þinglýstur eigandi að þessum eignum sem metnar eru á um það bil 8 milljarða króna. Vitaskuld er ekki hægt með lögum að svipta borgina yfirráðarétti yfir þessum eignum sínum og fela þær nefnd með aðild utanaðkomandi samtaka. Slíkt er brot á eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar og mun eflaust kalla á umfangsmikil málaferli.
Eins og frumvarpið er orðað verður það þó eigi skilið öðruvísi en svo að einmitt þetta sé ætlunin. Sýnir það ásamt öðru hve málið er vanhugsað og illa unnið. Minni hl. flytur við 2. umr. breytingartillögu við k-lið 3. gr. (61. gr.) til að taka af allan vafa um þetta mál að því er Reykjavíkurborg varðar, en ljóst er að málið er víðtækara og þarf að athuga það mun betur.
4. Yfirtaka á skuldbindingum stjórna verkamannabústaða.
Stjórnir verkamannabústaða hafa starfað um áratugaskeið í mörgum sveitarfélögum landsins og hafa víða mikil umsvif. Í Reykjavík hefur þessi starfsemi haslað sér mikinn völl og er vel búin tækjum og ýmsum búnaði. Stjórnin hefur jafnframt gert margháttaðar skuldbindingar sem nema hundruðum milljóna króna vegna starfseminnar og er ljóst að frá þeim er ekki unnt að hlaupa án skaðabótaskyldu.
Ákvæði frumvarpsins um yfirtöku húsnæðisnefnda á réttindum og skyldum stjórna verkamannabústaða eru að dómi undirritaðra allt of losaraleg. Nauðsynlegt er að ganga frá slíkri yfirtöku þannig að ekkert fari á milli mála og að starfsfólk sé ekki í óþarfa óvissu um framtíð sína á vinnustaðnum. Í því er ekki minnst á rétt starfsfólks stjórna verkamannabústaða og er það vægast sagt furðulegt að frumvarp frá félagsmálaráðherra sé þannig úr garði gert. Minni hl. gerir breytingartillögur við ákvæði til bráðabirgða sem ætlað er að eyða óvissu vegna yfirtöku húsnæðisnefnda á starfsemi stjórna verkamannabústaða og tryggja hag starfsfólksins. Þá er og gert ráð fyrir að frumvarpið taki gildi 1. september nk. þannig að nægur tími vinnist til að huga að uppgjörsmálum í tengslum við yfirtökuna og að umboð stjórna verkamannabústaða framlengist til þess tíma.
——————
Fjölmargt annað mætti nefna sem minni hl. gerir athugasemdir og breytingartillögur við en það verður látið bíða framsögu fyrir nefndaráliti þessu.
Alþingi, 2. maí 1990.
Geir H. Haarde,
frsm.
Eggert Haukdal.