Ferill 264. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 264 . mál.
Ed.
1210. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á lögum um Landsvirkjun, nr. 43/1983.
Frá iðnaðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og sent það til umsagnar. Umsagnir bárust frá Fjórðungssambandi Norðlendinga, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, iðnaðarráðuneytinu, Orkubúi Vestfjarða, Orkustofnun, Rafmagnsveitum ríkisins, Sambandi íslenskra rafveitna, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samtökum sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi.
Landshlutasamtök og fleiri aðilar lýsa yfir eindregnum stuðningi við tilgang frumvarpsins og leggja til að það verði samþykkt. Í umsögnum frá öðrum koma hins vegar fram ábendingar um að betur þurfi að huga að ákvæðum þess. Þar sem ekki vinnst tími til þess fyrir þinglok telur nefndin rétt að iðnaðarráðherra skipi nú þegar nefnd til að semja frumvarp um verðjöfnun á raforku og leggi það fyrir Alþingi á næsta þingi.
Í trausti þess leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Guðrún Agnarsdóttir var fjarverandi afgreiðslu málsins.
Alþingi, 3. maí 1990.
Karl Steinar Guðnason,
form., frsm.
Jón Helgason.
Þorv. Garðar Kristjánsson.
Margrét Frímannsdóttir.
Stefán Guðmundsson.
Ey. Kon. Jónsson.