Ferill 417. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 417 . mál.
Ed.
1214. Nefndarálit
um frv. til l. um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða.
Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk til viðræðna Guðmund Björnsson frá fjármálaráðuneytinu. Einnig barst umsögn frá Sambandi almennra lífeyrissjóða.
Nefndin leggur til að tvær breytingar verði gerðar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er gerð tillaga um tæknilega breytingu á 6. mgr. 3. gr. frumvarpsins. Í öðru lagi er lagt til að skoðunarmenn reikninga tilkynni ekki einungis stjórn lífeyrissjóðs og bankaeftirliti ef vart verður verulegra ágalla í rekstri sjóðsins heldur einnig fjármálaráðuneyti.
Lagt er til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 3. maí 1990.
Guðmundur Ágústsson,
form., frsm.
Jóhann Einvarðsson,
fundaskr.
Ey. Kon. Jónsson.
Halldór Blöndal.
Skúli Alexandersson.
Sveinn Gunnar Hálfdánarson.
Danfríður Skarphéðinsdóttir.