Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 249 . mál.
Nd.
1222. Nefndarálit
um frv. til l. um fjárgreiðslur úr ríkissjóði o.fl.
Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.
Nefndin er sammála um að leggja til að frumvarpið verði afgreitt með svofelldri
RÖKSTUDDRI DAGSKRÁ:
Nefndin hefur athugað frumvarpið og telur að hér sé hreyft mjög þörfu máli. Í ljósi þess að fjármálaráðherra hefur lagt fram hugmyndir sem ganga í sömu átt og frumvarpið, og þar sem forsætisráðherra er að láta gera lögfræðilega úttekt á málinu telur nefndin rétt að unnið sé áfram að þessu máli og eðlilegt að kveðja til fleiri aðila. Í trausti þess að unnið verði að málinu í sumar samþykkir deildin að taka fyrir næsta mál á dagskrá.
Alþingi, 3. maí 1990.
Páll Pétursson,
form., frsm.
Þórhildur Þorleifsdóttir,
fundaskr.
Matthías Bjarnason.
Friðrik Sophusson.
Þórður Skúlason.
Guðmundur G. Þórarinsson.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.