Ferill 417. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 417 . mál.
Ed.
1225. Frumvarp til laga
um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða.
(Eftir 2. umr. í Ed., 4. maí.)
1. gr.
Stjórn lífeyrissjóðs skal sjá um að saminn sé ársreikningur fyrir hvert almanaksár í samræmi við reglur sem Seðlabanki Íslands setur. Ársreikningur skal hafa að geyma ársskýrslu, rekstrarreikning, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris, fjármagnsstreymi og skýringar. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum og góðri reikningsskilavenju, bæði að því er varðar mat á hinum ýmsu liðum og framsetningu.Í ársskýrslu stjórnar skal koma fram yfirlit um starfsemi sjóðsins á árinu, svo og upplýsingar um atriði er mikilvæg eru við mat á fjárhagslegri stöðu sjóðsins og afkomu hans á reikningsárinu er ekki koma fram annars staðar í ársreikningnum.
Ársreikningur lífeyrissjóðs skal lagður fyrir skoðunarmenn eigi síðar en þremur mánuðum eftir lok reikningsárs.
Ársreikningur skal undirritaður af öllum stjórnarmönnum lífeyrissjóðs. Hafi einhver stjórnarmanna mótbárur fram að færa gegn ársreikningi skal hann undirrita með fyrirvara og gera skal grein fyrir því í ársskýrslu hvers eðlis fyrirvarinn er.
2. gr.
Endurskoðun hjá lífeyrissjóði skal framkvæmd af tveimur skoðunarmönnum, sem valdir eru samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð sjóðsins, og einum skoðunarmanni sem er löggiltur endurskoðandi.3. gr.
Skoðunarmenn skulu framkvæma endurskoðun í samræmi við góðar endurskoðunarvenjur og reglur Seðlabanka Íslands þar að lútandi. Með endurskoðun sinni skulu þeir komast að rökstuddri niðurstöðu um áreiðanleikaþeirra upplýsinga sem ársreikningurinn veitir. Þeir skulu ganga úr skugga um að ársreikningurinn sé gerður í samræmi við góða reikningsskilavenju og fylgt hafi verið ákvæðum laga, reglna og samþykkta varðandi meðferð fjármuna, ráðstöfun fjár, ávöxtun og upplýsingaskyldu lífeyrissjóða.
Skylt er að veita skoðunarmönnum aðstöðu til að gera þær athuganir sem þeir telja nauðsynlegar. Þeir skulu fá aðgang að öllum eignum, bókum, fylgiskjölum og öðrum gögnum lífeyrissjóðsins og skulu stjórn sjóðsins og starfsmenn veita þeim allar þær upplýsingar sem þeir æskja og unnt er að láta í té.
Skoðunarmenn skulu árita ársreikninginn og greina frá niðurstöðum endurskoðunarinnar. Þeir skulu gefa upplýsingar um að ársreikningurinn hafi verið endurskoðaður og að hann hafi verið saminn í samræmi við ákvæði laga, reglna og samþykkta. Þeir skulu láta í ljósi álit á ársreikningnum og greina frá niðurstöðum endurskoðunarinnar að öðru leyti.
Telji skoðunarmenn að í ársreikningi séu ekki þær upplýsingar, sem þar eiga að koma fram, skulu þeir geta þess í áritun sinni og veita viðbótarupplýsingar, ef þess er kostur. Að öðru leyti geta skoðunarmenn greint frá þeim atriðum í áritun sinni sem þeir telja eðlilegt að fram komi í ársreikningi.
Ábendingar og athugasemdir, sem skoðunarmenn vilja koma á framfæri við stjórn eða framkvæmdastjóra, skal bera fram skriflega og skal veita þessum aðilum hæfilegan frest til svara. Ef skoðunarmönnum þykir ástæða til skulu þeir gera tillögur til stjórnar lífeyrissjóðs um endurbætur varðandi meðferð fjármuna, um breytingar á innra eftirliti og öðru því sem þeir telja að geti verið til bóta í rekstri lífeyrissjóðsins.
Skoðunarmönnum er skylt að veita Seðlabanka Íslands allar þær upplýsingar um málefni lífeyrissjóðs og framkvæmd endurskoðunar sem hann kann að óska eftir og þeir geta látið í té. Ef endurskoðun leiðir í ljós verulega ágalla í rekstri lífeyrissjóðs varðandi innra eftirlit, iðgjaldainnheimtu, greiðslutryggingar útlána, meðferð fjármuna eða önnur atriði, sem veikt geta fjárhagsstöðu lífeyrissjóðsins eða skaðað hann að öðru leyti, skulu skoðunarmenn gera stjórn sjóðsins, fjármálaráðuneytinu og Seðlabanka Íslands viðvart.
Skoðunarmenn hafa rétt til að sitja stjórnarfund þar sem fjallað er um ársreikning.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 1991.