Ferill 181. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 181 . mál.
Sþ.
1242. Nefndarálit
um till. til þál. um eflingu löggæslu.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna á nokkrum fundum. Það er skoðun nefndarinnar að þótt efling löggæslu á því svæði, þar sem þörfin er mest, hafi orðið óvenjumikil með auknum fjárveitingum á þessu þingi þá sé hér um svo veigamikinn málaflokk að ræða að seint sé nóg að gert á því sviði. Framkvæmd laga og réttar byggist á öruggri og vel uppbyggðri löggæslu. Með tilliti til sífellt aukinna verkefna á sviði löggæslu leggur því nefndin til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 4. maí 1990.
Guðni Ágústsson,
form., frsm.
Jón Kristjánsson,
fundaskr.
Guðrún Helgadóttir.
Karl Steinar Guðnason.
Eggert Haukdal.
Kristinn Pétursson.
Ingi Björn Albertsson.