Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Ed.

1268. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, l. nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá 1. minni hl. allsherjarnefndar.



    Nefndin ræddi málið á einum fundi en hefur ekki fjallað efnislega um frumvarpið, enda ætlað að afgreiða það innan sólarhrings frá því að málið kom til deildarinnar.
    Endanleg afgreiðsla þessa mikilvæga máls er staðfesting á því að tilgangur ríkisstjórnarinnar með stofnun umhverfisráðuneytis var að tryggja sér meiri hluta á Alþingi en stefna ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum og viðfangsefni ráðuneytis umhverfismála aukaatriði.
    Slík vinnubrögð eru ámælisverð og Alþingi til vansæmdar.
    Afstaða 1. minni hl. við afgreiðslu málsins hlýtur að markast af þessum óhæfu vinnubrögðum.

Alþingi, 4. maí 1990.



Salome Þorkelsdóttir,


frsm.


Ey. Kon. Jónsson.