Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Ed.

1275. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, lögum nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá meiri hl. allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið en efni þess var rætt ítarlega í nefndinni fyrr á þessu þingi er hún hafði til umfjöllunar 129. mál, um Stjórnarráð Íslands. Fékk nefndin þá á sinn fund fulltrúa margra þeirra stofnana sem málið varðar.
    Við meðferð málsins í neðri deild voru gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu. Í þeim er fyrst og fremst komið til móts við þau sjónarmið að draga nokkuð úr og seinka tilfærslu verkefna til umhverfisráðuneytis í þessum fyrsta áfanga á meðan endurskoðun fer fram á lögum um þær stofnanir sem þessum verkefnum tengjast og vanda þannig betur undirbúning málsins.
    Í athugasemdum við ákvæði til bráðabirgða í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, 129. mál þessa þings, sem fellt var niður í meðferð neðri deildar á því frumvarpi, segir svo:
    „Við endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt skulu eftirtalin málefni verða á verksviði umhverfisráðuneytis:
1.    Gróðureftirlit og gróðurrannsóknir.
2.    Gróðurvernd, þar á meðal hvers konar varnir gegn gróðureyðingu, án þess að búist verði við að á móti komi arður eða efnahagslegar nytjar.
    Á verksviði landbúnaðarráðuneytis verði eftirtalin málefni:
1.    Ræktun ógróins eða lítt gróins lands með það í huga að fá af því beinar nytjar, t.d. að rækta beitilönd og tún.
2.    Breytingar á landi til að bæta gróðurfar þess í atvinnuskyni og renna þannig fleiri stoðum undir landbúnaðinn, t.d. með ræktun nytjaskóga.“
    Við þessa endurskoðun, sem varðar málefni á verksviði ráðuneytisins, er nauðsynlegt, vegna þeirrar skipulagsbreytingar sem verður við stofnun þess, að ná sem víðtækastri samstöðu. Skipulagsbreytingin má ekki raska mikilvægri starfsemi stofnana, heldur verði það meginmarkmið umhverfisráðuneytisins að auka samstarf þeirra og efla þær. Meiri hl. nefndarinnar telur að á grundvelli þessarar lagasetningar sé hægt að vinna að framgangi mála á þann hátt.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur því til að frumvarpið verði samþykkt eins og neðri deild afgreiddi málið.
    Sveinn G. Hálfdánarson sat lokafund nefndarinnar um málið og lýsti sig samþykkan þessari afstöðu meiri hl. nefndarinnar.

Alþingi, 5. maí 1990.



Jón Helgason,


form., frsm.


Guðmundur Ágústsson,


fundaskr.


Jóhann Einvarðsson.


Skúli Alexandersson.