Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Ed.

1276. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, lögum nr. 20 30 apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur.



1.     Á undan 1. gr. frumvarpsins komi tvær nýjar greinar svohljóðandi:
    a.     (1. gr.)
                  1. málsl. 2. gr. laga nr. 3/1955, um skógrækt, sbr. lög nr. 76/1984, orðist svo:
                  Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn skógræktarmála samkvæmt lögum þessum, sbr. þó IV. kafla laga þessara um ræktun nytjaskóga á bújörðum.
    b.     (2. gr.)
                  Í stað orðsins „landbúnaðarráðherra“ í upphafi 3. gr. laga nr. 17/1965, um landgræðslu, sbr. 2. gr. laga nr. 54/1975, komi: umhverfisráðherra.
                  Í stað orðsins „landbúnaðarráðuneytinu“ í 2. mgr. 2. tölul. 7. gr. sömu laga komi: umhverfisráðuneytinu.
                  Í stað orðsins „landbúnaðarráðherra“ í 4. mgr. 8. gr. sömu laga komi: umhverfisráðherra.
                  Í stað orðsins „landbúnaðarráðherra“ í 1. málsl. 13. gr. sömu laga komi: umhverfisráðherra.
                  Í stað orðsins „landbúnaðarráðuneytið“ í 5. mgr. 23. gr. sömu laga, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1982, komi: umhverfisráðuneyti.
2.     Lokamálsgrein 1. gr. frumvarpsins falli brott.