Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 386 . mál.


Nd.

1290. Breytingartillaga



við frv. til l. um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands.

Frá Jóni Kristjánssyni.



    Við 6. tölul. ákvæðis til bráðabirgða bætist nýr málsliður svohljóðandi: Þó skal ráðherra láta nú þegar athuga hvort hagkvæmara sé að Árness-, Hólmavíkur- og Prestsbakkaprestaköll í Húnavatnsprófastsdæmi færist til prófastsdæmis í Vestfjarðakjördæmi. Verði sú niðurstaða skal hann leggja fram frumvarp til laga um þá breytingu á næsta Alþingi.