Forseti Íslands setur þingið
Miðvikudaginn 10. október 1990


     Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir) :
    Hinn 1. október 1990 var gefið út svofellt bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra að Alþingi skuli koma saman til fundar miðvikudaginn 10. október 1990.
    Um leið og ég birti þetta er öllum sem setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 1. október 1990.

Vigdís Finnbogadóttir.







Steingrímur Hermannsson.


    Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar miðvikudaginn 10. október 1990.``

    Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett.
    Bið ég yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.
    [Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.]
    Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram og bið ég aldursforseta, Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., að ganga til forsetastóls.