Rannsókn kjörbréfs
Fimmtudaginn 11. október 1990


     Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og tekið fyrir kjörbréf Guttorms Einarssonar, 1. varamanns á lista Borgfl. í Reykjavík, sem taki sæti Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur. Kjörbréfanefnd hefur athugað þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.