Kosning forseta og skrifara
Fimmtudaginn 11. október 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Ég þakka hv. þm. það traust sem þeir hafa nú sýnt mér þriðja sinni með því að fela mér embætti forseta þingsins.
    Við eigum fyrir höndum stutt og annasamt þing og mikilvæg mál bíða afgreiðslu. Ég vona að við eigum góð og drengileg samskipti hér eftir sem hingað til. Ég mun leitast við að tryggja að á einskis manns rétt sé gengið svo að þingið megi starfa á þann veg sem því sæmir.
    Forsetar þingsins og starfslið hafa átt annasamt sumar við ýmsar skipulagsbreytingar innan þings sem miðað hafa að því að bæta starfsskilyrði þingmanna. Því verki er engan veginn lokið en sú er þó von okkar að það sem þegar hefur verið gert hafi vel til tekist og verkið auðveldi nokkuð störf þingmanna.
    Ég færi starfsmönnum þakkir fyrir vel unnin störf við þessa endurskipulagningu og endurtek þakkir mínar til hv. þm.