Kosning forseta og skrifara
Fimmtudaginn 11. október 1990


     Halldór Blöndal (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Þó svo hæstv. fjmrh. sé svo heppinn að hafa atkvæðisrétt hér sem varamaður hv. þm. Geirs Gunnarssonar er hann ekki kjörgengur til forsetakjörs. Því verður þessi atkvæðaseðill að skrifast ógildur þótt hæstv. fjmrh. hafi sýnt góða viðleitni til þess að hreppa þetta virðulega embætti.