Kosning forseta og skrifara
Fimmtudaginn 11. október 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Ég vil byrja á því að þakka hv. þingdeildarmönnum það traust sem þeir hafa sýnt mér með því að kjósa mig forseta þessarar virðulegu deildar. Ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að bregðast ekki þessu trausti og vænti þess fastlega að geta átt á þessu þingi, eins og raunar hinu síðasta, gott samstarf við alla þingdeildarmenn og gildir þá einu hvort um er að ræða þingmenn stjórnar eða stjórnarandstöðu.