Rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 15. október 1990


     Frsm. kjörbréfanefndar (Matthías Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Huldu Jensdóttur sem er undirritað af landskjörstjórn 12. okt. 1989. Þar er sagt að hún hafi hlotið við alþingiskosningarnar 25. apríl 1987 kosningu sem 4. varamaður Borgfl. í Reykjavík lögmæltan tíma, en þar sem einn þingmaður Borgfl. hefur sagt af sér og annar hefur látist á þessu tímabili þá er Hulda Jensdóttir 2. varamaður Borgfl. í Reykjavík.
    Kjörbréfanefnd hefur ekkert við þetta kjörbréf að athuga og leggur til að það verði samþykkt.