Þorv. Garðar Kristjánsson :
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að ræða nú alhliða um hið víðfeðma og margslungna mál sem nú er hér til umræðu utan dagskrár, álmálið. Ég hef ekki getað metið sjálfstætt ýmsa meginþætti málsins, svo sem rafmagnsverðið, skatttekjur og mengunarvarnir. Ég hef ekki fengið í hendur upplýsingar og gögn varðandi viðræður stjórnvalda og hinna erlendu fyrirtækja um stofnsetningu nýs álvers. Það er eins með mig og flesta aðra þingmenn stjórnarandstöðunnar að við vitum ekki annað en það sem fjölmiðlar hafa greint frá og um það greinir menn á meira að segja hvernig túlka skuli. Ég geymi mér því að ræða ýmsa veigamikla þætti málsins þar til gögn um þau hafa verið lögð fram hér á Alþingi.
En mér þykir tímabært að koma hér inn á nokkur atriði sem varða staðsetningu nýs álvers. Sú hlið málsins verður ekki skoðuð nema í samhengi við almenna byggðaþróun í landinu. Kemur þá til sögunnar hin alrómaða byggðastefna. Ég ætla mér ekki þá dul að fara hér nú á þessari stundu að gera skil stöðu þeirra mála, hinni svokölluðu byggðastefnu eða réttara sagt því afskræmi hennar sem við höfum lengi búið við og blasir nú við sjónum okkar og sker í augu fremur en nokkru sinni fyrr í nekt sinni, blekkingum og falsi.
Ég vil aðeins árétta meginatriðin. Byggðastefna á að hafa það markmið að tryggja búsetu í byggðum landsins. Það verður gert á þeim grundvelli og að því marki sem skilyrði eru fyrir hendi. Markmiðið er að auðlindir landsins megi nýta með sem mestri hagkvæmni en það verður einmitt ekki gert nema með því móti að landið haldist almennt í byggð. Það neitar því enginn að gæðin til lands og sjávar, náttúruauðlindirnar, eru ekki aðeins á höfuðborgarsvæðinu, heldur vítt og breitt um byggðir landsins. Þess vegna er það höfuðskilyrði að undirstaða auðsköpunar, fólkið sjálft, sé til staðar vítt og breitt um landið svo að mestum arði megi skila í þjóðarbúið.
En hvers vegna er þetta þá ekki í lagi? Hvers vegna stöndum við frammi fyrir slíkri gífurlegri byggðaröskun að nú liggur við kollsteypu í byggðaþróun landsins? Hvað hefur brugðist? Náttúrugæði landsbyggðarinnar hafa ekki brugðist. Þau eru til staðar á sama stað og áður. Auðlindirnar eru samar við sig, en hvað hefur þá brugðist?
Það er oft talað um margslungnar ástæður fyrir þessari þróun og það er rétt. En í hnotskurn er svarið: Stjórnvöld. Það er rangri stjórnarstefnu um að kenna. Til að einfalda málið nefni ég sérstaklega tvær ástæður, en þær eru líka að mínu viti höfuðástæðurnar fyrir byggðarröskun síðustu ára og því geigvænlega ástandi sem nú blasir við. Og hvað er þetta? Röng fiskveiðistefna og röng gengisstefna. Með þessum hætti er brugðið hnappheldu á framtak landsbyggðarfólksins og það svipt arði af framlagi þess til þjóðarbúsins. Og er nema von að slíkt valdi fólksflótta frá landsbyggðinni og byggðarröskun? Allt er þetta augljóst, svo og andsvar hinnar svokölluðu byggðastefnu við þessu öllu saman.
Talað er um aðstoð, stuðning og styrki við landsbyggðina. En hvað eru þessir molar af nægtaborði höfuðborgarsvæðisins sem falla í skaut landsbyggðarinnar? Því miður breyta þeir engu um þá stefnu stjórnvalda sem er undirrót fyrir erfiðleikum landsbyggðarinnar. Í besta falli geta þeir sem deyfilyf linað sársauka í einstaka tilfellum en þó aðeins í bili. Sjúkdómurinn herjar jafnt eftir sem áður. Það er engin önnur lækning til en að fólkið fái notið auðlinda landsins hvar sem þær er að finna og njóti arðsins af þeirri verðmætasköpun sem er undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar. Þegar svo er komið er engu að kvíða um framtíð landsbyggðarinnar.
Ég lofaði fjölyrða ekki hér og nú um byggðastefnu. Ég hef aðeins viljað draga upp bakgrunninn að ástandinu nú þegar verið er að ákveða staðsetningu nýs álvers. Það verður að segjast eins og er að það var engin goðgá að menn létu sér til hugar koma að kannski mætti með staðsetningu álversins hamla eitthvað á móti byggðarröskun í landinu. Menn létu sér til hugar koma að það væri þó alltaf betri kostur en að kynda undir það ófremdarástand sem við stöndum frammi fyrir. Við vitum hvernig fór um sjóferð þá. Hér er búið að lýsa skrípaleiknum í staðsetningarmálinu. Ég skal engu bæta þar við, en aðeins eitt: Þegar Íslendingar sem standa að því að velja Keilisnes fyrir aðsetur álversins segja að útlendingarnir hafi ráðið því, þá vitum við það. En við hljótum að spyrja: Eiga útlendingar að ráða yfirleitt um staðsetningu stóriðjufyrirtækja í landinu? Við komumst ekki hjá að spyrja okkur þessarar spurningar. Eigum við Íslendingar þá að eiga undir útlendingum hver byggðarþróun verður í framtíðinni? ( HBl: Svo virðist vera.) Svo virðist vera, segir hv. þm. Ég spyr ekki að ástæðulausu og það mátti hv. þm. vita. Ef þetta á að vera stefnan, ef þetta á að vera framtíðarsýnin, þá er ég ekki lengur fylgjandi stóriðju. Það er ekki hægt að sætta sig við háttalag hæstv. ríkisstjórnar. Og framferði hennar í þessu staðsetningarmáli getur ekki orðið neitt fordæmi í framtíðinni. Annað mál er það að öll þessi uppákoma vekur til umhugsunar um stóriðjumálin almennt, álver og aðra valkosti.
Auðvitað er það svo með álver að tilkoma þeirra í efnahagslíf landsins hefur ýmsar hliðar. Slík stóriðjuver hafa bæði kosti og galla miðað við íslenska staðhætti. Það eru ótvíræðir kostir við álver að því fylgir mikil orkusala, miklar skatttekjur og mikil atvinna. Hins vegar fylgja ýmsir gallar slíkri stóriðju sem álver er. Þar má til nefna stærð fyrirtækjanna miðað við íslenskar aðstæður, þenslu í efnahagslífinu meðan á uppbyggingu stendur, mikla skuldasöfnun vegna stofnkostnaðar stórvirkjana, langan undirbúningstíma framkvæmda og takmarkað svigrúm um staðarval. Þrátt fyrir gallana eru kostirnir það miklir að álver hljóta að vera inni í myndinni sem góður valkostur. Það hefur heldur ekki farið fram hjá mönnum. Sannleikurinn er sá að um langt árabil hafa hugmyndir manna um frekari stóriðju hér á landi fyrst og fremst snúist um framleiðslu á áli. Hafa þær ástæður einkum verið færðar fram fyrir þessari stefnu að álframleiðsla væri langfyrirferðarmest þeirra greina orkufreks iðnaðar sem stunda megi hér á landi og einnig sú ágóðavænlegasta. Látum þetta allt vera. En það er ekki nægilegt að hugsa bara um framleiðslu áls til uppbyggingar á stóriðju til hagnýtingar á hinum miklu orkulindum landsins.
Orkufrekur iðnaður heimsbyggðarinnar fyrirfinnst ekki eingöngu í álframleiðslu. Það skyldu menn ekki halda. Það eru aðrir mikilvægir valkostir fyrir hendi. En svo virðist sem þeir hafi verið stórlega forsómaðir. Það hefur allt horfið í skuggann fyrir álumræðunni. Það hefur verið vanrækt að safna upplýsingum um annað en álframleiðslu. Það hefur vantað að kanna markaðsmöguleika á orku fyrir utan álmarkaðinn. Það hefur skort að fylgjast almennt með þróun iðngreina sem til greina koma sem stórnotendur innlendrar orku í framtíðinni.
Ég minnist samt þess að fyrir tveimur árum var sett á stofn markaðsskrifstofa iðnrn. og Landsvirkjunar sem var ætlað að sinna slíkum verkefnum sem ég hef hér talað um. En mér er ekki kunnugt um að þessi markaðsskrifstofa hafi enn sem komið er valdið nokkrum straumhvörfum. Það þarf að taka til athugunar hvað helst sé til ráða til að bæta hér úr.
Það sem er mikilvægt í þessu sambandi er að gera greinarmun á iðnaðarkostum eftir orkuþörf og orkutegund. Þá iðnaðarkosti sem innlend orka gerir mögulega má flokka eftir orkuþörf hvers um sig jafnframt því hvort þeir nýta raforku eingöngu eða jarðvarma að mestu leyti. Iðjuver sem getur nýtt jarðvarma mun þó ætíð jafnframt nýta raforku og þá fer það eftir hlutfallslegri orkuþörf hvort iðjuverið geti fengið alla sína raforku úr háhitasvæði eða hvort raforka frá vatnsaflsvirkjun þarf að koma til viðbótar.
Vert er í þessu sambandi að hafa sérstaklega í huga hve orkunýtingin getur verið mismunandi eftir stærð iðjuveranna. Sem dæmi má taka álver af hagkvæmri stærð, t.d. 200 þús. tonna framleiðslu á ári ásamt rafskautaverksmiðju. Orkuþörfin væri þá allt að 3000 gwst. á ári og starfsmannafjöldi í álverinu sjálfu um 600 manns, þ.e. eitt ársverk fyrir hverjar 5 gwst. á ári. Til samanburðar má t.d. taka verksmiðju þá sem Airco -- fyrirtækið bandaríska leitaði eftir að fá að reisa hér á landi fyrir um átta árum til að herða rafskaut fyrir stálbræðsluofna. Samkvæmt mínum heimildum var orkuþörf þeirrar verksmiðju talin vera 75 gwst. á ári og starfsmannafjöldi 125 menn, þ.e. 0,6 gwst. á ári fyrir hvert ársverk eða allt að átta sinnum fleiri störf á orkueiningu en við álver. Svo mismunandi geta iðjuverin verið með tilliti til atvinnutækifæranna sem hagnýting orkunnar skapar. Ég vil ekki fullyrða að þetta sé einhlítt um orkufrekan iðnað, en benda má á að sjálfvirkni er stöðugt að aukast og því stærri sem einingarnar eru er að öðru jöfnu hagkvæmara að nýta sjálfvirknina, þ.e. eftir því sem iðjuverin eru stærri veitir orkunýtingin hlutfallslega færri atvinnutækifæri.
Stefnumörkun í nýtingu innlendra orkulinda fer eftir því hvort ætlunin er að fá sem flest störf með því að virkja þær eða hvort hagkvæmara er að selja orkuna til fárra stórnotenda sem nota mikla orku á hvert
mannár. Einnig ber að hafa í huga undirbúningstíma virkjana og iðjuvera. Því smærri sem einingarnar eru, því fyrr ætti að vera mögulegt að koma þeim í rekstur og valkostir viðvíkjandi staðarvali eru fleiri.
Af þessu er ljóst að smærri iðjuverin eiga að geta hentað betur íslenskum aðstæðum en stór álver. Þau henta betur til atvinnuuppbyggingar á hinum ýmsu stöðum á landsbyggðinni en hin stóru álver. Slík iðjuver geta tryggt búsetu í einstökum héruðum og stuðlað að myndun þéttbýliskjarna í hinum ýmsu landshlutum og eflt byggðarjafnvægið víðs vegar um landið. Þess vegna má ekki vanrækja að kanna markaðsmöguleika á orku til slíkra iðjuvera jafnframt því sem stóriðjuver eins og álver séu líka inni í myndinni.
Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Hinar miklu þrengingar sem staðið hefur verið frammi fyrir nú við staðarval nýs álvers mættu verða stjórnvöldum að kenningu og hvatningu um að endurskoða öll vinnubrögð til undirbúnings að hagnýtingu hinna dýrmætu orkulinda landsins til að efla byggðarjafnvægi í landinu og treysta efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar.