Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Þó að margt mætti segja um þetta mál sem hefur verið svo umrætt að undanförnu vil ég virða tilmæli forseta og vera fremur stuttorður. Ég vil taka það fram að ég hef verið stuðningsmaður þess að leita eftir nýjum iðnaðarkostum sem byggja á orku íslenskra fallvatna. Sú skoðun mín byggist m.a. á því að hefðbundnir atvinnuvegir okkar hafa búið við takmarkanir. Það þekkja allir þær framleiðslutakmarkanir og er óþarfi að eyða mörgum orðum að þeim. Nýjar atvinnugreinar sem menn hafa reynt hafa gengið misjafnlega og þarf ekki heldur að lýsa því nánar. Smáiðnaður hefur ekki komist á legg í þeim mæli að hann hafi getað tekið við því vinnuafli sem losnar í hinum hefðbundnu atvinnugreinum. Hagvöxtur hér á landi þarf að aukast svo sem er í helstu viðskiptalöndum okkar. M.a. af þessum sökum hef ég og við framsóknarmenn verið fylgjandi því að leita eftir þeim iðnaðarkostum sem byggja á orku íslenskra fallvatna sem er ein okkar mesta auðlind.
Það eru tvö grundvallaratriði sem þessi iðnaðaruppbygging þarf að lúta. Hún þarf að lúta ýtrustu kröfum um mengunarvarnir og það þarf að tryggja það að hún raski ekki byggð í landinu. Nú liggur fyrir skoðun viðsemjenda á staðarvali fyrir álver. Sú niðurstaða sem þeir komust að í þessi efni var okkur mikil vonbrigði sem vonuðum að samningar mundu takast um staðsetningu á Austurlandi eða á Norðurlandi. Af þessum slag um staðsetninguna má sitthvað læra. Ég tel að það sé ófært að leggja staðarval í hendur viðsemjenda með þessum hætti. Mín skoðun er að velja hefði átt einn stað fyrir fram og bjóða upp á hann. Mér virðist af öllum gangi þessa máls að ekki hafi verið haldið fram öðrum stöðum en Straumsvík og síðar Keilisnesi af neinni alvöru af þeim sem fóru með samninga fyrir Íslands hönd. Ég er ekki að væna hæstv. iðnrh. um það að hann hafi ekki haft hug á því að koma þessu fyrirtæki út á land en mér er nær að halda að þeir kostir hafi ekki verið reifaðir af neinni alvöru í samningunum sjálfum. Ég hef a.m.k. ekki sannfærst um það.
Mér finnst mest um vert, eins og málið er komið nú, að slíkt endurtaki sig ekki og skipulag markaðsleitar verði endurskoðað frá grunni, og áhrif landsbyggðarinnar verði aukin í þeirri markaðsleit sem fram undan er. Væntanlega mun þetta álver ekki verða lokapunktur á þeirri leit. Það liggur fyrir og það hefur komið fram í undirbúningi þessa máls, þvert ofan í fullyrðingar þar um, að kostnaðarmunur er ekki því til fyrirstöðu að byggja slík fyrirtæki úti á landi. Það á nú þegar að taka upp samstarf iðnrn. við heimamenn á þeim stöðum sem nefndir hafa verið í þessu sambandi um frekari markaðsleit í þessu efni. Lyktir þessa máls hljóta að tengjast eftirfarandi atriðum:
Að orkuverð og skattamál í slíkum samningum séu þess virði fyrir íslenska þjóð að ganga frá þeim. Munu þessir samningar borga upp kostnaðinn við nýjar virkjanir án verðhækkana til almennings og auka hagvöxt í landinu? Þetta er grundvallaratriði.
Í öðru lagi eru áhrif þessara framkvæmda á atvinnulíf og byggðarþróun í landinu. Er mögulegt að vega upp áhrifin af slíkri framkvæmd á suðvesturhorninu þannig að það sporðreisi ekki byggðina í landinu? Og í þriðja lagi, hver verða efnahagsleg áhrif slíkra stórframkvæmda?
Án þess að sjá samhengi allra þessara þátta getur málið ekki fengið afgreiðslu og ég vil þá ekki síst benda á byggðarþáttinn, sem hefur fallið nokkuð í skuggann síðan kveðið var upp úr um staðsetninguna og umræður hófust í alvöru um orkuverð og skatta.
Ég vil að lokum víkja að þeirri umræðu sem verið hefur um jöfnun raforkuverðs. Sú umræða er ekki ný og hana á ekki að tengja þessu máli út af fyrir sig. Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að í tengslum við hinar miklu orkuframkvæmdir og þau tímamót að allir landshlutar leggja til vatnsréttindi í stórum stíl eigi að stíga skrefið til fulls og jafna orkukostnað landsmanna. Núverandi ástand er óþolandi mismunun fyrir fyrirtæki og einstaklinga í landinu og það er ekki hægt að kyngja þeim rökum sem hér hefur þó heyrst í dag brydda á, að Landsvirkjun ráði ekki við þetta verkefni.
Ég vil aðeins koma inn á málflutning sjálfstæðismanna í þessu máli í dag því ég hef hlustað nokkuð vel á þessa umræðu. Mér finnst einkennilegt að heyra hv. frummælanda hafa áhyggjur af byggðarþættinum í þessu máli, þar sem það er alveg rétt hjá honum að hann hóf í sinni iðnaðarráðherratíð aðgerðir í þessum málum. En þá stóð bara ekki til að byggja neitt álver úti á landsbyggðinni, það var ekkert orðað. ( FrS : Þetta er rangt hjá hv. þm., hann hefur ekkert hlustað á umræðuna.) Það var bara ekkert orðað. Það átti að stækka álverið í Straumsvík, um það snerist málið. ( FrS : Mér finnst að hv. þm. verði að hlusta á umræður.) (Forseti hringir.) Ég hlustaði á umræðuna, hv. frummælandi.
Í öðru lagi hef ég hlustað nokkuð grannt eftir afstöðu Sjálfstfl. í þessu máli. Ég hef ekki heyrt að hún hafi komið fram. Ég er engu nær eftir að hafa hlustað á ræður þeirra sem báðu um þessa umræðu, engu nær um afstöðu þeirra til málsins. Ég varð var við það í fyrra og las eins og aðrir þingmenn tillögu þeirra um að byggja álver úti á landi. Hins vegar afgreiddi formaður þingflokksins þá tillögugerð með þeim orðum að Sjálfstfl. væri svo frjálslyndur flokkur að menn hefðu leyfi til að verða sér til skammar. Ég hef reynt að berjast fyrir þessu máli og leggja mitt lóð á vogarskálina í þessu staðsetningarmáli álversins í ræðu og riti. Það er ekkert launungarmál. Hins vegar viljum við framsóknarmenn horfa á málið í heild sinni. En ég vil undirstrika það að ekki er hægt að ganga frá þessu máli hér á Alþingi án þess að fram komi með hverjum hætti verður hægt að koma í veg fyrir það að bygging álvers hér á suðvesturhorninu sporðreisi byggðina í landinu.