Bygging og rekstur álvers
Mánudaginn 15. október 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég kem hér í ræðustól til þess að taka undir orð forseta áðan og til að mótmæla því sem fram kom í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e., að ég hafi leitað eftir því við forseta að skýrsla sú sem ég lagði fram sl. fimmtudag kæmi ekki til umræðu. Hið rétta er að ég óskaði þá ekki að svo stöddu eftir umræðu um skýrsluna, vissi enda um beiðni hv. 1. þm. Reykv. um þessa utandagskrárumræðu, vildi virða svo tíma þingsins að menn sæju til hvernig þeirri umræðu yndi fram. Þetta er í alla staði þinglegt og ég mótmæli harðlega og vísa á bug ómaklegum aðdróttunum hv. 2. þm. Norðurl. e. að forseta og mér.