Guðrún J. Halldórsdóttir :
Ég fagna því að þetta frv. er komið fram hér í Ed. Kvennalistinn hefur tvívegis lagt fram fsp. á undanförnum þingum um hvað frv. liði og nú sjáum við það loks hér í fyrstu mynd. Ég fagna því mjög. Þeir sem kynnst hafa börnum og unglingum hér á Reykjavíkursvæðinu þekkja afskaplega vel, margir hverjir, hvernig ástandið hefur síversnað ár frá ári og ekki síst núna eftir tilkomu bjórsins hefur drykkjuskapur ungmenna vaxið mjög og færst mjög niður í aldursþrepin. Þetta þýðir það að vönduð lög og vönduð meðferð þessara mála er sífellt stærri nauðsyn.
Um lagafrv. vil ég ekki segja mikið að svo stöddu máli. Ég er, eins og einn ræðumaður fyrr í dag, í menntmn. og mun þá reyna að leggja því það skynsamlegt lið sem ég get. Ég vil þó rétt nefna það að mér sýnist að kannski skorti örlítið á það í þessum lögum að tekið sé sérstakt tillit til vilja barnsins sjálfs, hvaða skoðun barnið hafi á meðferð máls síns og hvaða umgengni það vill hafa og hvort það vill vera hjá fósturforeldrum eða öðrum.
Ég veit ekki hvort það er rétt hjá mér, en hér stendur að barnaverndarráð hafi úrslitaákvörðunarvald í þessum málum. Mun ekki vera hægt að skjóta málum barnaverndar til æðri dómstóla en barnaverndarráðs? Þetta er svona í fljótu bragði það sem mér sýnist að við þyrftum að athuga, en fyrst og fremst vildi ég undirstrika þörfina á því að vönduð lög um verndun barna og ungmenna sjái dagsins ljós og verði samþykkt hér á þessu þingi.