Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Herra forseti. Ég þakka fyrir þær undirtektir sem frv. hefur fengið. Sannleikurinn er sá að þó að það hafi ekki verið rætt hér áður á Alþingi og því bara verið dreift til kynningar í fyrra hafa þessi mál fengið talsverða umræðu hér á undanförnum þingum, m.a. í fyrirspurnatímum aftur og aftur, þar sem t.d. hv. fyrrv. þm. Guðrún Agnarsdóttir hreyfði þessu máli hvað eftir annað og fleiri þingmenn. Það er því alveg ljóst að hér hefur verið mikill áhugi á þessu máli og endurbótum á lögum um vernd barna og ungmenna. Það er eðlilegt vegna þess hvað lögin eru orðin götótt, úrelt að mörgu leyti, og vegna þess hvað vandamálin eru hrikaleg og þá er náttúrlega betra en ekki að hafa sæmileg lög þó að við vitum það öll sem erum hér í þessum sal að lög gefa litla stoð ef ekki fylgir fleira, m.a. eðlilegt framkvæmdakerfi til þess að taka á þeim vandamálum sem hér eru uppi og eru með þeim hætti að þau spyrja ekki um það hvar málin eru vistuð í ráðuneyti.
Þetta eru mál sem snerta mörg ráðuneyti og eitt af því sem er slæmt við þetta stjórnkerfi er það að mál vilja lokast af inni í einstökum ráðuneytafarvegum, og það er eins og þar séu oft engin tengsl á milli. Þetta á auðvitað við um mál hvort sem þau tilheyra mínu ráðuneyti sem nú er eða öðrum, en flest þessi mál sem snerta vernd barna og ungmenna eru í raun og veru á mörkum margra ráðuneyta.
Ég kann að segja margar hörmungarsögur af því hvernig misfarist hefur um meðferð þessara mála af því að menn komu sér ekki saman um það hvar þau ættu heima í stjórnkerfinu. Það er auðvitað ofboðslegur hlutur. Við þekkjum mörg dæmi um slíkt. Við þekkjum t.d. dæmi um að það tókst ekki að taka á sérstökum vandamálum ungra fíkniefnaneytenda vegna þess að togstreita var um það hvar málið ætti heima. Þetta er auðvitað alveg óþolandi, satt best að segja, og yfirvöldum öllum, bæði Alþingi og sveitarstjórnum, til skammar, hvernig þessi mál eru og hafa verið mjög lengi. Ég tala nú ekki um fyrirkomulagið á greiðslukerfi Unglingaheimilis ríkisins sem ég gæti nú haldið um langa tölu þar sem er í raun og veru enn þá inni gamla sveitakerfið. Þess vegna er spurt áður en barnið fær viðhlítandi þjónustu: Hvaðan er barnið? Hvaðan er unglingurinn? Er sveitarfélagið tilbúið að borga fyrir hann? Eða þá hitt gerist að Unglingaheimili ríkisins tekur barnið inn, eða unglinginn, og sveitarfélagið, sem oft er lítið, fær svo gríðarlegan reikning sem það ræður ekkert við. Niðurstaðan hefur því orðið sú að Unglingaheimili ríkisins hefur fyrst og fremst verið úrræði fyrir þau sveitarfélög sem hér eru í kring. Af þeim ástæðum ákváðum við að meðferðarheimili fyrir unga fíkniefnaneytendur, sem verður á Móum á Kjalarnesi, verður hrein ríkisstofnun en ekki með þessu daggjaldakerfi sem stríðir í raun og veru gegn öllum nútímalegum jafnréttishugmyndum í félagslegri meðferð á vandamálum af þessu tagi.
Það væri hægt að hafa hérna miklar umræður í framhaldi af þeim ábendingum sem fram komu hjá
hv. 6. þm. Reykn. vegna greinar í dagblaðinu Tímanum í dag. Einnig mætti t.d. fara yfir vanda vegalausra barna sem eru hér mörg í þessu landi, alveg ótrúlega mörg. En þar kemur upp þessi vandi: Hver á að beita sér fyrir lausn á þeim málum? Er það þessi eða er það hinn? Við höfum tekið á þessum málum í menntmrn. þó að þetta sé út af fyrir sig ekki bara okkar mál samkvæmt þessum þrönga stjórnkerfisskilningi, heldur sé þetta málefni sveitarfélaga og heilbrrn. og félmrn. Niðurstaða í það hvar sá málaflokkur á að vistast hefur út af fyrir sig fengist í núverandi ríkisstjórn eftir nokkra yfirferð mála á milli ráðuneyta. Við teljum að þetta eigi að vera í félmrn. En vandinn er líka sá að þessi reglustikupólitík sem stjórnkerfið er rekið eftir dugir ekki í svona málum, menn verða að sýna sveigjanleika, og það að segja: sveitarfélagsins er þetta og ríkisins er hitt, óþarfa stífni í þeim efnum getur iðulega komið niður á þeim sem síst skyldi.
Þá vil ég víkja aðeins að ábendingum sem hér komu fram. Ég þakka fyrir þær og ég tel að þær séu allar gildar. Ég fer fram á það við hv. nefnd sem með málið fer að hún taki mið af þeim ábendingum sem hér hafa komið fram frá þeim þingmönnum sem talað hafa, hv. 18. þm. Reykv., 8. þm. Reykn. og 6. þm. Reykn. Í sjálfu sér get ég ekki svarað mjög miklu um þær spurningar sem hér voru lagðar fyrir en ætla þó að reyna að fara yfir nokkrar þeirra. Það er fyrst spurt: Hefur verið leitað umsagnar sveitarfélaganna og samtaka þeirra? Ég get því miður ekki svarað þessari spurningu, en ég bendi á að Ingibjörg Rafnar átti sæti í nefndinni sem undirbjó frv. og hún átti um skeið sæti í stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga. Ég vænti þess því að samtök sveitarfélaga, heildarsamtökin, hafi farið yfir þetta mál og ég held að í raun og veru sé nokkuð góð samstaða um þetta meðal sveitarstjórnarmanna. Ég hef tekið þetta mál upp á samráðsfundum ríkis og sveitarfélaga sem eru haldnir tvisvar á ári, held ég, og það hefur enginn gert neina athugasemd við þennan fyrirhugaða flutning á málaflokkum frá menntmrn. til félmrn.
Hv. 8. þm. Reykn. vék hér aðeins að 34. og 36. gr. frv. varðandi annars vegar fóstursamninga og hins vegar umgengni barns í fóstri við kynforeldra og innti eftir því hvar sektarákvæðin væru. Það ber að játa að þau eru ekki í frv. Þau eru heldur ekki í almennu viðurlagagreinunum að því er ég best fæ séð, og mér finnst sjálfsagður hlutur að hv. þingnefnd taki þetta til sérstakrar skoðunar, í fyrsta lagi hvort sektarákvæðin eiga heima í þessum lögum eða hvort þau eiga að vera í barnalögum og þá skýrari þar en þau eru nú. Eða þá það hvort menn komast kannski að þeirri niðurstöðu að sektarákvæðin séu heldur gagnslítil þegar komið er út á þetta svið mannlegra samskipta. Ég hygg að sektarákvæði mundu út af fyrir sig ekki leysa mikinn vanda fyrir það barn eða það foreldri sem í hlut ætti, því eftir að farið væri að beita sektarákvæðinu er hætt við að sambúð foreldris og barns geti hugsanlega orðið svo erfið, af því að sektarákvæðinu hefði verið beitt, að það þurfi alveg sérstakrar úrlausnar við. Ég sé í grg. með 36. gr. að hún er í raun
og veru óvenju ítarleg að því er varðar úrræði barnaverndarnefndanna sem slíkra. Ég bendi líka á 21. gr. og grg. með henni. Hún er einnig mjög ítarleg. Þar er farið yfir þessi samskiptamál mjög nákvæmlega, eins nákvæmlega og mögulegt er að gera í grg. með lagafrv. Við vitum að í mannlegu félagi er það svo að vel getur verið að þróun þessara mála verði þannig á komandi árum að engin lagaákvæði eigi nokkurn tímann við neitt það tilvik sem upp kann að koma af því að þetta er svo misjafnt og frábrugðið frá máli til máls. Ég get því ekki sagt neitt annað um þetta mál en að mér fyndist að hv. menntmn. ætti að taka á þessu máli og getur auðvitað verið að hér séu menn í deildinni sem kunna betur skil á því, eins og hv. 2. þm. Suðurl. sem lengi gegndi embætti dómsmrh.
Það var athyglisvert sem fram kom hér hjá hv. þm. Guðrúnu Halldórsdóttur varðandi tilkomu bjórsins, að við hana hafi vandamál aukist. Það var verulegt áhyggjuefni okkar margra hér þegar bjórmálið var rætt á sínum tíma. Það var nú sagt við okkur, þessa aðila sem gerðu athugasemdir, snemma á þessu ári að hrakspár okkar hefðu sem betur fer ekki ræst við það að bjórinn var leyfður. Við hefðum verið of svartsýn og það er nú vonandi þannig. Þó skal ég ekkert um það segja. Ég óttast að afleiðingarnar sjáist því miður ekki bara á fyrsta árinu, heldur taki það mikið lengri tíma að skila sér þannig að mælanlegt sé miðað við það sem áður var.
Ég vil einnig geta þess, virðulegur forseti, að í þinginu hefur aftur og aftur verið rætt mál sem er auðvitað partur af þessum málaflokki. Það er frv. til laga um umboðsmann barna, sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir hefur flutt nokkrum sinnum á Alþingi. Ég velti því aðeins fyrir mér hvort ákvæði um umboðsmann barna ættu að vera í þessu frv. en ég komst að þeirri niðurstöðu að það væri óeðlilegt vegna þess að í raun og veru ætti umboðsmaður barna að fara með réttindamál barna og unglinga andspænis kerfinu og þar með framkvæmd á þessum lögum út af fyrir sig. Þess vegna væri skynsamlegra, ef menn vildu setja lagaákvæði um umboðsmann barna, að annaðhvort væru sett um það sérlög eða þá að það yrði viðauki með einhverjum hætti við lögin um umboðsmann Alþingis. Mér finnst hins vegar skylt að nefna þetta mál vegna þess að það tilheyrir óneitanlega þeim málaflokki sem hér er verið að ræða um, sem er réttindi barna og ungmenna.
Ég endurtek þakkir mínar til þeirra þingmanna sem hér hafa talað fyrir það að hafa lýst yfir almennum stuðningi við frv., þó það sé auðvitað svo með þetta frv. eins og önnur að það þarfnist vandlegrar skoðunar. En ég vona vegna þess hvað frv. kemur snemma fram á þessu þingi að það takist að afgreiða það í vetur því að gildandi lög um þessi mál þarfnast lagfæringar.