Hreggviður Jónsson :
Hæstv. forseti. Hér hefur verið lagt fram frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33 frá 17. júní 1944 og er 1. flm. hv. 6. þm. Reykv.
Ég vil byrja á því að þakka hv. flm. fyrir að leggja fram þetta frv. og hefja hér umræðu um stjórnskipunarlög, þá sérstaklega þessa grein sem fjallar um bráðabirgðalög. En í frv. þeirra er gert ráð fyrir að 28. gr. verði felld niður.
Það er nauðsynlegt að taka þetta til umræðu nú og það strax. Í sumar voru sett bráðabirgðalög sem hafa valdið mjög mikilli spennu í þjóðfélaginu. Það hafa verið sett bráðabirgðalög sem menn greinir á um hvort standist þær kröfur sem stjórnarskrá lýðveldisins Íslands gerir ráð fyrir. Ég er einn af þeim sem hafa efasemdir um að núverandi ríkisstjórn Íslands hafi farið rétt að við setningu bráðabirgðalaga nú í sumar. Ég tel að setning þessara bráðabirgðalaga brjóti í bága við stjórnarskrána og hefði nú verið æskilegt að hæstv. forsrh. væri hér viðstaddur umræðuna því að ég á eftir að beina til hans fyrirspurnum.
Ég held að þessi umræða hér verði nú að einskorðast við stjórnarskrármálin almennt. Hér hafa verið lögð fram lagafrumvörp nokkrum sinnum, tvisvar síðan ég kom hér á þing, um breytingu á stjórnarskrá eins og rakið hefur verið hér af fyrri ræðumönnum. Og ég vil minna á að þegar lagt var fram frv. á vordögum 1989 um breytingar á stjórnskipunarlögum af hv. þm. Páli Péturssyni og fleirum, þá var sú framlagning að mínu mati sýndarmennska. Og það er sumt af þeirri umræðu sem hér fer fram í þinginu sýndarmennska. Á meðan menn leggja fram stjórnskipunarlög og breytingu á þeim og með þeim hætti að það mætti ætla að þeir væru mjög ábyrgir en svo er ekki vegna þess að stjórnarskráin og stjórnskipunarlögin verða aldrei betri en þingmennirnir sem sitja á þingi hverju sinni. Ástæðan til að ég segi þetta er sú að þau þrjú þing sem ég hef setið hér hefur það gerst æ ofan í æ að lögð hafa verið fram frv. og samþykkt sem hafa haft agnúa svo að ekki sé meira sagt og verið brot á stjórnarskránni að mínu mati.
En ef við víkjum að því máli sem snýr að útgáfu bráðabirgðalaga þá er það ljóst að það ákvæði hefur verið notað nær hömlulaust undanfarin ár. Í ,,Stjórnskipun Íslands`` eftir Ólaf Jóhannesson er rætt um hve oft bráðabirgðalög hafa verið sett. Hann segir hér, með leyfi forseta:
,,Heimild til útgáfu bráðabirgðalaga var notuð mjög hófsamlega fyrst framan af. Á 40 ára tímabili frá 1874 -- 1914 voru aðeins gefin út tíu bráðabirgðalög.``
Hvað segir þetta? Þetta segir það að þegar þingið sat aðeins skamman tíma á ári og hefði mátt ætla að útgáfa á bráðabirgðalögum hefði verið nauðsynlegri en í dag þá var það ekki gert. Þeir stjórnarhættir sem teknir hafa verið upp síðan eru því á skjön við anda laganna, á skjön við þá setningu stjórnarskrárinnar sem ætlast var til að væri farið eftir. Og setning bráðabirgðalaga í sumar hefur vakið upp margar
spurningar. Ég hef varpað því fram hér að stjórnarskráin hafi verið brotin. Ég tel af þeirri ástæðu, og nú væri full þörf á að hæstv. forsrh. væri hér til þess að hlusta, ég tel að forsrh. og fjmrh. ættu að segja af sér nú þegar og ríkisstjórnin ætti að fara frá og efna til nýrra kosninga.
Það er alveg ljóst að útgáfa þessara bráðabirgðalaga er brot á stjórnarskránni. Hví er það svo? Í stjórnarskránni er skýrt kveðið á um hvaða lög megi gefa út sem bráðabirgðalög og þar er sérstaklega tekið fram að þau megi ekki ríða í bága við stjórnarskrána. En nú er það svo að þau lög sem voru gefin út í sumar ríða í bága við 67. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins. (Gripið fram í.) Nei, hv. þm. Samkvæmt því orðalagi sem Bjarni Benediktsson og Ólafur Jóhannesson nota þá heitir það að ríða í bága við einhvern.
Í 67. gr. stjórnarskrárinnar er fjallað um friðhelgi eignarréttarins. Bæði Bjarni Benediktsson og Ólafur Jóhannesson telja að eigi sé heimilt að gefa út bráðabirgðalög um hvaða efni sem er. Í 1. mgr. 28. gr. stjórnarskrárinnar segir að bráðabirgðalög megi ekki ríða í bága við stjórnarskrána. Með þessu er einungis átt við þau fyrirmæli stjórnarskrárinnar sem varin eru af 1. mgr. 79. gr. hennar. Geta menn í þessu sambandi flett upp í Bjarna Benediktssyni, ,,Íslensk stjórnlagafræði II`` á bls. 59 og Ólafi Jóhannessyni ,,Stjórnskipun Íslands``, bls. 328. Því verður að telja að því sé svo háttað að þetta brjóti í bága við stjórnarskrána og að útgáfa bráðabirgðalaga sé því brot á henni.
Ég hefði viljað spyrja forsrh. Nú er hann ekki hér í sal en hefði verið æskilegt að hann sæti hér, en það má vera að einhver vilji taka að sér að koma þeim boðum til hans. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Hvenær á að leggja bráðabirgðalögin frá því í sumar fram í þinginu? Hvenær á að leggja þessi bráðabirgðalög fram og taka þau til umræðu? Mér er sagt að það sé verið að dreifa þeim núna svo að þessari spurningu hefur verið svarað. Síðan hefði ég viljað spyrja hæstv. forsrh. hvað hann mundi gera ef Hæstiréttur felldi þann dóm að bráðabirgðalögin nr. 87 frá 3. ágúst 1990 væru brot á stjórnarskránni. Það væri fróðlegt að fá svar við því hvað menn hyggist gera ef það kæmi upp.
Á bls. 58 í ,,Íslensk stjórnlagafræði II`` eftir Bjarna Benediktsson segir: ,,Í 23. gr. stjórnarskrárinnar er það annað höfuðskilyrði fyrir útgáfu bráðabirgðalaga að brýna nauðsyn beri til hennar. Það er því ekki nóg þó að löggjöfin kynni að vera æskileg eða skynsamleg eða þótt nauðsyn sé til löggjafar ef hún er ekki brýnni en svo að vel mátti bíða reglulegs þings. Annars getur oft verið álitamál hvort réttara sé að kveðja þing saman til aukafundar svo það geti tekið ákvörðun um málið eða gefa út um það bráðabirgðalög.``
Ég hlýt því að álykta svo að það hefði átt að kveðja þingið saman í ágúst til að setja bráðabirgðalög eða ræða þau og hefði þá reynt á hvort þingstyrkur hefði verið til þess að setja lög sem brytu í bága við stjórnarskrána. Ég held að það hljóti að vera þessi mál sem við ræðum hér mjög ítarlega því að
það getur ekki verið ætlan þingsins að setja lög sem brjóta í bága við stjórnarskrána.
Það er og spurning hvort það sé nokkur breyting til batnaðar þó að þingið verði sameinað í eina deild. Ég hef heyrt rök færð fyrir því sem ég tel fyllilega gild að svo muni eigi verða. Ég held einfaldlega að það sem skiptir máli sé ekki hvort þingið er í einni deild eða tveimur deildum. Það sem skiptir máli auðvitað er það hvort þingmenn rækja þingskyldu sína og virða stjórnarskrána og lög eða hvort þeir vilja vera eins og þeir hafa verið hér, handauppréttingavélar ríkisstjórnarinnar og gildir þá einu hvort álitamál er um gildi þeirra laga eða hversu vel eða illa þau eru unnin. Og ég tel það ekki sæmandi Alþingi Íslendinga að hafa þau vinnubrögð í frammi sem hér hafa verið stunduð og gæti stutt það með fjölda dæma, t.d. með þeirri umræðu sem nú nýlega fór fram um setningu laga um skráningu og meðferð persónuupplýsinga sem voru sett hér sl. vor og voru með þeim hætti að það var ekki bjóðandi hér á Alþingi Íslendinga að samþykkja slík lög. Þrátt fyrir fjölda brtt. sem hv. 5. þm. Vesturl. lagði hér fram og við reyndum að fá fylgi fyrir, þá voru þær allar felldar. En það hefur komið í ljós, og virtir lögfræðingar hafa látið þá skoðun sína í ljós, að þessi lög og margt í þeim brjóti í bága við stjórnarskrá og brjóti í bága við mannréttindaákvæði Evrópusáttmálans. Svo hefði verið um fjölda annarra laga hér. Það er því alveg gagnslaust að samþykkja það að Alþingi Íslendinga eigi að sitja í einni deild ef þingmenn bera ekki gæfu til þess að vanda sín vinnubrögð í staðinn fyrir að vera eins og viljalaus verkfæri í þágu ríkisstjórnar hverju sinni. Það er grundvallaratriði að menn lesi lögin þegar þau eru lögð fram, skoði þau, fari yfir þau lögfræðilega, fari yfir álitamál í þeim og taki þau mjög vel fyrir þannig að ekki sé verið að samþykkja lög sem séu bæði illa samin, stangist á við ýmis önnur lög og brjóti jafnvel stjórnarskrána eins og hafa verið miklar bollaleggingar um.
Ég vil við þessa umræðu ekki hafa þetta öllu lengra en tel að það hefði verið æskilegt að hér væri hafin ítarleg umræða, ekki síður af forsetum þingsins, um þau vinnubrögð sem hér hafa átt sér stað í þinginu. Að menn séu ekki bara að flytja hér sýndarmennskufrumvörp um breytingu á engu því að það er ekki breyting á neinu þótt maður breyti í eina deild eða breyti eitthvað stjórnarskránni ef þingmenn virða ekki stjórnarskrána og hafa ekki kjark eða uppburði í sér til þess að stemma stigu við valdi ráðherranna í þingflokkum ríkisstjórnarinnar hverju sinni.